Feykir - 13.10.1993, Blaðsíða 7
35/1993 FEYKIR7
Framsóknarkonur láta í sér heyra
Óœypissmáar
Til sölu MMC L-300 2000 4wd
árgerð 1991 ekinn 43 þúsund km
til sölu. Upplýsingar í síma 95-
Sjötta landsþing Landssam-
bands framsóknarkvenna haldið
að Hallormsstað 9.-10. október
1993 telur atvinnuleysið eitt
mesta böl nútímans. Þingið telur
að á samdráttartímum eigi að
leggja höfúðáherslu á að styrkja
atvinnulífið og jafna kjör lands-
manna. Það verður m.a. gert
með lækkun raunvaxta. Þingið
telur að endurskoða beri það
stuðningsform sem nú er við at-
vinnulausa. Bætur veröi í ríkara
mæli greiddar til átvaksverkefna
svo og endurmenntunar og
starfsþjálfunar.
Landsþing LFK lýsir þungum
áhyggjum yfir ómarkvissum og
fálmkenndum niðurskurði á vel-
ferðakerfmu, sem verst kemur
niður á þeim sem minnst mega
sín. Þingið mótmælir heilsukort-
um, uppsögnum starfsfólks á
leikskólum sjúkrahúsa, lokun
meðferðarstofnana og niður-
skurði í menntakerfinu. Þá ber
að fordæma skattlagningu á bók-
um og ferðaþjónustu sem er einn
helsti vaxtabroddur atvinnulífs.
Þingið lýsir megnri andstöðu
við þá frjálshyggjustjóm sem nú
er við völd. Fjármagn flyst á
fárra hendur og launabilið
breikkar. Er svo komið að 20%
launþega sem hæstar tekjur hafa
fá 44% af heildaratvinnutekjum.
Þingið hvetur verkalýðshreyf-
inguna til átaka gegn slíkum
ójöfnuði og óréttlæti. Spamaðar-
hjal ríkisstjórnarinnar verður
marklaust á meðan spilling og
sukk viðgengst og stöðubrask er
daglegt brauð. Þessi sundurlynda
ríkisstjórn er rúin öllu trausti.
Henni ber að segja af sér.
Alls staðar sjást merki þess
hvernig farið getur ef molnar
undan grunni fjölskyldunnar og
þar með uppeldi í landinu. Þing-
ið væntir þess aó það ár sem nú
fer í hönd, ár fjölskyldunnar,
verði notað til þess að móta
stefnu í málefnum hennar. Skýra
þarf ábyrgð foreldra svo og
stuðning samfélagsins við fjöl-
skylduna. Allt of lengi hefur
dregist að leikskólar væru fyrir
öll böm og skólar einsetnir.
Um næstu áramót tekur gildi
samningur um evrópskt efna-
Vífill gefur
til sundlauga
Nýlega gaf Kiwanisklúbb-
urinn Vífill Breiðholti öllum
sundlaugum landsins veggspjald
með leiðbeiningum um blást-
ursaðferð og hjartahnoð. Gjöf
þessi er liður í átaki um
öryggi á sundstöðum. Gerð
veggspjaldsins var unnin í
samvinnu við Slysavamar-
félag íslands og Rauða kross
Islands. Reynir Karlsson deild-
arstjóri hjá menntamála-
ráóuneytinu tók við gjöfinni
og mun menntamálaráðu-
neytið sjá um dreifmgu vegg-
spjaldsins. (fréttatilkynning)
hagssvæði. Engar upplýsingar
um hvað tekur þá við koma frá
stjómvöldum og er það ámælis-
vert. Landsþingið átelur ríkis-
stjórnarflokkana fyrir það að
þjóðin fékk ekki tækifæri til að
segja álit sitt á samningnum um
evrópskt efnahagssvæði í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Við Islendingar getum fagnað
því að eiga fagurt land, hreint
loft og gjöful fiskimið. Á 50 ára
afmæli lýðveldisins á næstu ári
óska framsóknarkonur þess að
þjóðin verði laus við það úr-
ræða- og athafnaleysi sem ein-
kennt hefur stjóm landsmála á
þessu kjörtímabili og við taki
stjóm Framsóknarflokksins sem
setur manngilid ofar auðgildi.
Sveitarstjórnarkosning-
ar að vori
Sjötta landsþing LFK haldið
á Hallormsstað 9.-10. október
1993 hvetur framsóknarfélögin í
landinu til að bjóða fram undir
merkjum flokksins við komandi
sveitastjórnarkosningar. Þingið
fagnar aukinni þátttöku fram-
sóknarkvenna í sveitarstjómum
á þeim 12 árum sem landssam-
bandið hefur starfað, eða úr 11%
í 30%. Þá er það fagnaðarefni
hve nú er mikill áhugi hjá kon-
um að taka sæti á framboðslist-
um að vori. Þingið minnir á fyrri
samþykktir LKF: „að kona skipi
annað tveggja efstu sætanna og
hlutur kvenna á framboðslistum
sé ekki minni en 40%.
Þingið ítrekar að sérstök þörf
er á þátttöku kvenna í stjómmál-
um á tímum versnandi afkomu
þjóðarbúsins. Óþolandi óvissa
ríkir um ífamtíðina og hag heim-
ilanna er stefnt í voða með stór-
auknum álögum. Allar fram-
sóknarkonur þurfa að leggja sitt
lóð á vogarskálamar.
Atvinnumál
í því vaxandi atvinnuleysi
sem nú er á Islandi hljótum við
að líta til þeirrar efnahagsstefnu
sem ríkisstjóm Davíðs Oddsson-
ar hefur keyrt áfram nú tvö ár
með vítahring vaxandi atvinnu-
leysis og minnkandi landsfram-
leiðslu. Hávaxta- og gjaldþrota-
stefna ríkisstjómarinnar ásamt
úrræðaleysi og bölmóði hamlar
atvinnuuppbyggingu og brýtur
niður velferðarkerfið, fyrirtækin,
heimilin og einstaklingana.
Við framsóknarkonur viljum
velja þær leiðir í þjóðarbúskapn-
um sem tryggja fólki atvinnu,
mannsæmandi laun og félagslegt
öryggi. Vinna fyrir alla er ský-
laus krafa okkar, það em sjálf-
sögó mannréttindi. Vinnuafl er
auðlind sem við eigum að virkja
til uppbyggingar. Nýja vaxta- og
efnahagsstefnu þarf til að nýta
okkar mörgu fjárfestingartæki-
færi, við þörfnumst uppbygging-
arstefnu í stað niðurrifs.
Rjúpnaveiði bönnuð!
Öllum óviðkomandi er bönnuð
rjúpnaveiði í landi Skarðs í Skarðs-
hreppi.
Til sölu!
Til sölu haglabyssa og vara-
hlutir. Maverick haglabyssa (am-
ersísk) fimm skota semi auto-
mat 2,75 og þriggja tommu.
Landcmser hásingar, fjögurra
gíra kassi og millikassi. Einnig
sex cylindra bensínvél í Toyota.
Upplýsingar í vinnusíma 97-
11449 (Þórir) eða í heimasíma
97-11922.
35853.
Til sölu Subaru station 4wd
árgerð 1986. Ekinn 110 þúsund
km. Mjög vel með farinn. Skipti
á ódýrari koma til greina. Upp-
lýsingar í síma 36473 eða 35711.
Ólöf.
Til sölu Yamaha stofuorgel,
lítið notað. Upplýsingar í síma
95-35438.
Til sölu góður bíll, tilbúinn í
snjóinn, Subaru station árgerð
1986 ekinn 134 þúsund km.
Upplýsingar í síma 35065.
Aðalfundur Foreldra- og
starfsmannafélags
Gagnfræðaskóla Sauðárkróks
Verður haldinn miövikudag 13. október kl. 20,30
í Gagnfræóaskólanum.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur
mál. Erindi flytja Sigríöur Sigurjónsdóttir
sálfræóingur og Sveinn Allan Mortens uppeldis-
fræðingur.
Heitt á könnunni.
Vilt þú fá fréttir úr heimahögum?
- Eru búferlaflutningarframundan?
Hvernig væri að gerast áskrifandi að bæjar- og/eða héraðsfréttabiaði?
Skagablaáid
Akranes og nágrénni
Vikublað, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 150 á
tbl. S: 93-12261,93-11397 fax: 93-13297
FJflRÐflR
póstunnn
Hafnarfjörður og nágrenni
Vikublað, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 110 á
tbl. S: 91-651945,91-651745 fax: 91-650745
—
Vestmannaeyjar
VikublaS, tlmmtudaga. Póstáskr. kr. 3.400 á
ári. S: 98-11210 fax: 98-11293
Víkurfrcttir
Suðurnes
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 3.300 á
ári. S: 92-14717, 92-15717 fax: 92-12777
Austurlandskjördæmi
VikublaO, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 380 á
mán. S: 97-11984 fax: 97-12284
Vestfírðir
VikublaB, inið-
vikudaga.
Póstáskrift kr.
1.500 hálfsárs-
lega.
S: 94-4560,
94-4570
fax: 94-4564
Eystra-
horn
A-Skafta-
fellssýsla
Vikubl. fimmtd.
Póstáskr. kr. 105
á tbl.
S: 97-81505,
fax: 97-81821
(Póstb. Höfn)
Norðurland vestra
Vikublað, miðvikudaga. Póstáskr. kr. 110 á
tbl. S: 95-35757, 95-36703, fax: 95-36162
BORGFIRÐINGUR
Borgarnes og Borgarfjörður
Hálfsmánaðarl. fimmtudaga. Póstáskr. kr.
1.500 bálft ár. S: 93-71312 fax: 93-72012
Vestmannaeyjar
Vikublað, föstudaga. Póstáskr. Greiðsla á
flutningsgj. S: 98-11500 fax: 98-11075
Húsavík og nágrenni
Vikublað, fimmtudaga. Póstáskr. 120 kr. á tbl.
S: 96-41780 fax: 96-42211
Ólafsfjörður
Vikublað, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 140 á tbl.
S: 96-62558, 96-62370, fax: 96-62630
BÆJARPOSTURINN
Dalvík og nágrenni
Vikublað, fimmtudaga. Póstáskr. kr. 500 á
mánuði. S: 96-61476, fax: 96-61099
Austurland
Austurland
Vikublað, miðvikudaga. Póstáskr. kr. 1.050
ársfjórðl. s: 97-71750,97-71571 fax: 97-71756
Samtök bæjar- og héraðsfréttablaða