Feykir - 15.02.1995, Blaðsíða 5
7/1995 FEYKIR5
Munstrið nákvæmlega eins úr prófkjörum
framsóknar- og sjálfstæðismanna
Prófkjörsstríð eru nú að baki og einungis tæpir tveir
mánuðir til þingkosninga. Þess sjást þó lítil merki að
svo skammur tími sé til kosninga og oftast áður hefúr
sjálfsagt verið meira líf í pólitíkinni en nú er. Samt
hefúr þess orðið vart upp á síökastið að frambjóðend-
ur eru farnir að grípa tU stQvopnsins og þeim fjölgar
nú mjög greinunum frá þingmannsefnunum í stóru
dagblöðunum, Mogga og DV. Stjórnmálasamtök hér
á svæðinu hafa í rólegheitum verið að koma saman
framboðslistum sínum, og þegar þetta er skrifað er
aðeins einn listi kominn fram, sjálfstæðismenn sam-
þykktu endanlega framboðslista sinn í síðustu viku
eins og fram kemur í frétt í blaðinu í dag. - En það er
kannski ekki úr vegi að fjalla aðeins um þau opnu
prófkjör sem fram fóru hér í kjördæminu í vetur.
Það er nefnilega nokkuð athyglisverð staðreynd að
nákvæmlega sama munstrið er að finna út úr próf-
kjörum sjálfstæðismanna og framsóknarmanna.
Varla ræður tilviljunin ein þessari niðurstöðu, eða
hvað sýnist þér lesandi góður?
Það hlýtur að teljast talsvert sérkennileg staðreynd að
sex efstu sætin í prófkjörum sjálfstæðimanna og fram-
sóknarmanna, skiptast nákvæmlega eins á svæði kjör-
dæmisins. Efstir eru fulltrúar Húnveminga, Hjálmar
Jónsson hjá sjálfstæðismönnum og Páll Pétursson hjá
framsókn. Reyndar kunna einhverjir að halda því fram að
það sé rangt að telja Hjálmar til fulltrúa Húnveminga,
enda hafi það sýnt sig í prófkjörinu að fylgi hans kom
alls staðar að í kjördæminu. Það breytir því þó ekki að
það vom Húnvetningar sem bám Hjálmar uppi á sínum
tíma og hann tekur við því fylgi sem Pálmi á Akri hafði.
Sauðkrækingar og Skagfirðingar eiga annað sætið,
Vilhjálm Egilsson og Stefán Guðmundsson. Vestur-Hún-
vemingur er í þriðja sæti á báðum stöðum, Sigfus Jóns-
son ífá Söndum og Elín Líndal frá Lækjarmóti. Austur-
Húnvemingar eiga fjórða mann, Þóm Sverrisdóttur frá
Stóru-Giljá og Magnús Jónsson frá Skagaströnd. í
fimmta sæti er fulltrúi Sauðkrækinga og Skagfirðinga
Friörik Hansen Guðmundsson og Herdís Sæmundardótt-
ir. Siglfirðingar eiga síðan sjötta sætió, Runólfúr Birgis-
son þáði reyndar ekki það sæti og í hans stað kom Bjöm
Jónasson, en hjá framsókn hrapaði Sverrir Sveinsson úr
fjórða sætinu í það sjötta.
Bullandi hreppapólitík
Nú er það þannig að þegar kemur að prófkjömm tala
rnenn fagurlega um aó forðast beri að vera með einhverja
hreppapólitík, það eigi að velja frambjóðendur eftir
mannkostum ekki eftir því hvar þeir búa, enda beri þeim
útvöldu, þingmönnunum, að vinna fýrir allt kjördæmið.
En það er nú ábyggilcga fjarri lagi að þessi boóskapur nái
fram í prófkjörinu sjálfu. Þar er hreppapólitíkin alveg
bullandi og afhjúpast í öllu sínu tröllslflci.
I ljósi þessa vekur það óneitanlega töluverða athygli
aö Húnvemingar skuli eiga þrjú af fjómm efstu sætunum,
því eins og menn vita er íbúatala Húnavamssýslna um
þriðjungi lægri en Skagafjarðarsýslu að Sauðárkróki
meðtöldum. Samkvæmt lögmáli hreppapólitíkurinnar
hefðu Skagfirðingar því átt að eiga að minnsta kosti tvo
fulltrúa í fjómm efstu sætunum. I prófkjöri framsóknar-
mann kusu t.d. um 1500 úr Skagafjarðarsýslu en 1000 í
Húnaþingi. Það liggur því á borðinu að Skagfirðingar
hafa í ríkum mæli stutt fulltrúa Húnveminga í efstu sætin,
en Húnvetningar líklega margir ekki svarað í sömu mynt.
Þessi staðreynd vekur síðan upp aðrar spumingar, eins
og þær hvort hreppapólitflcin sé krónískari fyrir vestan
Vamskarð en austan, eða hvort Skagfirðingar hafi svona
mikið dálæti á Húnvemingum að þeir U'eysti fulltrúum
þeirra bemr fýrir sínum málum en „eðalbomum" fulltrú-
um síns héraðs, sem reyndar em búsettir á Sauðárkróki
eða í Reykjavík. Sagan segir reyndar að Skagfirðingar
hafi hér áður fyrr ekki haft neitt sérstakt dálæti á ná-
grönnum sínum í Húnaþingi (og gjaman kennt þá við
ómennsku svo sem sauðaþjófhað).
Svo aftur sé vikið að hreppapólitflcinni, þá er það deg-
inum ljósar að talsvert hefur örlað á því að Skagfirðing-
um og Austur-Húnvetningum hefur ekki gengið sem
skyldi að vinna saman. Þama hefur verið talsverð gjá á
milli um langt skeið. Betra orð hefur hinsvegar legið
milli Vestur-Húnveminga og Skagfirðinga, og af þeirri
ástæðu er það kannski mjög skiljanlegt að Vestur-Hún-
vemingur skuli skipa þriðja sætiö, bæði hjá sjálfstæðinu
og framsókn. Mergur málsins er þá sá, að undarlegt sé
að Austur-Húnvemingar séu inni með tvo fulltrúa á báð-
um stöóum.
Það er þó varla hægt að enda þennan pistil öðmvísi en
vflcja orði aö þeirri „meóferð" er Siglfirðingar fá í próf-
kjömm. Báðir em þeir mjög ffambærilegir menn, Run-
ólfur Birgisson og Sverrir Sveinsson, það virðist þó ekki
duga þeim til að komast í þriðja eða fjórða sæti listans, sem
eðlilegt þætti að verðugur fulltrúi Siglfirðinga hlyti í próf-
kjöri. Einhvem veginn er undinritaður orðinn svo fastur í
þessari hugsun að kjördæmið verði alltaf svæðisskipt, og
leita verói eftir því við uppröðun á framboðslista að hvert
svæði fái sinn fulltrúa. En svo sannarlega virðist þessi
hugsun ekki hafa verið við lýði í prófkjömm vetrarins.
Aó síðustu varóandi þessi opnu prófkjör. Menn hljóta
nú að hugsa sig um tvisvar áður en efut verður að nýju til
slíkrar endaleysu. Það er vitað mál að drjúgur hluti manna
úr öðmm flokkum tók þátt hjá sjálfstæðinu og ffamsókn,
sérstaklega hjá framsókn. Það er sérkennilegt þegar trún-
aðarmenn ffamsóknar vestur í sýslum taka þátt í prófkjöri
sjálfstæðismanna, eins og fullyrt hefur verið, og þegar
kosningastjóri Vilhjálms Egilssonar tekur þátt í prófkjöri
hjá framsókn. Pistilritari veit um drjúgan hóp manna sem
þátt tóku í báðum þessum prófkjömm. ÞA.
Gríptu gæsina
meðan hún gefst!
100.000.-
króna afsláttur
út febrúar eða
meðan birgðir endast
MASSEY FERGUSON
390T 4x4 90 hestöfl hliðarskiptur 12x12 gírkassi með vendigír,
vökvadráttarkrókur með sveiflubeisli 2x2 vökvaúttak, óháð aflúttak,
veltistýri, útvarp með segulbandi,tvær miðstöðvar í húsi,
o.fl. o.fl.
MASSEVFERGUSON
Véladeild ===
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
sími 91-674000