Feykir - 22.12.1992, Blaðsíða 6
6FEYKIR 45/1992
hagyrðingaþáttur 132
Heilir og sælir lesendur góðir. í
upphafi þessa þáttar langar mig aö
leita til lesenda með upplýsingar um
höfund aö eftirfarandi vísu.
Þó ég hafi erfitt átt,
orðið siírt að kanna,
margan góða dreg ég drátt
úr djúpi minninganna.
27.-29. nóvember síðastliðinn var
haldið flokksþing framsóknarmanna
undir kjörorðinu, Framtíð á framtaki
byggð. A fundi í Háskólabíói sem
haldinn var í tengslum við þingið, var
boðið til erindaflutnings um nýsköpun
og framtak í atvinnulífi landsmanna.
Einnig varhaldinn sýning á nýungum
í atvinnulífi í tengslum við fundinn.
Einn af þeim sem þar var staddur var
Sighvatur Torfason á Sauðárkróki.
Hann er höfundur næstu vísu.
Framtíð byggð áframtaki
Framsókn óskar tryggja.
Verði ávallt aflvaki
allra er landið byggja.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra gerir talsvert af því að yrkja.
Sagt er mér að þessi bráðsnjalla limra
sé eftir hann.
Hún er glaðlynd hún Gunnafrá Glerá
svo giftist hún Jónifrá Þverá,
og nú hoppa um húsin
hálft annað dúsin
afkrökkum sem enginn veit hver á.
A ferð fjárveitinganefndar Alþingis
urn Norðurland vestra fyrir nokkrum
árum slóst Halldór Blöndal með í ferð
til Drangeyjar. Snæbjörn vegamála-
stjóri var með í förinni og voru
vegamál meðal annars nokkuð til
umræðu. Þegar í ljós kom að nokkrir
af ferðafélögunum kviðu uppgöngunni
í Drangey, orti Halldór þessa vísu.
Leiðin verður löng og há
að lyktum sem þú þráðir,
götuslóðann gjöra þá
Guð og Snœbjörn báðir.
Stefán Jónsson fyrrvcrandi alþing-
ismaður er höfundur næstu vísu. Mun
hún vera ort á þingflokksfundi þar sem
Guörún Helgadóttir var ekki mætt.
Það er lán í sjálfu sér,
sérlega vegnaflokksins,
að Guðrún Helga okkar er
annars staðar loksins.
Einhverjum hefur dottið í hug að
minnast á forsætisráðherrann í næstu
vísu.
Islendingar Davíð dá
dýrka hann og prísa.
Þetta er eins og allir sjá
öfugmœla vísa.
Þá gæti vísan um hann Magnús sent
best verið næst.
Magnús hann svífur um margslungið svið
í meistarans keppnishita.
En hvernig það gekk að ná Gunnufrá
hlið
væri gaman aðfá að vita.
Sagt cr að ekki séu allar ferðir til
fjár, þó geta sumar ferðir verið góðar
eftir næstu vísu að dænia.
Ennþá gerast œvintýr
eitt afbestu gerð.
Eg er alveg eins og nýr
eftir þessa ferð.
Oft er gaman að rekast á vísur sem
fleiri en einn hagyrðingur hafa gert.
Heyrt hef ég að næsta vísa, sem hún
ber reyndar með sér, sé eftir tvo snjalla
hagyrðinga. Mun Sveinn Hannesson
frá Elivogum hafa gert fyrri hlutann en
Friðrik Sigfússon kcnndur við
Pyttagerði seinni partinn.
Auðs mér léðist aldrei pund,
illaféð í skuldir hrekkur.
Við skulum kveða og lífga lund,
lafir á meðan ekki sekkur.
Eitt sinn lét undirritaður frá sér fara
fyrri hlutann af eftirfarandi vísu.
Jóhanna Halldórsdóttir í Austurhlíö
A.-Hún. sá unt framhaldið.
Við skulum taka vinir skál
og vekja andans funa,
það er nú ekki mikið mál
að magna upp náttúruna.
Þá skal bera niður hjá Gísla Ólafs-
syni frá Eiríksstóðum.
Veröld þegar við ég skil,
vini og kunningjana.
Þá er nægur tími til
að tala um reikningana.
Eins og fram hcfur komið áður hér
í blaðinu, er Hjörleifur Kristinsson
bóndi á Gilsbakka í Skagafirði
nýlátinn. Brynjólfur Ingvarsson í
Reykhúsum og Kristnesi í Eyjafirði
yrkir svo í minningu hans.
A gljúfurbarmi í giljareit
á grænum rœktarbletti
auga Drottins eitt sinn leit
afdrep handa ketti.
Þar á snös var snotrum bæ
snemma kjálkað niður
og í djúpum dölum æ
dýrum tryggður friður.
Þegar rósemd æðst og ein
er öðru frenutr runnin
mönnum inn í mcrg og bein
er mesta þrautin unnin.
Fyrir minna menntastrit
mun um síðir þakka
þjóð sem hefir hyggjuvit
Hjörleifanna á Bakka.
Þar sent nú cr farið að styttast til
jóla er vei til falliö að enda þáttinn
með vísu sem Kristján Stefánsson frá
Gilhaga í Skagafirði mun eitt sinn
hafa skrifað á jólakort.
Sá er oss sorgir fól,
sigra og gleðitár
færi nú friðarjól,
fagnaðarríkt ár.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum.
Tindastóll kominn í fjögurra
liða úrslit í Bikarkeppninni
lagði Njarðvíkinga að velli og mæta Snæfelli næst í Hólminum
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir að greiða
heimsenda gíróseðla fyrir áskrifta-
gjöldum hið allra fyrsta.
Skilvísi borgarsig!
Feykir.
Megn óánægja vegna
frestunar kvennaleiks
Það var með herkjum að
tókst að koma á Ieik Tinda-
stóls og Njarðvíkinga í 8-liða
úrsiitum Bikarkeppni KKÍ
sl. miövikudagskvöld. Tvívegis
var búið að fresta leiknum
vegna veðurs, og reyndar var
veðrið afleitt meðan leikurinn
fór fram, en ferð þeirra 150
sem lögðu leið sína í Síkið
þetta kvöld var ekki til
einskis. Leikurinn var bráð-
fjörugur og skemmtilegur,
með þeim betri sem fram
hafa farið á Króknum.
Tindastólsliðiö sýndi það og
sannaöi að þegar liðsheildin
er góð getur liðið gert stór-
kostlega hluti. Tindastóll er
nú kominn í fjögurra liða
úrslit og mætir Snæfelli í
Stykkishólmi sunnudaginn
17. janúar, á sama tíma og
Keflvíkingar fá Skallagrím í
heimsókn. Ekki er að efa að
hörðustu stuðningsmenn Tind-
anna munu ekki láta sig
vanta í Hólminn.
Pétur Vopni gaf tóninn
strax í upphafi leiks mcð
þriggja stiga körfu, en Rúnar
jafnaði fyrir Njarðvík. Fyrri
hálfleikur var mjög jafn, en
Tindatóll þó yfirlcitt með
frumkvæðið. Staðan í leikhléi
var 49:45 fyrir Tindastól.
Njarðvíkingar náðu síðan
að jafna í tvígang í upphafi
seinni hálfleiks, en eftir það
sögðu Tindastólsmenn skilið
við gestina, og munaði þar
mestu um stórleik Haraldar
Leifssonar, sem skoraði drjúgt
auk þess að rífa niður hvert
frákastið af öðru. Til að mynda
skoraði Halli sjö stig úr söntu
sókninni unt miðjan hálf-
lcikinn. Tindastóll náói mcst
16 stiga mun, en gestimir náðu
að klóra í bakkann undir lokin
og ntinnka niuninn, en öryggi
Tindastólsmanna á vítalínunni
í lokin gerði það að vcrkum að
sigurinn var aldrei í hættu.
Það voru Haraldur og Valur
sem voru bestir í Tinda-
stólsliðinu, en annars léku allir
vel. Páll baróist geysilega vcl í
vörninni og hélt spilinu gang-
andi. Cliris Moore fellur alltaf
betur og betur inn í liðið, og
þrátt fyrir aó þjást af „bólu-
sótt“, stóð hann sig eins og
hetja. Þá lék Pétur Vopni mjög
vcl, sérstaklega í fyrri hálf-
leiknum, og þeir Karl og Hinrik
komust vel frá leiknum. Har-
aldur og Valur skomðu 25 stig
hvor, Moore 18, Pétur Vopni
12, Páll 10, Hinrik 6 og Karl 2.
Teitur og Rondey skomðu hvor
uni sig 23 stig fyrir Njarðvík.
Leiðrétting
I frétt um skipan nýs hafnar-
varðar á Skagaströnd fyrir
skömmu í blaðinu, var ranglega
sagt að Birgir Arnason fyrr-
verandi hafnarvörður hefði
skroppið til Irlands meó krötum
í Hafnarfirði. Hið rétta er aö
Birgir fór ásamt nokkrum
starfsmönnum frystihúss Hóla-
ness til Irlands. Er Birgir og
kratar í Hafnarfirði beðnir
velvirðingar á mistökunum.
„Mér sýnist borin von að
leikurinn verði fyrir áramót,
fyrst KKÍ tók þessa stefnu í
niálinu. Við erum ákaflega
óhress með að sama skuli
ekki gilda í kvenna- og karla-
boltanum. Okkur var sagt að
ef báðir aðilar sættu sig ekki
við frestun, yrði leikurinn
gegn Njarðvík í karla-
flokknum settur á strax við
fyrsta tækifæri, þessvegna á
aðfangadag“, segir Þórarinn
Thorlacíus formaður körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls.
Tindastólsmenn eru mjög
ósáttir við að KKÍ skuli hafa
orðið við bciðni Keflvíkinga
um að fresta lcik liðanna í 8-
liða úrslitum Bikarkeppni kvenna
fram yfir áramót, cn KKI setur
það einnig frarn scm afsökun
að dómarar hafi ckki fcngist á
lcikinn nú fyrir jólin. Þórarinn
segist þó ckki sjá að Kefl-
víkingar hagnist á frestuninni,
þar sem þær rcglur séu í gildi
að fyrsta dagsetning lciks ráði
gjaldgengi leikmanna. Björg
Hafsteinsdóttir landsliðskona
fær því ckki að lcika með Kcfl-
víkingum þegar þar að kemur.
Þess má gcta að sigurvegarinn
úr lcik Tindstóls og Keflavíkur
fær Grindvíkinga heim í
undanúrslitum.