Feykir - 21.06.1995, Blaðsíða 7
24/1995 FEYKIR7
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Löngumýri
Ingibjörg Jóhannsdóttir, hús-
stjórnarkennari, fœddist á
Löngumýri í Skagafirði hinn 1.
júní 1905. Hún lést á Borgarspít-
alanum 9. júní sl. nírœð að aldri.
Foreldrar hennar voru Sigur-
laug Olafsdótrír og Jóhann Sig-
urðsson bóndi á Löngumýri.
Systur hennar eru Steinunn f.
1917, búsett í Reykjavík, og Olöf
Ragnheiður, f. 1908, d. 1991, var
búsett í Krossanesi í Skagafirði.
Ingibjörg lauk hússtjórnar-
námskeiðifrá Kvennaskólanum í
Reykjavík árið 1927 og garð-
yrkjunámskeiðum 1930 og 1936.
Árið 1938 fiór hún í námsferð ríl
Noregs og Svíþjóðar og heim-
sótti þar barnaskóla og hús-
mœðraskóla og dvaldi við nám í
húsmœðrakennaraskóla í Nor-
egi. Árið 1954 fór hún ríl Dan-
merkur og Þýskalands á kenn-
aranámskeið og sótrí einnig hús-
mœðraskóla.
Þegar heim kom gerðist Ingi-
björg kennari í Norðurárdal vet-
urinn 1936-1937. Hún varð
skólastjóri við húsmœðraskólann
á Staðarfelli árið 1937, en árið
1944 lét hún þar af störfum og
stofnaði húsmœðraskólann á
Löngumýri sama ár og sat þar
skólastjóri til ársins 1967. A
Löngumýri hélt hún sumarnám-
skeiðfýrir stúlkur 1955 og 1956
og var forstöðumaður fyrir
barnaheimili RKÍ á Staðarfelli
eitt sumar og á Löngumýri átta
sumur.
Ingibjörg var formaður Skóg-
rœktarfélags Skagfirðinga í sjö
ár og formaður Kvenfélags
Seyluhrepps um skeið. Hún var
einnig gjaldkeri Kvenfélagasam-
bands Skagafjarðar um tíma.
Ingibjörg fluttist til Reykjavík-
ur árið 1967 og lét sér alla tíð
annt um uppeldis- og skólamál
og ritaði greinar í blöð og tíma-
rit þess efnis á efri árum. Ingi-
björg var ógift og barnlaus. Út-
för lngibjargar fór fram frá Ás-
kirkju mánudaginn 19. júní.
Ég lít út um gluggann hér á
Löngumýri. Ljósgrænn litur á
laufi og mildur andblær strýkur
létt um greinar trjánna. Fuglamir
kveða við raust. Þeir hafa byrjað
búskap víða, bæði í greinum
trjánna og í mosató á jörðu niðri.
Þar ríkir fegurð og friður nú að
loknum hörðum vetri. Þetta er
garóurinn hcnnar Ingibjargar frá
Löngumýri, hennar sem nú hefur
kvatt okkur hér og haldið heim
til enn þá betri dvalar þar sem
ekki er þjáning eða sorg.
Þegar ég var þeirrar gæfu að-
njótandi að ráðast til starfa á
Löngumýri kynntist ég Ingi-
björgu fyrst. Hún sýndi okkur
sem tókum við hjartabaminu
hennar tiltrú, gaf góð ráó og
reyndi ekki aö stjóma okkur.
Hún hafói látið stjómartaumana í
annarra hendur. Én hún bað Guó
aó leiða okkur og styója. Þessara
forréttinda hef ég notið í bráðum
28 ár, aö eiga fyrirbæn þeirra
Ingibjargar og Bjargar vinkonu
hennar vísa hvem dag.
Starf Ingibjargar á Löngu-
mýri er mörgum kunnugt.
Hvemig hún af elju og ótrúlegri
bjartsýni byggði upp skóla sinn á
Löngumýri. Og þau 23 ár sem
hún var skólastjóri var skólinn
fjölsóttur. Flestar stúlkumar sem
ég hef hitt eiga héðan góðar
minningar um skemmtilegan og
gefandi tíma. Það sýnir tryggð
gamalla nemenda við skólann að
s.l. haust, er haldin var hátíð í til-
efni þess að 50 ár voru liðin frá
stofnun skólans, sóttu hann heim
um það bil 200 nemendur.
Ingibjörg lét af störfum á
Löngumýri 1967 og kom þar
síðast 1969. Oft var talaó um að
hún kæmi, en hún sagði mér að
hún treysti sér ekki að koma
norður og sjá ekkert, en þá var
Það voru bændurnir á Hóli í Sæmundahlíð sem keyptu fyrstu
Forddráttarvélina er kemur í Skagafjörð eftir að Gtóbus/-
Vélaver tók við umboðinu fyrir þessar vélar fyrir einu ári.
Myndin er tekin þegar Páll Magnússon í Pardusi á Hofsósi
afhenti Arna Grétarssyni á Hóli lykla að Fordinum. Vélin er
mjög kraftmikil og fullkomin; 95 hestöfl með vökvakúplingu
sem gerir notkun ámoksturstækjanna þægilegri.
hún orðin blind En þegar ég
sagði henni fréttir héðan að noró-
an sá hún ávallt staðinn og um-
hverfi hans fyrir sálarhugsjónum
sínum. Allt starf hennar tók mið
af því að gera sem mest og best.
Ég hygg að óskir hennar hvað
varðar lífsstarfið birtist í þessu
bænaversi hennar
Gef þú mér Drottinn styrk til
starfa
styð mig að leysa hverja þraut.
Leyfmérað vinna landi þarfa
Ijósbera verða á œvibraut
svo flutt gerí öðrum friðinn þinn
fullan afgleði í hjörtum inn.
Þegar ég hitti hana síðast á af-
mælisdegi hennar sat hún glöð
og furðu hress og tók á móti
kveðjum og heillaóskum vina og
vandamanna. Hverjum heföi þá
dottið í hug að svo skammur tími
væri til kveðjustundar. Ég vissi
ekki svo gjörla hvað.hægt væri
að gefa Ingibjörgu í afmælisgjöf.
En skyndilega fékk ég hugmynd.
Garðurinn hennar var henni svo
kær. Ég hvíslaði í eyra hannar að
gjöf okkar Hólmfríðar yrði að
planta sérstökum afmælislundi í
Löngumýrargarðinn. Brosið
breiddist yfir andlit hennar og
hún var sýnilega ánægð með þetta,
en spurði: „Hvenær ferðu að láta
planta í Hólinn?“ „Ég mun byrja
á því í sumar," svaraði ég og enn
þá sá ég að það gladdi hana.
í 103. Davíðssmálmi segir
svo: „Dagar mannsins eru sem
grasið, hann blómgast sam gras-
ið í mörkinni. Þegar vindur blæs
á hann er hann horfinn og staður
hans þekkir hann ekki framar. “
En staður Ingibjargar hér á
Löngumýri mun þó þekkja hana
lengi um mörg ókomin ár Kirkj-
an hennar stendur í þakkargjörð
við hana fýrir þá stóru gjöf. Megi
okkur auðnast að nýta hana sem
best eins og Ingibjörg vildi. Og
viljayfirlýsingin er á steininum
sem hún sendi fyrir nokkrum
árum. Lokaoró þjóðsöngsins
okkar: „Verði gróandi þjóðlíf
með þverrandi tár sem þroskast á
Guðsríkis braut“. Guði séu
þakkir fyrir Ingibjörgu Jóhanns-
dóttur frá Löngumýri.
Margrét K. Jónsd. Löngumýri.
Ókeypás smoar
Til sölu!
Til sölu fólksbílakerra, fjarstýrð
flugvél með ýmsum fylgihlutum
og rússajeppi AZ 469 b árg. '81,
með 76 cyl. Volvovél b 30.
Upplýsingar í síma 452 7151
eftirkl. 20,00.
Til sölu Zetor 7245 árg. '87 með
einvirkum moksturstækjum.
Þarfnasf viðgerðar. Til greina
kemur að taka litla dráttarvél upp
í. A sama stað er til sölu Lada
sport ásamt varahlutum. Upp-
lýsingar gefur Júlíus í síma 452
4263.
Til sölu Kawasaki 110 fjórhjól
árg. '87. Tilboð óskast. Upp-
lýsingar í síma 452 4478 eftir
kl. 19.
Til sölu MMC Lancer GLX.I
árg. '93, ekinn 40 þús. km.
Sóllúga, álfelgur o.fl. Verð-
hugmynd 1190 þús. Upplýs-
ingar í síma 452 4185.
Til sölu 28 rúmmetra Kemper
heyhleðsluvagn, árg '79. Ný
dekk og nýjar legur og öxlar í
mötunarbúnaði. Upplýsingar í
síma 453 6548.
Pylsuvagn til sölu. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 462 4726
v
Atvinna í sveit!
Ég er 14 ára stepla og langar að
komast í sveit í sumar, að passa
böm og hjálpa til. Er vön bömum
oghef farið á bamfóstrunámskeið
hjá RKÍ. Upplýsingar í síma 555
2108.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, aft
og langafi
Friðrik Margeirsson, fyrrv. skólastjóri,
Hólavegi 4, Sauðárkróki,
verður jarósunginn frá Sauóárkrókskirkju laugar-
daginn 24. júní kl. 15,00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Fræða-
sjóð Skagftróinga. (Minningarkort fást hjá Blóma-
og gjafabúóinni og Verslun H. Júlíussonar).
Alda Ellertsdóttir
Helga Friðriksdóttir Kristinn Hauksson
Heiórún Frióriksdóttir Sveinn Sigfússon
Hallfríður Friöriksdóttir Siguróur Þorvaldsson
Jóhann Friðriksson Sigríður Sigurðardóttir
Margeir Frióriksson Sigurlaug Valgarðsdóttir
Valgerður Friðriksdóttir
Páll Frióriksson Guóný Axelsdóttir
bamaböm og bamabamabam.
Hrossabændur!
Vantar hross til slátrunar á
Japansmarkað. Bændur eru
hvattir til að slátra geldhrossum í
sumar. Mikið framboð verður á
öðrum hrossum í haust.
Sláturhús