Feykir


Feykir - 22.12.1992, Síða 5

Feykir - 22.12.1992, Síða 5
45/1992 FEYKIR5 Norðlendingar beittu sér ekki síst fyrir stofnun landssambandsins Samantekt Sigurðar Jónssonar vegna 60 ára afmælis Landssambands Iðnaðarmanna Um þessar mundir eru liðin 60 ár frá stofnun Landssam- bands iónaðarmanna. Er þéttbýli fór að myndast umhverfíó landið fóru hand- verksmenn í iónaói að huga aó stofnun samtaka, en samvinna og samstarf iðn- aóarmanna hafói lengi verió til staöar í nágrannalöndum okkar. Hér var hinsvegar bændasamfélagió svo lengi rótgróió og ríkjandi og iön- staifsemi fremur lítil. Lands- samband iónaöarmanna hefur fært út kvíamar seinni árin. I marslok 1990 opnaói sam- bandið svæðisskrifstofu iðnaóarins á Akureyri, fyrir þjónustusvæóið frá Hrúta- firói aö Langanesi. Skrif- stofunni veitir forstöóu Skag- firóingurinn Siguróur Jóns- son framkvæmdastjóri Meist- arafélags byggingarmanna á Noróurlandi. Siguróur tók saman fyrir blaöió nokkra punkta varóandi þessi tíma- mót í sögu samtaka ión- aóarmanna í landinu. Viö stofnun iönaðarmanna- félaga var fyrst farið að huga að menntun iðnaðarmanna, og komið á sérstökum skólum fyrir iðnaðar- menn, fyrst í sunnudagsskóla- formi þar sem kenndar voru undirstöðugreinar, lestur, skrift og reikningur. Arið 1904 var komið á föstum iðnskóla í Reykjavík og reist hús yfir hann. Þetta sama ár voru stofnuð iðnaðarmannafélög á Sauðárkróki og Akureyri. Strax á stofnári félagsins á Sauöárkróki, kom bréf þaðan til félagsins í Reykjavík, þar sem hvatt var til aukinnar samvinnu og samstarfs iðnfélaga og iðnaðarmanna í landinu. Þrátt fyrir þennan bersýnilega áhuga Sauðkrækinga, entust félaginu ekki langir lífdagar og dó það drottni sínum, þangað til það var endurvakið á miðju sumri 1942 og er því nýorðið 50 ára. Að sögu þessa félags verður vikið síðar. Bréfið að norðan Annað bréf sem Norðlendingar sendu suður bar meiri ávöxt. Það var 1932 sem formaður iðnaðar- mannafélagsins á Akureyri, Svein- bjöm Jónsson, ritaði bréf til félaga sinna í Reykjavík og lagði bein- línis til aó heildarsamtök iðnaðar- mannafélaga í landinu yrðu stofnuð, yrði hlutverk þess aó standa vörð um helstu hagsmuna- mál iðnaðarmanna í landinu „Er ekki rétt að auka og efla samvinnu rnanna", spurði Sveinbjörn, en bréfið hefur ætíð verið kallað „bréfið að norðan“. Fyrsta iðn- Sigurður Jónsson (Siggi Nonna í Nesi) framkvæmdastjóri Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi. þingið var haldið 18. júní þetta sama ár og landssambandið stofnað á þinginu. Fyrsti formaður þess var Helgi Hermann Eiríksson. Stofnfélög voru iðnaðarmanna- félögin í Reykjavík, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Akureyri og Siglufirði. Iónþing voru haldin á eins og tveggja ára fresti. I dag eru þau haldin annað hvert ár. 1962 var iðnþing haldið á Sauðárkróki. Þar var meðal gesta Bjami Benedikts- son forsætisráðherra og til að lyfta sér upp frá þingstörfunum bmgðu þingfulltrúar sér m.a. út í Drangey. Undir stjórn Haraldar Sumar- liðasonar forseta Landssam- bandsins, hefur sambandið skoðað þá möguleika sem felast í aðild að EES. Þátttaka í því mun að áliti stjómar sambandsins færa íslensk- um iðnaði aukið frjálsræði á flestum sviðum. Landssamband iðnaðarmanna vill á þessum 60 ára tímamótum hvetja til viðhorfs- breytinga í íslenskum iðnaði, og iðnaðarmenn taki höndum saman við alla þá sem vilja hefja nýja sókn, nýja iðnbyltingu. Verkspekin kemst ekki að í skólakerfinu Samt verða forsvarsmenn iðnaðar að vera á varðbergi gagnvart samningum um EES og lagabreytingum þeim samfara. Búast má við að íslenskum iðn- aðarlögum veriö breytt og upp komi umræða innan EES að afnema beri lög um lögverndun starfsréttinda sem meisturum, svein- um og nemum eru tryggð í dag. „Bókspekin drottnar í skóla- kerfinu, verkspekin kemst ekki þar að“, segir dr. Páll Skúlason í grein um menningu og iðnað í afmælisriti Tímarits iðnaðar- manna. Páll segir löngu tímabært aó auka veg verkvits og siðvits og bylta skólakerfinu í því skyni. „Hversvegna gengur okkur svona illa að festa almennan iðnað niður sem sjálfstætt vægi á borð við landbúnað og sjávarútveg. Lítið en skýrt dæmi um afstöóu landsmanna til iðnaðar er sú skoðun að með fiskiðnaði sé verið að rýra gildi fisksins: hráefnið sé dýrmætara en iðnaðarafurðin, fiskrétturinn. Þá er dæmi um kæruleysislega afstöðu íslendinga til iðnaðar að þeir skuli leyfa sér að tala um „ferðamannaiðnað“. I>að er tómt mál aó tala um menningu yfirleitt nema fólk hafi Iært að bera virðingu fyrir góðu handverki sem og hugverki", segirPáll Skúlason. Samtök iðnaðarins Eftir 60 ára starf er lands- sambandið nú í viðræðum við Félag íslenskra iðnrekenda, Félag íslenska prentiðnaðarins og Verk- takasambandi Islands um að leita leiða til þess aó samhæfa krafta þessara samtaka, og ella áhrif iðnaðarins í landinu. Leiði þessar viðræður í ljós að áhrif iðnaðarins verði sterkari út á við og betri nýting verði á fjármagni samtakanna til rekstrar, verða Landssamband iðnaðarmanna og áðumenfnd samtök ekki til í sinni mynd eftir u.þ.b. ár. Nýja nafnið, Samtök iðnaðarins, verður þá komið. I þessum nýju samtökum verða flest fyrirtæki í framleiðslu og þjónustuiðnaði á Islandi. Sam- tökin munu þjóna íslenskum iðnaði og gæta hagsmuna hans á innlendum og erlendum vettvangi. Þau munu líka leggja áherslu á að mennta starfsfólk og stjómendur í iðnaöi eins vel og kostur er og stuðla að eðlilegri tækniþróun. Þau munu vinna að almennri kynningu á íslenskum iðnaði og hvetja með aðgerðum sínum almenning og opinbera aðila til þess aö nýta innlenda framleiðslu öðru fremur. •GLEÐILEG JOL* 23. des. Þorláksmessa opið til kl. 23.00 NOKKRIR FRÁBÆRIR SÖNGVARAR TAKA LAGIÐ KL. 1 7.50 OG KL. 20.50 VIÐ BJOÐUM UPP A MALT OC APPELSIN, JÓLAÖL, HANCIKJÖT, LAUFABRAUÐ, JÓLAGLÖGC OG PIPARKÖKUR JOLASVEINARNIR IÍOMA IÍL. 17.OO 24. des. aðfangadagur opið kl. 9.00 - 12.00

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.