Feykir


Feykir - 06.10.1993, Blaðsíða 5

Feykir - 06.10.1993, Blaðsíða 5
34/1993 FEYKIR5 Skagafjörður hefur um margt sérstöðu varðandi fuglalíf Nú um aðra helgi í október (9. og 10.) gengst Birdlife Inter- national fyrir alþjóðlegum fúgla- dögum um jörð alla. Fuglavemd- arfélag íslands hefur veg og vanda að dögum þessum á ís- landi. Tilgangur þessara daga er í stómm dráttum þríþættun Að fá sem flesta út að skoóa fugla, vekja athygli á fuglavemd og bú- svæðum fugla. í greinarstúfi þess- um er stiklað á stóm varðandi fuglalíf í Skagafirði. Skagafjörður hefur um margt sérstöðu þegar hann er borinn saman við önnur landsvæði hér- lendis. Það sem gerir hann ein- stæðan í náttúrfarslegu tilliti em vötn og víðfem mýrlendi sem setja mikinn svip á umhverfið þar. Mýrlendin ná svo að segja allt frá Vallhólma norðanverðum með Héraðsvömum, bæði að austan og vestan, allt út að sjó. Mýrar þessar em víða óspilltar og er vemdargildi þeirra ótvírætt sér- staklega nú á dögum þegar óraskaðar mýrar em vandfundn- ar. Nú er einungis eitt friðað svæði í Skagafirði en það er Miklavatn og Skógar. Á Mikla- vatni fella árvisst um og yfir 150 álfdr flugfjaðrir ásamt þúsundum grágæsa. Svæðið mun hafa al- þjóðlegt vemdargildi a.m.k. ef tekið er tillit til hins mikla fjölda grágæsa sem þar fellir flugfjaðrir. Ekki væri úr vegi fyrir íslendinga að steíha að því að næsta Rumsar svæði yrði Miklavam og Skóga- svæðið. I Islandi em eins og er einungis tvö Rumsar svæði. Það er Mývatn-Laxársvæðið og Þjórs- árver. Reyndar er spuming hvort einhver tilgangur sé með því að ífiðlýsa landsvæði, þar sem mörg dæmi em um að ífiðun virðist engu máli skipta þegar hagsmun- ir mannsins rekast á við náttúm- vemd. Eitt skýrasta dæmið í því eíni er friðun Mývatns og árekstr- ar við hagsmuni mannsins þar. Það verður þó að vera von manna að úr rætist og stjómvöld hætti að nota hentistefnu sem farveg fyrir umhverfismál. Ljóst er að mörg önnur svæði en Miklavatn og Skógar hafa mikið vemdargildi. Það þarf ekki að leita lengra en að Áshildar- holtsvatni, en þar heldur sig oft mikill fjöldi anda. I raun og vem em undarlegt að vatnið skuli ekki vera innan Miklavams-Skóga ífiðlandsins. Austara-Eylendið er einnig mjög fjölskrúðugt svæði, sérstaklega er fuglalíf við Garðs- vatn og mýramar í nágrenni þess fjölbreytt. Við Garósvatn er einn helsti varpstaður flórgoða noiðan- lands. Þar verpur einnig nokkuð af öndum ásamt hettumáfsvarpi svo nokkuð sé nefnt. Mikið fluglalíf er einnig við sum vatn- anna í Hegranesi. Flórgoði veipur við nokkur þeirra svo og einnig við Stapavatn sem er innarlega í Skagafirði. Vötnin og umhverfi þeirra em meikileg fyrir þær sak- ir að þar þrífst flórgoðin, ein þeirra íúglategunda sem nú stend- ur höllum fæti í lífríki landsins. Til sölu fimm herbergja einbýlishús að Hvannahlíð 7 Sauðárkróki. Húsiö er 136 fermetrar. Skipti koma til greina á minna/eldra húsnæði niöri í bænum. Nánari upplýsingar í síma 35065 á kvöldin. t Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar Valbergs Hannessonar fyrrv. skólastjóra í Fljótum sem lést 17. september síóastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda Áshildur M. Öfjörö. Sennilegt er að framræsla og til- koma minks eigi hvað stærstan þátt í fækkun flórgoðans hérlend- is. Drangey er einnig að mörgu leyti merkileg m.a. er þar ein stærsta sjófúglabyggð við Norð- urland. Láglendi Skagafjaróar, votlendi og ræktarlönd em mikil- væg á alþjóðlegum mælikvarða, því að þar koma við hvert vor þúsundir helsingja á leið sinni til vaipstöðva á Grænlandi. Enn sem komið er má segja að stór svæði í Skagafirði hafi ekki orðið fyrir neinni vemlegri rösk- un af völdum mannsins. Það er vonandi að þau svæði sem enn em óspillt verði það um ókomna framtíð, þannig að það líffíki sem þar hefur dafnað og þróast í ald- anna rás geri svo enn um ókomna framtíð. Fyrir hönd Fuglavemdunarfé- lags íslands Ólafiir Einarsson. Ertu í sambandi við þína heimabyggð? \7iltu fylgjast með því sem er að gerast á Norðurlandi vestra? gýrð þú eða einhver náinn vinur þinn ljarri heimabyggð? Áskrift að Feyki tryggir að engar stærri fregnir fari fram hjá þér, og samband þitt við heimahagana helst Feykir óháð firéttablað á Norðuriandi vestra Shnar (95)35757 og 36703 Ferskt fréttablað ! Augljós auglýsingamiðill!

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.