Feykir - 27.01.1993, Síða 6
6FEYKIR 3/1993
U 1,1 rprpy CJ A A Texti: Kristján J. Gunnarss.
\JIvlL 1 1 Iðu Vjr\ Teikningar: Halldór Péturss.
33. Þaö bar til á öndveróum vetri, að híðbjörn
einn grimmur hljóp úr híði sínu og varð svo ólmur,
að hann eirði hvorki mönnum né fé.
Dag nokkurn kvaddi Þorkell til fylgdar menn
sína að leita, hvar híði bjarnarins væri. Þeir fundu
þaó í sjávarhömrum. Þar var hamraklettur einn og
hellisskúti framan í hamrinum, en einstigi til að
ganga. Bjarg var undir hellinum og urö.
34. Bjöm kvað vera að gert hið mesta, er híðið
var fundið. „Skal ég nú prófa“, sagði hann, „hversu
leikur fer með okkur nöfnum".
35. Á jólum fór Þorkell sjálfur til híðisins og
þeir átta saman. Þar var þá Björn og Grettir og
aðrir fylgdarmcnn Þorkels. Grettir hafði yfir sér
loðkápu og lagði hana af sér, meðan þeir sóttu að
dýrinu. Þar var óhægt á að sækja, því að ckki
mátti við koma nema spjótalögum, og beit hann
þau af sér. Bjöm eggjaði þá mjög til aðsóknar, en
þó gekk hann eigi svo nærri, að honum væri við
nokkru hætt.
Og er minnst varði, þrífur Bjöm kápu Grettis
og kastaði í híðið til bjamarins. Ekki gátu þeir að
gert og hurfu aftur er á leið daginn.
Það var eina nótt að Bjöm fór til híðisins.
Hann varð var við að dýrið var þar fyrir og grenj-
aði illilega. Björn lagðist niður við einstigið og
hafði yfir sér skjöldinn og ætlaói að bíða þar til er
dýrið leitaði brott eftir vanda. Syfjaði hann mjög og
getur ekki vakað. Og í þessu ræóur dýrið úr híðinu,
krækir til hramminum og hnykkir af honum skild-
inum og kastar ofan fyrir bjargið. Bjöm bregður við
hart, er hann vaknar, tekur til fóta og hleypur heim.
Gerðu menn að þessu hið mesta gabb.
36. Og er þeir höfðu gengið um hríð, slitnaði
hosnaskerta Grettis. Þorkell bað þá bíða hans.
Grettir kvað þess eigi þurfa.
Þá mælti Bjöm: „Eigi þurfið þér það að ætla,
að Grettir renni frá kápu sinni, mun hann vilja
hafa frægð af og drepa einn dýrið, það er vér
höfum frá gengið átta.
Nú bar leiti á milli þcirra. Grettir snéri þá aftur
aö einstiginu. Var þá ekki að metast vió aðra um
atgöngu. Hann brá þá sverðinu Jökulsnaut, en
hafði hönk á meóalkaflanum á saxinu og smeygði
á hönd sér.
Tindastóll á sigurbraut á ný:
Sigur á Breiðabliki í köflóttum leik
Tindastólsmcnn eru komnir á
sigurbraut á ný cftir sigur á
Brciðabliki sl. sunnudags-
kvöld, en ncðsta lið Úrvals-
dcildarinnar velgdi gestgjöf-
unum verulcga undir uggum í
leiknum, sem var bráðfjör-
ugur en afar köflóttur, þannig
að liðin skiptust á forustunni
langt fram eftir lciknum. Það
var ekki fyrr en fimm mín-
útum fyrir lcikslok sem Tinda-
stólsmenn gerðu út um lcikinn
með góðum lcikkafla.
Breiðabliksmenn mættu
ákveðnir til lciks, með þá vissu í
farteskinu að sigur þýddi von
um betra gengi á næstunni sem
jafnvel dygði til að hífa liðið
upp úr falísætinu. Með tapi hefði
verið komið allmikil pressa á
Tindastól, sem þrátt fyrir sigur í
leiknum, er meðal neóstu liða í
Úrvalsdeildinni.
Leikurinn var mjög jafn
lengst af og svolítið sveiflu-
kenndur. Liðin skiptust á forustu
og oft var jafnt á tölum. Tinda-
stóll náði til að mynda átta stiga
forskoti undir lok fyrri hálfleiks
44:36, en Breiðabilksmönnum
tóks að jafna 46:46 og Tinda-
stóll var aðeins tveim stigum
yfir í leikhléi, 48:46.
Áfram héldust sveillurnar í
seinni hálfleiknum og eins og
áður segir tókst heimamönnum
ekki að hrista gestina af sér fyrr
en fimm mínútum fyrir leikslok,
en þá náðu þeir stöðunni í
90:80. Með skynsömum leik á
lokamínútunum var sigurinn
aldrei í hættu og lokatölur urðu
102:91.
Raymond Foster átti góðan
leik fyrir Tindastól, hirti fjöldan
allan frákasta og skoraði drjúgt.
Valur Ingimundarson lék einnig
skínandi vel svo og Páll Kol-
beinsson. Karl Jónsson átti góða
spretti, og þeir Hinrik Gunnars-
son og Ingvar Ormarsson komu
mjög sterkir inn í leikinn. Foster
skoraði 37 stig, Valur 28, Hinrik
10, Páll 8, Pétur Vopni og
Ingvar 6 hvor, Karl 5 og Ingi
Þór Rúnarsson 2.
Áhorfendur í Síkinu urðu
vitni aó ótrúlegri eigingirni
Bandaríkjamannsins í liði gest-
anna, Joe Right. Hann skoraði
45 stig í fjölmörgum skotum og
var haldið vel nióri af Páli Kol-
bcinssyni og Ingvari Ormars-
syni, en fram til þcssa hefur
þessi stórskemmtilegi leikmaður
skorað yfir 50 stig. Að þessi
sinni skemmdi hann þó fyrir liði
sínu mcð eigingirni sinni.
Næsti leikur Tindastóls verður
gegn Skallagrími í Borgarnesi á
sunnudaginn kemur. Scm kunn-
ugt cr tapaði Tindastóll fyrir
Snælelli í undanúrslitum bik-
arsins um fyrri helgi, en árangur
liðsins er samt sá besti í Bikar-
keppninni hingað til.
Skotið upp flugeldum á Gilsstöðum, þar sem áramóta-
brenna Staðhreppinga var eins og undanfarin ár.
Þrettándinn kvaddur
bæði í Staðarhreppi
og Laugarbakkaskóla
Hér í Staðarhreppi voru gamla
árið og jólin kvödd með við-
cigandi hætti. Hér hefúr síðustu
ár verið höfð brenna á þrett-
ándakvöld jóla. Það var cinnig
gert í ár, en reyndar nokkrum
dögum fyrr, og þar hugsað um
að þeir sem ekki eru heima yfir
veturinn en koma heim um jólin
geti verið með. Safnað var í
ágæta brcnnu hjá Gilsstöðum
sem ungmennafelagið Dagsbrún
sá um og eftir kvöldmat var
kveikt í brennunni að viðstödd-
um flestum hreppsbúum. Veðrið
var ágætt en svolítið kalt. Allir
skemmtu sér vel.
Skotið var upp flugeldum,
sungið og rabbað saman um
daginn og veginn. Eftir að hafa
verið í nokkurn tíma hjá brenn-
unni var farið í barnaskólann að
Reykjum. Þar var spiluð vist,
síðan fengið sér kaffi, kakó og
auðvitað meólæti. Þá var komið
að skemmtiatriðunum. Kristján
ísfeld las upp sögu í léttum dúr.
Laufey Kristín Skúladóttir lék á
þvertlautu, leikið var stutt gaman-
leikrit í samantekt Kristínar
Þorsteinsdóttur og síðan var fjölda-
söngur við undirspil Olafar Páls-
dóttur. Þegar skemmtiatriðum var
lokið fór fólkið að lcggja af stað
hcim.
Þrettándagleði í
Laugarbakkaskóla
Þar sern allt skólahald á Laug-
arbakka féll niður síðustu vikuna
fyrir jól og nemedur fengu enga
jólaskemmtun var haldið upp á
þrettándann í skólanum.
Strax um morguninn söfnuó-
ust allir krakkamir og kennarnir
saman fyrir utan skólahúsið.
Reyndar var svolítið kalt í veðri
en fólk fann ekkert til þess þegar
flugeldum var skotið á loft. Aö
því búnu var farið inn að nýju
og hver bekkur fór í sína stofu
og var þar ásamt umsjónarkenn-
ara sínum til hádegis. Þar var
spilað á spil, bingó og margt
annað sér til skemmtunar gert. Þá
var korninn matur, og búió var
að velja þjóna úr elstu bekkjunum
sem sáu um að setja á diskana og
var sannkallaður jólamatur, híingi-
kjöt og þess háttar og ís á eftir.
Eftir matinn fóru allir út í nýja
íþróttahúsið. Þar kom hver bekkur
með citt skemmtiatriði, og aó
þeim loknum voru sungin nokkur
lög. Skóladeginum var þar meö
lokið og allir fóru heim til sín.
Um kvöldið var grímuball og
sinn tíma þarf til undirbúnings
því. Grímuböll hafa vcriö haldin
undanfarin ár, en þetta var í
fyrsta sinn sem þrcttándagleði
var í skólanum.
Sóley Lára Arnadóttir nemandi í Laugarbakkaskóla. Ungur
pistilritari Feykis í Vestur-Húnavatnssýslu.
Þiymarari
Aðalfundur
Knaftspymufélaásins
Þrvms verður föstu-
dasinn 29. janúar í húsi
Framsóknarflokksins að
Suðursötu 3. Fundurinn
hefst WL 20.30.
Fiölmennum!