Feykir - 22.12.1992, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
ígulkerin:
Vinnsla hefst
eftir áramót
Vel lítur út með ígulkerja-
veiðar eftir áramótin. Mörg
svæði hafa fundist á Skaga-
firði þar sem ígulker eru með
mjög góðri hrognafyllingu,
allt að 18%, en 13% fylling
er talin þurfa til framleiðslu á
fyrsta flokks vöru.
Að sögn Gísla Halldórs-
sonar hjá Slátursamlagi Skag-
firðinga, eins aðstandcnda IS-
X hlutafélagsins sem stofnað
hefur verið til vinnslu ígul-
kerjahrognanna, standa góðar
vonir til þess að hægt verði
að hefja vinnslu í aðstöðunni
sem sköpuð heíur verið í Skjald-
arhúsinu fljótlega upp úr ára-
mótum, og hugsanlega mundi
það veita 15-20 manns vinnu.
„Þetta fer mikið eftir vcðri
og gæftum. Við gerum ráð
fyrir að strax og vinnsla
hefjist komi hingað aðilar frá
kaupandanum í Japan til að
leiðbeina okkur með vinnsl-
una. Þegar þetta síðan er
komið af stað þurfum við
væntanlega annan bát til
veiðanna“, segir Gísli.
Togararnir
Allir þrír togarar Skag-
firðings verða á veiðum yfir
jól og áramót, en þeir eiga
allir söludaga erlendis í
upphafi árs. Skafti selur
bolfisk í Hull 5. janúar, Skag-
firðingur karfa í Bremer-
hafen 11. janúar og Hegra-
nesið selur á sama stað
daginn eftir. Reynslan hefur
sýnt að verð á mörkuðunum
eru mjög góð fyrstu tvær
vikur ársins, hafa stundum
rokið upp um 50-70 krónur.
Nýi Arnar er mjög glæsilegt skip. Hér er hann nýsjósettur hjá Mjellem og Karlsen skipasmíðastöðinni. Mynd/Fiskifréttir.
Nýi Arnar kemur til heimahafnar á morgun
Á morgun, Þorláksdag 23.
desember, um kl. 14 leggst
að bryggju á Skagaströnd í
fyrsta sinn nýr Arnar HU-1.
Þessum nýja frystitogara
Skagstrendings hefur sóst
ferðin vel hingað til lands,
en eiginkonur flestallra
áhafnarmeðlima sem og
stjórnarmanna og stjórn-
enda Skagstrendings eru
með í för. Skipið var vígt í
skipalægi skipasmíðastöðv-
ar Mjellem og Karlsen sl.
föstudag, og voru helstu
framámenn á Skagaströnd
viðstaddir þá athöfn.
Nýi Amar er 66 metrar að
lengd, 14 metra breiður og er
knúinn 4.080 hestafla Wartsila
á veiðum yfir hátíðar
Það var á grundvelli þcssa
sem forráðamenn Skagfirðings
ákváðu að sækjast cftir sölu-
dögum í upphafi árs, og cinnig
til að bæta upp þann aflabrest
scm útgerðin hefur orðið fyrir
á þessu ári. Veiðin er 20-30 %
rninni á úthaldsdag í ár en hún
var á síðasta ári.
Það er langt síðan það hefur
gerst að togaramir frá Króknum
séu á veiðum yfir hátíðarnar.
„Við höfum verið að fikra
okkur frarnar, Hcgranesi fór
t.d. út annan janúar á síðasta
ári. Það var líka alltaf vitað að
Skagfirðingur yrói á veiðum
yfir hátíðarnar, mönnum var
gert grein fyrir því við ráðn-
ingu. Annars hefur skipunum
gengió þokkalega að veiða
undanfarna daga, þrátt fyrir
leiðindar tíð hafa þau getað
athafnað sig fyrir austan land
þar sem þau eru á veiðum”,
sagði Gísli Svan útgerðarstjóri
hjá Skagfirðingi.
aðalvél. Skipið er búið sjálf-
virkum frystitækjum og er
frystigetan 47,5 tonn á sólar-
hring og frystilestin er 975
rúmmetrar að stærð. Til
gamans má geta þess að
norska skipasmíðastöðin
smíðaði síðast skip fyrir
íslendinga árið 1905 og var
það farþegaskipið Ingólfur.
Eins og kunnugt er verður
garnli Arnar HU-1 úreltur í
stað þess nýja, svo og Sól-
bakur EA. Væntanlega verður
mikið um dýrðir á Skaga-
strönd á morgun við komu
nýja skipsins, þrátt fyrir að
skiptar skoðanir hafi verið í
bænum um útgerðarstefnu
Skagstrendings.
Eldingar í Fljótum
Um tíuleytið á miövikudags-
morgun síðasta sáu Fljóta-
menn að snögglega sló bláma
á norðurhimininn samhliða
því að miklar drunur heyrð-
ust í lofti. Hross ókyrrðust
mjög, enda þrumuveður
mjög fátíð á þessum tíma árs
og í Fljótum reyndar
sjaldgæf að staðaldri, en
þennan morgun varð í þrí-
gang vart við þrumgang í
lofti, og einu sinni sáust
eldingarnar mjög greinilega.
Samkvæmt upplýsingum
veðurstofunnar er helst að eld-
ingaveður geri aó vetrarlagi
þegar vcðrabrigði eru, og þá
sérstaklega þegar óveður er að
ganga niður, eins og tilfellið
var í Fljótunum fyrir viku.
Þrumuveður þetta styrkir
þann grun manna að gamla
Gautastaðahúsið í Stíflu hafi
brunnið af völdum eldingar í
lok sumarmálahretsins í hitteð-
fyrra, en húsið var brunarústir
einar eftir vcðrið.
—KTen£ÍH h|DI—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
mt
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata tb 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN