Feykir


Feykir - 21.04.1993, Qupperneq 5

Feykir - 21.04.1993, Qupperneq 5
14/1993 FEYKIR5 Bræðrasveitin íslandsmeistarar „Þetta er hlutur sem enginn reiknaði með. Við höfum þvælst í hópi átta bestu sveit- anna undanfarin ár, en svo sem ekkert reiknað með því að komast á toppinn. Því var sig- urinn enn sætari fyrir vikið og sjálfsagt hafa menn álitið að þetta væri ekki hægt, þar sem að við heimsmeistarana var jú að etja í úrslitunum“, sagði Bogi Sigurbjörnsson einn Skeiðsbræðranna svoköliuðu í Islandsmeistaraliði Sparisjóðs Siglufjarðar, sem að skipuð var hinni fræknu bræðrasveit frá Siglufirði. Þetta er í fyrsta skipti sem sveit af landsbyggð- inni vinnur til Islandsmeistara- titils í brids. Siglfiróingar sem og margir bridsspilarar um landið sam- glöddust sigursveitinni þegar úr- slitin lágu fyrir á páskadag. Eng- inn var þó glaðari cn fermingar- drengurinn Birkir Jónsson sonur Jóns Sigurbjömssonar fyrirliða sveitarinnar og bróöir þeirra Olafs og Steinars, en hann öskraöi upp og grýtti símanum í vegginn þegar hann fékk fregnimar frá fööur sínunt. Birkir haföi lítið sofiö nóttina áður af spcnningi. Hann neitaði því að faðir sinn slaufaði spilamennsku í úrslitun- unt vcgna femtingarinnar sem var á skírdag, en óskaði þess í stað að hann færði sér bestu fermingargjöfina, Islandsmeist- aratitil. Sú ósk varð uppfyllt og fögnuður fjölskyldunnar var mikill í síðbúinni femiingarveislu sent haldin var á páskadag. Á undanfömum ámm hefur bræðrasveitin frá Siglufirði oft náð glæsilegum árangri, yfirleitt sigrað á öllum mótum hér Norð- anlands og skipað sér framarlega á Islandsmóti. Besti árangur sveitarinnar fyrir mótið nú var 4. sæti, en tveir liðsmenn sveitar- innar, bræðumir Steinar og Olaf- ur sigmðu í tvímenningi á Is- landsmóti unglinga í vetur. Eins og áður segir em þeir Sigurbjömssynir kenndir við Skeið í Fljótum. Bogi segir for- eldra sína hafa verió mikió spila- fólk og líklega verið byrjað að spila brids í Fljótum um 1950. Að minnsta kosti hafi móðir sín spilað hörkubrids þegar þau fluttu til Siglutjaröar 1959. , JÉg man eftir að það var bæði spilað og teflt mikið í Fljótunum. Taflmennskan skipaði þar önd- vegi og áhuginn var svo mikill að það var kornið á mótum á nokkmm bæjum og menn fóm á milli og tcfldu grimmt'*, segir Bogi en getur þess einnig að bridshefðin sé gífurlega rík á Siglufirði. Þar hafi fyrsta bridsfé- lag landsins verói stofnað 1938. Jón Sigurbjömsson fyrirliði liðs Sparisjóðs Siglufjarðar var spurður að því hvort til greina kæmi að sveitin færi nú aö spila Hátíð handverka- fólks á Hrafnagili Átaksverkefnið Vaki og samstarfshópurinn Hagar hendur ásamt flciri aðilum áætla að standa fyrir hátíð handvcrkafólks dagana 18. og 19. júní n.k. að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Unt er að ræða sýningu og sölu á hand- vcrki bæði til endursöluaðila og endanlegra kaupcnda. Fyr- irhugað cr að bjóða endur- söluaðilum og fjölmiðlafólki að skoða og semja um kaup áður en opnað veróur fyrir al- mcnning. Einnig verða kvadd- ir til framleiðcndur og hcild- salar scm framleiða og/eða sclja umbúðir, merkimiða, hrácfni og annað scm hand- vcrksfólk notar við fram- leiðslu sína. Hrafnagil cr staðsctt í hinni gróðursælu Eyjafjarðarsveit u.þ.b. 10 km frá Akureyri. Þar er glæsilcgt íþróttahús með góðri aðstöðu til þess að setja upp veglega handverkssýn- ingu. Þar verður einnig boðið upp á aðstöðu fyrir fundi, stutt námskeið og sýnikennslu fyrir handverksfólk. Nægilcgt gistirými er á svæðinu á hótelum, í sumar- húsum, í bændagistingu og á tjaldstæðum, allt eftir óskum hvers og eins. Einnig er greið- ur aðgangur að veitingastöð- um. Ymis konar afþreying verður til staðar, s.s. aðstaða til iþróttaiðkana, hestaleiga, ævintýraferðir um svæðið og óvæntar uppákomur. Framleiðendum, endursölu- aðilum og heildsölunt sem á- huga hafa á þátttöku og nánari upplýsingum er bent á að hafa samband við Elínu Antons- dóttur síma 96-26200 eða Petru Hallmannsdóttir síma 96-31314 fyrir 10. maí n.k. (fréttatilkynning). íslandsmeistarar í brids, sveit Sparisjóðs Siglufjarðar. í fremri röð eru Björn Jónasson spari- sjóðsstjóri fyrir miðju og honum á vinstri og hægri hönd bræðurnir Olafúr og Steinar Jónssynir. I aftari röð eru frá vinstri Ásgrímur Sigurbjömsson, Anton Sigurbjömsson, Bogi Sigurbjömsson og Jón Sigurbjömsson. erlendis ef boð kæmi um slíkt. Jón taldi það fremur ólíklegt og sagði eitthvað á þá leið að grobb- ið í þessu fælist í því að vera Siglfirðingar og þaó dygði þeim alveg. Stuðningur bæjarbúa við bridsspilarana er mikill. Bæjar- stjórnin hélt þeim samsæti við heimkomuna og afhenti Kristján Möller forseti bæjarstjómar vió það tækifæri 100 þúsund króna ávísun sem smá þakklætisvott frá bænum fyrir frækilega fram- göngu á Islandsmótinu. Messað í Blönduós- kirkju í síðasta sinn Gamla kirkjan á Blönduósi, sem byggð var 1895 af Þorsteini Sigurðssyni þeim sama er byggði Sauðárkrókskirkju, hefur væntanlega lokið sínu hlutverki sem guðshús staðarbúa. Séra Árni Sig- urðsson, sem þjónað hefur í kirkjunni í aldar- fjórðung, messaði þar í síðasta skipti á páska- dagsmorgun. Ákveðið hefur verið að hin nýja og glæsilega kirkja Blönduósinga verði vígð 1. maí næstkom- andi. Iðnaðarmenn eru þessa dagana að leggja síð- ustu hönd á að ljúka þeint áfanga kirkubyggingar- innar sem vera á tilbúinn fyrir vígsluna. Nýja kirkj- an setur mikinn svip á bæinn við Blöndu, þar sem hún stendur hátt við innkeyrsluna í bæinn að norð- anvcrðu. Mynd Sigurður Kr. Jónsson. Nú er vor í lofti og rétti tíminn til að skipta yfir á sumardekkin. Flestar stærðir fyrirliggjandi, sóluð og ný. KS bílabúð

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.