Feykir - 22.12.1992, Qupperneq 7
45/1992 FEYKIR7
Húnvetningur kominn út
Kominn er út 16. árgangur
Húnvetnings, ársrits Hún-
vetningafélagins í Reykjavík.
Ritið er að þessu sinni helgað
40 ára afmæli Þórdísar-
lundar, en árið 1952 voru
fyrstu plönturnar gróður-
settar í reitinn hjá Vatns-
dalshólum sem Kristján bóndi
Vigfússon var svo rausn-
arlegur að gefa Húnvetn-
ingafélaginu í Reykjavík.
Lundurinn hefur síðan verið
vettvangur samstarfs heima-
manna og brottfluttra eins og
Ingimundur Benediktsson
rekur í kafla sínum um rækt-
unarstarflð í lundinum í
þessu hefti Húnvetnings.
Ritnefnd Húnvetnings skipa
þeir Bjöm Þ. Jóhannesson, Jón
Torfason og Ragnar Agústs-
son. Þeir þremenningar segja
m.a. í formála sínum að afmæli
Þórdísarlundar hafi leitt til
hugleiðinga um skógræktamiál
í Húnaþingi, sögu þeirra og
stöðu nú. Húnavatnssýsla hafi
ekki verió talin með þcim
hémðum sem hentuðu til skóg-
ræktar, enda hafi forráðamenn
þeirra mála í landinu sneitt þar
hjá garði. Þó hafi þeir verið
reiðubúnir til aðstoóar og leið-
bciningar þegar heimamenn
hafi óskað. Má í því sambandi
nefna birkireitina á þrem jörðum
í Vatnsdal, sem var fyrsta
skógræktartilraun í héraðinu.
Fór vel á því að hún skyldi
einmitt gerð í landnámi Ingi-
mundar gamla. Sú tilraun tókst
miður vel og mun því.ekki hafa
orðið mönnum hvatning.
Birt em ávörp sem flutt vom
í Þórdísarlundi á 40 ára afmæl-
inu, þeirra Aðalsteins Helga-
sonar formanns Húnvetn-
ingafélagsins í Reykjavík, Hauks
Eggertssonar frá Haukagili og
Gríms Gíslasonar frá Saurbæ.
Björn Þ. Jóhannesson skrifar
um skóg og skógrækt í Húna-
þingi og Magnús Olafsson ritar
um Olafslund. Kærkominn
gestur heitir frásöguþáttur eftir
ónefnda húnvetnska konu. Þor-
steinn Konráðsson ritar unt
hjóðfæri og söng í húnvetnsk-
um kirkjum. Guðrún Svein-
björnsdóttir á þrjá frásöguþætti í
ritinu, um glæsimennið Magnús
Sveinbjörnsson prest í Gríms-
tungu, þá rifjar hún upp minn-
ingar úr Skagafirði í byrjun 20.
aldar og ritar einnig smávegis
um ætt Jónasar lfá Kistu. Þóihildur
Sveinsdóttir skrifar um hina
þöglu stétt, Auðunn Bragi Sveins-
son fermeð samantekt um aldur
í þættinum „Nú er ég aldinn að
árum“, Dýrmundur Olafsson
skrifar um bindingsdag og Bjami
Jónsson frá Blöndudalshólum
greinir frá minnisstæðu veðri.
Rússarnir komnir aftur
í fyrrakvöld kom til Sauðárkróks rússneskur togari með
120 tonn af þorski sem Fiskiðjan kaupir til vinnslu. Vonast
er til að löndun ljúki í dag, en fiskurinn verður unninn eftir
áramót. Togarinn er frá Múrmansk eins og sá sem kom
með um 500 tonn í síðasta mánuði, en það hráefni reyndist
mjög vel í vinnslunni. Þessi togari er mun minni en sá sem
kom síðast, eða svipaður að stærð og Skagfiröingur.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin
á liðnu ári
HÚS GA GNAVERSL UN
SAUÐÁRKRÓKS
Félagsleg eignaríbúð
Húsnæðisnefnd Sauðárkróks auglýsir 4ra herbergja 130,9
m2 íbúð að Víðimýri 6, 0301 Sauðárkróki, til sölu.
Áætlað verð íbúðarinnar er kr. 9.000.000,00.
Útborgun er 10% af verði íbúðarinnar og
90% eru lánuö til 43 ára.
Bílgeymsla fylgir íbúðinni, sem greiöist
samkvæmt reglum þar um.
Umsóknarfrestur er til 12. janúar 1993
Upplýsingar veittar á bæjarskrifstofunni og í síma 35133
milli kl. 9-11 mánudaga til föstudaga.
Húsnæðisnefnd Sauðárkróks
Þökkum samstarfið á
liðnu ári og óskum
gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs
Gleðileg jól oggœfuríkt
komandi ár
Þökkum samstarfá árinu
sem er að líða
SJOVArmrrALMENNAR
UMBOÐIÐ Á SA UÐÁRKRÓKI