Feykir - 02.12.1992, Blaðsíða 6
6FEYKIR 42/1992
hagyrðingaþáttur 131
Heilir og sælir lesendur góöir. Vísa
Rúnars Kristjánssonar um Kára í Garði
komst ekki rétt til skila í síðasta þætti,
þriðja hendingin á að vera þannig:
kynnir sig með kláran haus.
Fyrir nokkru var sagt frá því í Feyki
að orðahnippingar hefðu orðið með
mönnum í Blöndudal. Um þau tíðindi
yrkir Rúnar svo.
Landi sínu veitir vörn
vel í geði ríkur.
Enda þykir yngri Björn
oft þeim gamla líkur.
Eftir orðanna hljóðan munu
skilaboðin hafa verið á þessa leið.
Heyrðu Gvendur Hagalín
hertu tök á stýri.
Boðskap sendir beint til þín
Björn á Löngumýri.
Efmenn loka á eftir sér
ekki framar hliðum,
lífs á vegi verður þér
varla heitið griðum.
Á þessu sést að í óefni er komið og
Rúnar bætir við.
Gildir nú að gœta sín,
grið ei bjóðast lengur,
en ég vil hlífa Hagalín,
hann er góður drengur.
I3. nóvember sl. var haldinn
aðalfundur félags hrossabænda. Ein af
þcim tillögum sem lagðar voru fram á
umræddum fundi, var á þá leið, að
samþykkt yrði að beina þeim
eindregnu tilmælum til stjórnar
Gunnarsholtsbúsins á Rangárvöllum
að selja hið fyrsta hrossastóð búsins. i
greinargerð með tillögunni kom meðal
annars fram að Landgræðsla ríkisins
hefði margoft bent á þá staðreynd að
hross í landinu séu nú allt of mörg og
varla í anda þeirra samtaka að fjölga
nú hrossum stórlega í beinni
samkeppni við bændur.
Einn af aðalfundarfulltrúunum
Sigurður Hansen bóndi í Kringlumýri
í Skagafirði, hlustaði með athygli á
þessar umræður og lagði svo þetta til
málanna.
Landgræðslan hún var í vanda
vildi gagnast landi og þjóð.
Fann það ráð í rœktun sanda
að reka á þá merarstóð.
Á fundi þar sem dagskrárliðurinn
önnur mál virtist ekki vekja áhuga
fundarmanna, orti Sigurður Hansen
þessa vísu.
Líklega vantar litla skál
lífsblóminu að svala,
því undir liðnum önnur mál
enginn þarfað tala.
Einhverju sinni á samkomu í
Varmahlíð lagði skagfirskur bóndi,
sem ábyggilega eins og fleiri dáðist að
hagmælsku Sigurðar, hart að honurn
að yrkja um sig skammarvísu. Vildi
Sigurður til að byrja með lítið gera úr
þeirri málaleitan, cn þegar bóndi
ítrekaði enn ósk sína, er mælt að
Sigurður hafi hallað sér að konu bónda
og haft yfir eftirfarandi vísu.
Hann á ekki samleið með sauðum,
því sauðirnir iðka ekki prett.
Hann gengi af djöflinum dauðum,
efdrœgust þeir saman í rétt.
Eitt sinn á þingi hestamanna hélt
Kristinn Hugason ráóunautur mikla
tölu. Einn af þeim sem á hlýddu var
Jón Sigurðsson bóndi í Skollagróf.
Eftir að lestrinum lauk gerði Jón þessa
vísu.
Magnað gerist mála þóf,
mjög áfennir Ijóra.
Hann af kappi hund upp gróf,
hafði reku stóra.
Einn af góðum kunningjum Jóns,
sem starfaði vió blaðamennsku, tók sig
eitt sinn til og fór í afvötnun. Ekki
virðist Jón hafa verið sterktrúaður á
árangur þeirrar vistar, eftir þessari vísu
hans að dæma.
Að honum streyma ölveitur,
illa trúi ég þorni.
Bráðum aftur bláleitur
blaðakappinn forni.
Maður að nafni Jens Einarsson var
eitt sinn ritstjóri tímaritsins Hesturinn
okkar. Heldur seig á ógæfuhliðina í
þeim rekstri undir það síðasta og hefur
það kannski orðið Jóni tilefni að
þessari vísu.
Upp er spunnið félagsfát,
flest má reyna að þróa.
I aulaskapnum einn á bát
œtti Jens að róa.
Harkalcga hefur blásið víða um
land, þegar þessi þáttur er í smíðum.
Gott er þá að komast að svipaðri
niðurstöðu og Björn Daníelsson gerir í
eftirfarandi vísum.
Ef tíð er grá og heilla treg
með hóp affláum draugum,
lýsa þá um langan veg
Ijós úr bláum augum.
Þótt sölni grösin grœnfrá vori,
glói hrím á blaði og steinum,
gróðurilm úr gengnu spori
geymum við í hugans leynum.
Þrátt fyrir að norðan hríðar séu oft
slæmar, geta illviðri komið úr fleiri
áttum. Kristján Stefánsson frá Gilhaga
yrkir svo.
Veit ég tíðum veðra styrk
vetur bíður kunnan.
Kjörin víða köld og myrk
komin hríð á sunnan.
Þá verður ckki mikið lengra kornist
að þessu sinni. Gott er að leita til
Jónasar Tryggvasonar frá Finnstungu
með lokavísuna.
Fannst mér stundum fátt um skjól
fjarri Lundi grónum.
Þegar grundin fegurð fól
fyrsta undir snjónum.
Bið ykkur þar mcð að vera sæl að sinni.
Guómundur Valtýsson
Eiríksstöðum - 541 Blönduósi
Góð frammistaða kvennaliðsins í 1. deild
Keflvíkingar reyndust
ofjarlar Tindastóls
Tindastólsstúlkurnar héldu
suður á bóginn um helgina og
léku tvo leiki, sigruðu Njarð-
víkinga cn urðu að sætta sig við
tap fyrir KR. Tindastóll er mjög
náiægt 50% árangri í deildinni
sem hlýtur að teljast mjög gott
hjá nýliðum, liðið hefur unnið
fjóra lciki og tapað fímm.
Tindastólsliðió var sterkari
aðilinn allan leikinn í Njarðvík og
var sigurinn aldrei í hættu. Loka-
tölur urðu 64:32. Bima Valgarðs-
dóttir var atkvæðamest hjá Tinda-
stóli, skoraði 24 stig, Kristín Elva
Magnúsdóttir kom næst með 13
og Kristjana Jónasdóttirgerði 12.
Mikil barátta einkenndi leik
KR og Tindastóls. KR-ingar
höfðu yfirleitt framkvæðið, en um
miðjan fyrri hálfleik tókst Tinda-
stólsstúlkum að jafna. Það reynd-
ist þó skammgóður vermir og KR-
stúlkur sigldu fram úr á ný og
staðan í leikhléi var 23:18.1 seinni
hálfleiknum kom síðan mciri
breidd KR-ingum til góða og þrátt
fyrir góóa viðleitni tókst Tinda-
stóli ekki að ógna veldi Vestur-
bæinga. Lokatölur urðu 54:41.
Kristín Elva Magnúsdóttir fór
fyrir Tindastóli í þessum leik,
skoraói 14 stig, ValgerðurErlings-
dóttir gerði 8 og Bima Valgarðs-
dóttir og Inga Dóra Magnúsdóttir
6 hvor.
Forráóamenn Tindastólsliðsins
voru mjög óhressir með dóm-
gæsluna í báðum þessum leikjum.
Til dæmis viðgekkst það í Njarð-
víkunum að sparkað var í Tinda-
stólsstúlku liggjandi á vellinum,
og þrátt fyrir að þetta gerðist beint
fyrir framan nefið á dómaranum
sá hann ekki ástæðu til að dæma
brottrekstrarvíti. Að mati Tinda-
stólsmanna mætti virðing dómara
fyrir kvennaboltanum vera meiri.
Ekki tókst Tindastólsmönnum
að fylgja eftir góðum sigri sínum
á Grindvíkingum í Bikarnum á
dögunum, þegar Islands-
meistarar Keflavíkur komu í
heimsókn í gærkvöldi. Eftir
jafnan og spennandi fyrri hálf-
leik keyrðu Kefívíkingar upp
hraðann í þeim seinni, léku
mjög góðan körfubolta og 16
stiga munur sem gestirnir náðu
upp úr miðjum hálfleiknum,
reyndist of stór biti fyrir Tinda-
stól. Lokatölur urðu 114:97
fyrir Keflavík. I>etta var áttundi
tapleikur Tindastóls í dcildinni í
vetur. Liðið hefur ekki náð að
sigra í fjórum síðustu leikjum,
er einungis með átta stig og hefur
sigið niður töfluna undanfarið.
Leikurinn byrjaði strax fjörlega
og fyrri hálfleikur var mjög
hraður, skemmtilegur og vel lcik-
inn af báðum liðum. Liðin skiptust
á að hafa forastuna þegar ekki var
jafnt, og það var ekki fyrr en undir
lok hálfleiksins sem Keflvíkingar
náðu sjö stiga forskoti, cr Tinda-
stóli tókst síðan að minnka niður í
tvö stig fyrir leikhlé, 51:53.
Gestirnir juku síðan fljótlcga
muninn í seinni hálfíeiknum og
bættu í hraóann. Tindastóll virtist
ekki mega viö þessari harðabreyt-
ingu og var leikur liðsins ekki líkt
því eins agaður í seinni hálfleikn-
um og þeim fyrri. I seinni hálfleik
mátti sjá tölur eins og 57:64,
59:68, 66:72, 70:81,69:85, 73:89,
77:93, 80:95, 87:97, 87:102 og
lokatölur urðu 97:114. Það var
einkum kafíi um miðjan hálfíeik-
inn sem gerði útslagið í leiknum,
en þá skoruðu Keflvíkingar
grimmt í mjög hröóum leik,
meðan Tindastólsmenn gerðu hver
mistökin á fætur öðrum. Að auki
virtust langskyttur Kefívíkinga
geta skorað þegar þá lysti, til að
mynda var Jón Kr. iðinn við
kolann í seinni hálfleiknum,
skoraði þá fjórar þriggja stiga
körfur.
Það kom í ljós í gærkveldi
hversu gífurlega sterkt Keflavíkur-
liðið er, ekkert lið má við svo
slökum leikkafla gegn þcim eins
og Tindastóll. Tindastólsliðið lék
vel í fyrri hálfíeiknum, en geröi
sig seka um of mörg mistök í
seinni hálfleiknum. Valur og Chris
voru bestu menn liðsins, og Páll,
Haraldur og Ingi Þór áttu einnig
þokkalegan leik.
Chris Moore skoraöi 29 stig
fyrir Tindastól, Valur 28, Páll 12,
Haraldur 10, Ingi Þór 9, Pétur
Vopni 5, og þeir Björgvin og
Hinrik 2 hvor. Nökkvi skoraði 26
stig fyrir ÍBK, Jón Kr. 23, Kristinn
21 ogGuójón 19. Tindastólsmenn
þyrstir nú ábyggilega eftir sigri.
Þeir fá tækifæri til að bæta stöó-
una í leik gegn Breiðabliki í
Kópavogi á föstudagskvöldið.
Næstkomandi þriðjudagskvöld
koma Haukar síóan í heimsókn í
Síkið.
JOLATILBOÐ
í HÁTÚNI í 10 DAQAl
20%
Afsláttur af gjafavörum, matar-
og kaffistellum og glervörum
Afsláttur af BOSCH
io% heimilistœkjum
• Sannkallaður HARÐARbónus
HATIIN
Sæmundargötu 7
Sími 35420