Feykir - 22.02.1995, Blaðsíða 7
8/1995 FEYKIR7
Torrey vann einvígið við Bow
þegar Tindastólsmenn lögðu Valsmenn í gærkveldi
Tindastólsmenn sýndu góðan
leik og mikinn karakter þegar
þeir lögðu Valsmenn í hörku-
leik á Hlíðarenda í gærkveldi.
Þessi sigur þýðir að Tindastóls-
menn hafa endanlega tryggt
sæti sitt í deildinni og eiga enn
möguleika á sæti í úrslitakeppn-
inni. Baráttan þar stendur nú
við Haukana og Tindastóll
hefur tveggja stiga forustu
þegar þrjár umferðir eru eftir,
en Haukar eiga samkvæmt
bókinni eftir auðveldari leiki.
Þaö voru Valsmenn sem byrj-
uðu leikinn betur í gærkveldi og
komust t.d. í 17:9, en þá tóku
Tindastólsmenn við sér, jöfhuðu
leikinn og tóku frumkvæðið sem
þeir héldu út leikinn, þótt lengst
af væri mjótt á munum.
Staðan í leikhléi var 50:47
fyrir Tindastól og þegar tæpar
fimm mínútur voru eftir náði
Tindastóll mesta mun í leiknum,
10 stigum. Valsmenn klóruóu í
bakkann og náðu að minnka
muninn í tvö stig, en það var
öðrum fremur Páll Kolbeinsson
sem sá um að innbyrða sigurinn,
hann skoraði fjögur síðustu stig
Tindastóls, sem stóð uppi sem
sigurverari, 96:92.
Það voru einkum þrír leik-
menn sem báru leik Tindastóls
uppi í gærkveldi samkvæmt
heimildamanni Feykis syðra:
Torrey John, Páll Kolbeinsson
og Omar Sigmarsson.
Torrey sýndi glæsitilþrif,
skoraöi alls 47 stig í leiknum, þar
af 26 í fyrri hálfleik. Sjö þriggja
stiga skot rötuóu ofan í hjá þessum
skemmtilega leikmanni. Omar
Sigmars gaf Torrey lítið eftir í
þriggja stiga skotunum. Omar
setti sex skot ofan í og skoraði
alls 20 stig, Palli Kolbeins skor-
aði 22 stig, Hinrik 6 og Amar 3.
Fyrir Val skoraði Jonatan
Bow 41 stig og Ragnar Þór 20.
Tindastóll tapaði fyrir KR í
Síkinu sl. fimmtudagskvöld
73:82 eftir að hafa haft yfir í
hálfleik 40:34.
Leikurinn gegn KR-ingum sl.
fimmtudagskvöld var jafn ffaman
af. Eftir jafhan fyrri hálfleik, þar
sem Tindastóll var heldur
sterkari aðlinn, voru áhorfendur í
Síkinu famir að sjá fram á jafnan
og spennandi leik alveg fram á
lokasekúntur, en það fór á annan
veg, og gerðu KR-ingar út um
leikinn á fyrstu níu mínútum
seinni hálfleiks. Þá réðu heima-
menn ekkert við pressuvöm KR-
inga og gestimir gengu á lagið.
Tindastólsliðið lék vel í fyrri
hálfleik en afleitlega í þeim seinni.
Þá kom í ljós hvort liðið vildi
meira og það voru KR-ingamir í
þetta skiptið. John Torrey var
besti maður Tindastóls, Hinrik
átti einnig góðan leik, en aðrir
sýndu ekki sitt rétta andlit.
Stig Tindastóls: Torrey 34,
Hinrik 20, Ómar 8, Amar 4, Páll
4 og Sigurvin 3. Hjá KR var lang-
stigahæstur Bell með 33 stig.
Næsti leikur Tindastóls í
deildinni verður gegn Grind-
víkingum í Síkinu annað kvöld
(fimmtudagskvöld)
Ókeypssmáar
Til sölu!
Til sölu snjósleði, Polaris long
track árgerð 1986. Upplýsingar
í síma 35846.
Til sölu King Zise vatnsrúm
með hitara, eins árs gamalt,
verð 35 þús. Upplýsingar í síma
35472 eftir hádegi.
Til sölu Ford Econoline húsbíll
árgerð 1983, svefnaðstaða fyrir
3-4, vaskur og eldavél. Góður
bíll. Upplýsingar í síma 38135.
Til sölu snjósleði Ski-doo
blissard árgerð 1983. Upplýs-
ingar í síma 95-35789.
Til sölu notaður ísskápur og
notuð eldavél fylgir. Upplýs-
ingar í síma 35439 eftir kl. 17.
Hlutir óskast!
Innihurð með karmi óskast í
Gúttó. Upplýsingar gefur Bjöm
í síma 36661.
íbúð til leigu!
Sextíu fermetra íbúó til leigu.
Upplýsingar í síma 35411.
Tapað - fundið!
Brúnn vinstrihandarhanski kven-
leðurhanski, fannst á Hólavegi.
Upplýsingar í síma 35855 eða á
Hólavegi 6.
Víndrykkja ekki heilsusamleg
Fjallabíll til sölu!
Nú er hann til sölu fjallabíllinn minn
jyrir eina tölu hann gœti orðið þinn.
Tölunnar virði má ekki vera rýrt
þó farartœkið geti varla talist dýrt.
Efþú hefur hug á að versla vinurinn
talaðu við son minn, hann sýnir gœðinginn.
Varla þarf að minnast á góða umhirðu
árgerðina góða, hún er '90.
Eknir hafa verið af þrautseigju og dug
kílómetra þúsundir, yfir sjöttaþúsund tug.
Umrætt farartæki Lada sport. Upplýsingar í síma
36778 og 36214.
Bókband!
Bind inn flestöll tímarit, bækur og blöð. Hef alls
konar efni, svo sem rexin, striga, pappír, roó og
leóur. Hringið í síma 36125.
Sara Karlsdóttir Drekahlíó 1 Sauðárkróki.
Lögfræðiþjónusta!
Hef opnað útibú frá lögmannsstofu minni á
Sauðárkróki að Suóurgötu 3 (Framsóknarhúsinu).
Fastir viðtalstímar annan og fjórða mánudag
hvers mánaðar og einnig eftir nánara samkomulagi.
Símar 95-36757, 91-623757 og myndsími 91-15466.
Jón Sigfús Sigurjónsson héraðsdómslögmaður.
Alþjóóaheilbrigðismálastofn-
unin sendi nýlega ffá sér tilkynn-
ingu að gelhu tilelhi. Fjölmiðlar
höfóu básúnað það út að vín-
drykkja væri heilsusamleg, eink-
um og sér í lagi drægi ,Jiófleg“
drykkja úr hættu á hjartasjúk-
dómum. Fyrirsögn tilkynningar-
innar en „Sérfræðingar Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar vara
við hófdrykkju." Þar segir svo
meóal annars: „Afengi er orsök
ýmissa alvarlegra heilbrigðis-
vandamála í heimi bæði í iðn-
væddum ríkjum og þróunarlönd-
um. Skaðleg áhrif áfengis snerta
alla, ekki cinungis drykkjumenn.
Ekki er mögulegt að ákveða
hve mikils áfengis sé óhætt að
neyta án þess að stefha heilsunni
í voða. Því eru það blekkingar
þegar því er haldið fram að hóf-
drykkja bæti heilsuna. I stað þess
að halda því fram á boóskapur-
inn að vera: Því minna sem
dmkkið er þeim mun betra!
Menn geta orðið háðir áfengi.
Það getur valdið krabbameini og
lifrarsjúkdómum, orsakað erfið-
leika á vinnustað, valdið umferð-
arslysum og stuðlað að harm-
leikjum innan ljölskyldna. Afengi
getur valdið kynferðislegum
vandamálum, ofbeldi og öðrum
glæpum og sjálfsmorðum.
Rétt er að leggja áherslu á að
þjóðir í velferðarríkjum hafa
lengi átt í höggi við tjón af völd-
um áfengis, bæði félagslegar
meinsemdir og heilsufarslegar.
Meðal þeinra dregur sem stendur
dálítið úr áfengisneyslu í fyrsta
skipti í áratugi. En ef litið er á
veröldina alla eykst bæði áfeng-
isframleiðsla og áfengisneysla
vegna þess að æ meira áfengi er
selt til þróunarlanda þar sem
neyslan hefur fram til þessa verið
fremur lítil.
Sú staðhæfmg að örlítil áfeng-
isneysla dragi úr líkum á hjarta-
og æðasjúkdómum er meira en
lítið vafasöm. Víst er hinsvegar
að hættan á slíkum kvillum eykst
ef neyslan fer ffam úr marki sem
er afar lágt. Auk þess skiptir
þetta engu máli í löndum þar
sem hjarta- og æðasjúkdómar
em fátíðir. Þaö á við íbúa flestra
þróunarlanda og þar af leiðandi
mikinn meirihluta mannkyns.
A ýmsan hátt er hægt að
draga úr hættunni á hjarta- og
æðasjúkdómum, til að mynda
með því að reykja ekki, stunda
líkamsrækt ýmiss konar og
minnka fituneyslu. Þeir sem gera
það munu síður en svo draga
frekar úr áhættunni meö því aó
neyta örlítils áfengis.
I fáum orðum sagt: I baráttunni
við skaðvænleg áhrif áfengis er
óviturlegt að leggja áherslu á að
örlítil neysla þess geti verið
heilsusamleg. Umræðumar, sem
átt hafa sér stað um það sjónar-
mið, sigla ekki í kjölfar nákvæmra
vísindarannsókna - en eru að
mestu leyti mnnar undan rifjum
þeirra sem hafa fjárhagslegan
ábata af aukinni áfengisneyslu."
(fréttatilkynning)
Auglýsing
vjKi ocr
arangur
Snj ósleðamenn
Snjósleðaolíur: Yamaha
Polaris
Ski-doo ^ . —
Atic cat C i
' tou: -
drifreimar, rafgeymar, hjálmar,
hanskar, lúffur o.fl.
Bílabúð