Feykir - 15.02.1995, Síða 6
6FEYKIR 7/1995
~7ec&*i: ‘í&áCt4ti
~7extc: 'Þó'iA. s4<u*tu*uÍ4<y.
hinum mikla manni og veitti honum mikið sár. Mað-
urinn brást við fast og þreif til Þorsteins og kippti
honum upp í rúmið hjá sér, en saxið stóó fast í sárinu
og svo fast hafði Þorsteinn lagt að oddurinn stóð í
beðinn. En hinn sári maður var fárrammur og lét þar
standa saxið sem komið var en Þorsteinn lá í milli
þilis og hans.
„Hver er sjá maður er mér hefir áverka veittan?“
,JÞorsteinn heiti ég og er ég son Ketils rums.“
„Eg þóttist vita áður nafn þitt en þó þykist ég frá
ykkur feðgum þessa síst maklegur verið því að ég
hefi ykkur lítið eða ekki meint gert“.
10. Og hinn sári hélt áfram. „Nú varstu heldur til
skjótur en ég heldur til seinn. Ég á alls kost við þig
hvort ég læt þig lifa eða deyja. Ef ég geri eftir verð-
leik og sem þú hefir til stefnt þá segði engi frá
okkarri sameign. En ég ætla það nú ráólegast aó láta
þig þiggja líf og mætti mér verða að þér gagn ef svo
vildi takast. Ég heiti Jökull og er son Ingimundar jarls
af Gautlandi. Aö hætti ríkra manna sona aflaði ég mér
fjár þótt heldur væri freklega ort. En nú er ég búinn
til burtferðar. Ef þér þykir nokkuð veitt með lífgjöf
þinni þá far á fund föður míns en hitt þó fyrr móður
mína er Vigdís hetir. Seg henni þennan atburð og ber
ástsamlega kveðju mína og seg að hún komi þér í
frió vió jarl og fulla vingan með þeim hætti að hann
gifti þér dóttur sína og systur mína er Þórdís heitir.“
11. „Hér er gull er þú skalt bera til jarteina að eg
sendi þig. Mér segir svo hugur að þú munir gæfu-
maður verða og ef þér verður sona auðið eða þínum
sonum, láttu þá eigi nafn mitt niðri liggja.“
Þorsteinn bað hann nú gera sem honum líkaði
um lífgjöf við sig og aðra hluti og kvaðst þar einskis
mundu um biðja.
Jökull sagði: „Eigi eru þeir forustulausir er þú ert
fyrirmaður, sakir áræðis og karlmennsku, en allmjög
muntu hafa verið eggjaður af foður þínum til þessa
verks. Betur er þá séð fyrir fyrir kosti systur minnar
að þú fáir hennar en víkingar fái hana að herfangi".
12. Jökull sagði Þorsteini að fara heldur til eigna
sinna í Raumsdal þótt Gautland sé til boðið. Þóttist
hann sjá ofríki föóurfrænda sinna og hörmungarvíg.
„Seg ekki til nafns míns nema föður mínum og
frændum mínum, því ævin hefur ófögur verið. Mér
er nú goldið að veróugu og fer svo sem flestum rang-
lætismönnum. Tak nú gullið og haf til jarteina en
kipp burt saxinu og mun þá eigi langt verða okkar
viðtal.“
Síðan kippti Þorsteinn burtu saxinu en Jökull dó.
Andrea Dögg Bjömsdóttir kennari við Bamaskóla Sauðárkróks
tekur við talsjánni frá Gunnari M. Hanssyni forstjóra Nýherja
hf. Með þeim á myndinni er Bergþóra Ketilsdóttir starfsmaður
Nýherja hf.
Nýherji gefur tæki
til talkennslu
Nýlega afhenti tölvufyrir-
tækið Nýherji hf. Barna-
skóia Sauðárkróks að gjöf
Talsjá II, tæki sem notast til
kennslu barna sem eiga við
talörðugleika að etja. Hug-
búnaður tækisins er m.a.
myndrænn og er ætlað að
hvetja börnin, einnig þjálfar
tækið raddstyrk og fram-
burð.
Að sögn Andreu Daggar
Björnsdóttur kennara við
Barnaskólann sá hún sams-
konar tæki í Oskjuhlíðarskól-
anum fyrir þremur árum og
fékk þá áhuga fyrir að tækið
yrði fengið til Barnaskóla
Sauðárkróks. Það voru síðan
Nýherjamenn cem voru svo
höfðinglegi: • gefa skólan-
um tækið, sei. kemur til með
að gagnast öllum þeim börn-
um í Skagafirði sem eiga við
talörðugleika að etja.
Sjö lið í 4. deildinni
Aðeins sjö Iið verða í Norður-
landsriðli fjórðu dcildar næsta
KR-ingar koma í heimsókn annað kvöld
„Við erum staðráðnir í því að
cndurtaka leikinn frá því fyrr í
vetur og vinna KR-ingana. Eg
held við eigum góða sigur-
möguleika þrátt fyrir að KR-
ingar mæti með nýjan kana í
lcikinn. Með sigri verðum við
orðnir verulega volgir með sæti
í úrslitakeppninni“, segir Páll
Kolbcinsson þjálfari Tindastóls
sem mætir KR-ingum í Síkinu
annað kvöld. Þetta er fyrsti
heimaleikur Tindastólsmanna í
þrjár vikur. Sögur herma að
KR-ingar hafi fengið tvo
Bandaríkjamenn til landsins tU
að velja úr, en óhcppni þeirra
varðandi útlcndan Icikmann í
vetur hefur ekki riðið við
eintcyming.
Tindastólsmenn urðu aó láta
sér lynda tap gegn Þórsurum sl.
fimmtudagskvöld í leik sem fram
fór á Akureyri. Leikurinn var í
jámum fram undir miðjan seinni
hálfleik, en þá kom kafli þar sem
Þórarar skomðu 21 stig í röð án
þess Tindastólsmönnum tækist að
svara. Leiknum lauk meó ömgg-
um sigri Þórsara 109:90.
Tindastólsmenn byrjuðu leik-
inn betur og settu niður sex fyrstu
stigin úr tveimur þriggja stiga
skotum. Þórsarar vom fljótir að
svara og framan af fyrri hálfleik
skiptust liðin á að hafa forustu.
Það háði Stólunum talsvert að
Torrey John náði sér ekki á strik,
enda í strangri gæslu, en Hinrik
Gunnarsson sá í staðinn um að
raða niður stigunum. Þórsarar
tóku fomstu um miðjan fyrri hálf-
leik og voru skrefinu á undan
fram undir hlé en þá kom góður
kafli hjá Stólunum og Hinrik
tryggöi liðinu þriggja stiga for-
ustu í leikhléi, 47:44, með þremur
vítaskotum.
I síðari hálfleik var sem Stól-
amir ætluöu að halda forskotinu
og hraðinn í leiknum jóksL Láms
Dagur og Omar settu niður
þriggja stiga körfur og við þaó
lifhaði yfir Kristni Friórikssyni og
Konráð Oskarssyni og leikurinn
við fljótur að jafnast á ný. Stól-
amir vom yfir, 72:69, þegar Þórs-
arar settu fyrir lekann í vöminni.
Næstu 21 stig voru þeirra og
Þórsarar komnir með ömgga for-
ustu. Tindastólsmenn skiptu nær
öllu liói sínu útaf og léku stífa
pressuvöm en Þórsarar náóu aó
halda haus. Síðustu mínútumar
gerðu gestimir örvæntingafullar
tilraunir til að minnka muninn.
Stig Tindastóls í leiknum skor-
uðu: Hinrik 25, Ómar 22, Láms
Dagur 19, Torrey 14, Arnar 5,
Sigurvin 3 og Páll 2. Fyrir Þór
skomðu Kristinn 40, Sandy 27 og
Konráð 18.
Tindastóll hefur nú 18 stig í
deildinni, jafnmörg og Valur.
Þessi lið mætast nk. sunnudags-
kvöld syðra. Tindastóll hefur betri
stöðu en Valur sökum fleiri sigra í
innbyrðisviðureignum. Haukar
em með 16 stig, Skagamenn 14
og Snæfell 4.
sumar. Tvö felög sem voru með
í keppninni sl. sumar senda
ekki lið til kcppni nú, Kormák-
ur frá Hvammstanga og HSÞb.
Mannskapsleysi varð þess vald-
andi að þessi tvö lið drógu sig í
hlé. Þá tilkynntu aðeins fjögur
liðanna úr fjórðu dcildinni
þátttöku í Bikarkeppn-
inniTindastóIl, KS, Hvöt og
Neisti.
Hin þrjú liðin sem verða með í
sumar em Þrymur, Magni og SM.
Sem kunnugt er þjálfar Gísli Sig-
urðsson nú knattspyrnumenn
Tindastóls, Mark Duffield þjálfar
KS-inga og Páll Brynjarsson hef-
ur verið ráðinn þjálfari Neista.
Hvatarmenn hafa ekki gengið frá
ráðningu þjálfara en miklar líkur
em á að það verði Helgi Amar-
son, sem þjálfaði liðió ásamt
Sveinbimi Ásgrímssyni sl. sumar.
Þá em töluverðar líkur á aö Atli
Freyr Sveinsson þjálfi Þryms-
menn í sumar eins og sl. sumar.
□