Feykir - 27.01.1993, Page 3
3/1993 FEYKIR3
Veislustjórinn Pálmi Gíslason frá Grænuhlíð, formaður
UMFI, er hér kominn með kúfaðan disk.
Gísli Pálsson frá Hofi var heiðursgestur samkomunnar og sat til borðs með formanni
Húnvetningafélagsins í Reykjavík Aðalsteini Helgasyni. Systurnar Halldóra og Ingibjörg
Kolka, dætur Páls Kolka, sitja næst Gísla, en gegnt honum Signý Oskarsdóttir kona Aðal-
steins. Fjær situr Jón bróðir Aðalsteins og er hann að spjalla við konu Pálma veislustjóra.
Einar Sigurðsson fyrrverandi verslunarstjóri á Hvammstanga með munninn fullan af
þorramat. Gegnt honum situr Þórður Skúlason fyrrverandi sveitarstjóri á Hvammstanga
og við hlið hans eiginkonan Elín Þormóðsdóttir. Þá kemur Svanhvít eiginkona Guðmundar
Más Sigurðssonar bifreiðarstjóra sem situr við hlið Einars.
Húnvetningafélagar syðra
blóta strax í þorrabyrjun
Húnvetningafélagið í Réykja-
vík hélt árshátíð sína í veit-
ingahúsinu Glæsibæ sl. föstu-
dagskvöld. Samkoman þótti
velheppnuð og var allvel sótt
miðað við veður og færð,
eins og Aðalsteinn Helgason
formaður félagsins komst að
orði. Heiðursgestur var að
þessu sinni Gísli Pálsson á
Hofi og veislustjóri Pálmi
Gíslason frá Grænuhlíð.
Gísli flutti smáávarp á
samkomunni og lýsti yfir
ánægju sinni að hafa verið
boðaður til fagnaðar með
vinum og vandamönnum úr
Húnaþingi.
Boðið var upp á þorramat
eins og vera ber á fyrsta degi
þorra og mættu um 150 manns
á árshátíðina, og á þriðja hundrað
manns stigu dans að lokinni
skemmtuninni. Venjulega hafa
komið skemmtikraftar að norðan
á árshátíðina og ríkt ánægja
með það fyrirkomulag, en að
þessu sinni var notið skemmti-
dagskrár Glæsibæjar, er saman
stóð að svokölluðu söngvaspéi:
þar sem flytjendur eru Ríó-tríó,
Omar Ragnarsson og Ragnar
Bjarnason.
Borð svignuðu undan kræsingum 1 björtum og vistlegum
salarkynnum veitingahússins Glæsibæjar þar sem
Húnvetningafélagið í Reykjavík hélt árshátíð sína.
„Það er varla hægt að stefna
fólki til ferðalaga eins og tíðar-
farið hefur verið undanfarið'1,
sagði Aðalsteinn Helgason for-
maður Húnvetningafélagsins.
Hann segir félagsskapinn dafna
nokkuð vel og ágætan kjarna
taka þátt í starfseminni. Meðal
annars er komið saman viku-
lega og spilaður brids í Húnabúð.
Útsalan er í flillum gangi!
* Vorum að fá
Kiddy-vörurnar
á útsöluna.
* Lítið inn og
gerið góð kaup.
Verslunin
Aðalaötu 21 - Simi 36636
Munið áskriftargjöldin!
Þeir sem enn kunna að hafa t fórum sínum
ógreidda gíróseðla fyrir áskriftargjöldum eru
beónir aó greióa hió allra fyrsta. Þeim sem
glataó hafa gíróseóli skal bent á aö hægt er að
millifæra áskriftargjaldið á reikning Feykis nr.
8029 í útibúi Búnaóarbankans á Sauóárkróki.