Feykir - 23.08.1995, Blaðsíða 6
6FEYKIR 28/1995
Heilir og sælir lesendur góðir.
Eftir nokkra ládeyðu nú upp á síðkast-
ið í málefnum vísnaáhugafólks er gott að
byrja hressilega með þessari vísu Vil-
hjálms Benediktssonar frá Brandaskarði.
Upp skal kynda andans glóð,
eyða úr lyndi trega,
saman binda bjartan óð
blítt og yndisiega.
Önnur vísa kemur hér eftir Vilhjálm
og lýsir hún vel því fallega umhverfi er
oft blasir við augum okkar síðsumars.
Þó að löngum litlum arði
lífið svari afþungu stríði,
bjart er yfir Brandaskarði,
brekkur klœddar lyngi og víði.
Þar sem sést hefur til fólks nú undan-
farið við slátt í kirkjugörðum og undirrit-
aður hefur nokkuð stundað þá iðju er til-
valið að rifja næst upp vísu eftir Svein-
bjöm Beinteinsson sem hann mun hafa
ort er hann ásamt séra Jóni Einarssyni var
við slátt í Saurbæjarkirkjugarði.
Oft á sumrin sjást þar nm
sjáljur trúar voðinn.
Kirkjugarðinn kátir slá
klerkurinn og goðinn.
Það mun var Þórir Valgeirsson frá
Auðbrekku sem yrkir svo.
Yndœlt er við Eyjafjörð
um ágústnótt að vaka
þegar himinn, hafog jörð
höndum sanmn taka.
Jens Kr. Guðmundsson ættaður frá
Hrafnhóli í Skagafirði var fyrir skömmu
staddur í Varmahlíð. Fékk hann þar af-
bragðsgóðan mat auk annarrar þjónustu
og varð það tilefni eftirfarandi vísu.
/ Varnmhiíð er versiun kunn
og veitingar hjá gœða kokki.
Húsbóndinn er Heigi Gunn,
höfðingi í úrvalsfiokki.
Eitt sinn er Jens hafði dvalið í sumar-
bústað í Borgarfirði kvittaði hann fyrir
gistinguna í gestabók staðarins með eft-
irfarandi vísu.
Þökkum skai nú þrykkt á biað,
það er góður siður.
Hér er sturta, hér er bað,
hér er ró og friður.
í einu kuldakastinu nú fyrr í sumar
gerðust þau tíðindi að flaggskip þeirra
Skagstrendinga lagðist í höfn og var slík
óáran ekki til að létta skap manna. Um þá
stöðu orti Rúnar Kristjánsson svo.
Standa menn víða og stynja hér
í stöðugum sumarkuldum
og telja að allt sé að hrynja hér
því höfnin sé fuil afskuldum.
Margt var rætt um fyrirhugaða sölu á
því sóma skipi og eins hvort citthvað yrði
keypt í staðinn. Um þá umræðu yrkir
Rúnar svo.
Ekki er stjórnin stöðugiynd,
stopui hennar glóra.
Breytt hún hefur sigri í synd,
selt er skipið stóra.
Menn á leið til mölunar
missa, bjargarvaðinn.
Kaupa sér til svölunar
sónmbát í staðinn.
Talsverðrar beiskju yfir þessari illu
stöðu gætir í næstu vísum Rúnars.
Vofi yfir verðug smán
vegrm slœmrar spilahandar,
treysta á gefið glópalán
gróðapungar Skagastrandar.
Undra þarfei þig og mig
þó að sitthvað rúlli.
Hrokinnféll um hundrað stig,
hrundifast að núlli.
Að svo komnu birtist sjónvarpsfrétt
um málið og þá var sem betur fer orðið
mun bjartara útlit. Hressti það skáldið
undir Borginni og bætti hann snarlega
tveim vísum við.
Hrokinn aftur hefst á legg,
höfðingjarnir boð’ann.
Þó þeir sigli á svartan vegg
sjá þeir aldrei voðann.
Brautin sú að byggja á gát
best mun fœrin skapa.
Verst er það að verða mát
vegna eigin glapa.
Þá kemur haglega gerð hringhenda
eftir Jón Jónsson frá Eyvindarstöðum.
Frœ að láðifalla í dá
fjötruð ráðum kífsins.
Tónar hrjáðir hrekjast á
hörpuþráðum lífsins.
Ég vil þakka lesendum fyrir bréf og
góðar óskir til þáttarins og einnig óska ég
eftir aö ná góðum samningum við ykkur
um efni fyrir næstu þætti, og þá helst sem
tengjast þeim tíma sem nú fer í hönd von
bráðar, mcð göngum og sláturtíð ásamt
öðrum haustverkum. Síðan verður það
Ingvar Pálsson frá Balaskarði sem legg-
ur okkur til lokavísuna.
Ég hefjullvel fundið það
íflestum lífsins spilum,
hvað það reynist erfitt að
eiga að standa í skilum.
Veriði þar meó sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Stelpurnar standa sig
Knattspyrna 4. deild:
Tindastóll ásamt
KS í úrslitin
Fyrsta
golfmótið
í Lónkoti
Keppni í Norðurlandsriðli 4.
deildar lauk um helgina. Sigl-
firðingar höfðu fyrir nokkru
tryggt sér öruggan sigur í riðl-
inum, hlutu 34 stig, Tindastóls-
menn komu næstir með 26
stig, Magni hlaut 24 stig, Hvöt
16, SM 12, Neisti 10 og Þrym-
ur hlaut ekkert stig. Tindastóll
fylgir KS í úrslitin. KS mætir
KBS sem varð í 2. sæti Aust-
fjarðariðilsins, en Tindastóls-
menn endurnýja gömul kynni
við Reynismenn frá Sandgerði,
sem sigruðu í öðrum suðurriðl-
inum, en þessi lið féllu saman úr
3. deildinni á síðasta hausti.
Tindastólsmenn áttu mjög
góðan lokasprett og sýndu mikinn
karakter meó að vinna þrjá síð-
ustu leiki sína sem allir voru
leiknir á útivelli. Liðið virðist
vera á uppleið eftir að hafa verið
lítið sannfærandi fram eftir
sumri. Það var eins og jafntcflið
við Neista á Króknum í lok júlí
hafi orðið til að hrista upp í
Tindastólsmönnum og á eftir
fylgdi öruggur sigur á Hvöt á
Blönduósi 5:1, 2:0 sigur í nánast
úrslitaleik um sæti í úrslitum
gegn Magna á Grenivík, og í síð-
asta leiknum gegn SM í Eyja-
firðinum um helgina sigraði
Tindastóll 4:2. A sama tíma sigr-
aði Magni Hvöt 9:4 á Grenivík
og Neisti vann Þrym á Króknum
4:1.
Þeir sem fylgst hafa með
Tindastólsliðinu upp á síðkastið
vilja meina að það sé ekki síst
þáttur Stefáns Vagns Stefáns-
sonar markvarðar liósins sem
hefur reynst þungur á metum, en
Stefán hefur leyst Gísla þjálfara
af hólmi í nokkrum leikjum í
sumar.
Fyrri leikur Tindastóls og
Reynis fer ffam í Sandgerði nk.
laugardag og sá seinni á Krókn-
um á þriðjudagskvöld.
Guðmundur Pétursson mið-
vallarspilarinn sterki verður í
leikbanni vegna fjögurra gulra
spjalda í fyrri leiknum gegn
Reyni. Þá eru þeir Helgi Már
Þórðarson og Stefán Pétursson á
leið til náms út fyrir landsstein-
ana, en vonir standa til að þeir
geti báóir leikið með Tindastóli í
úrslitakeppninni.
Siglfirðingar mæta KVA á
Siglufirði nk. laugardag og síðan
aftur iyrir austan nk. þriðjudag.
Fyrsta gol&nótið sem haldið er
á golfvellinum í Lónkoti fór
fram þann 16. ágúst sl. Mótið
var kennt við Sölva Helgason
enda haldið á fæðingardegi
hans. Stefnt er á að halda mót
þennan dag árlega hér eftir að
sögn Olafs Jónssonar staðar-
haldara í Lónkoti og halda
þannig minningu Sölva á lofti.
Mótið nú var ekki síður haldið
til að kynna völlinn í Lónkoti
fyrir golfáhugamönnum, en
hann er níu holur.
Það voru 12 golfmenn frá
Sauðárkróki sem tóku þátt í þessu
fyrsta Sölvamóti sem haldió er,
en þar sem mótið var á miðviku-
degi sem er fastur mótsdagur
Hótel Aningar mótanna á Sauðár-
króki veitti Hótel Áning sigurveg-
ara mótsins verólaun auk þess
sem ferðaþjónustan Lónkoti veitú
þremur efstu mönnum í mótinu
verðlaun.
Urslit uröu þau að Steinar
Skarphéðinsson sigraði, lék á 46
höggum brúttó og 39 höggum
nettó. Guðmundur Ragnarsson
lék einnig á 46 höggum, en 40
höggum nettó. Haraldur Friðriks-
son varð svo þrióji með 50 högg
brúttó og 45 nettó.
Stelpurnar í Tindastóli hafa
gert það gott í fótboltanum í
sumar. Meistaraflokkurinn er
kominn í úrslit í 2. deild
kvenna. Annar flokkur sömu-
leiðis og tekur þátt í úrslita-
keppni í Hafnarfirði um næstu
helgi. Þriðji flokkur komst
einnig i úrslit og fór úrslita-
keppnin fram á Króknum um
síðustu helgi. TindastóII lenti
þar í 5. sæti með því að vinna
Þór 2:0.
Tindastóll bar sigur úr býtum í
Norðurlandsriðli 2. deildar. KS-
ingar urðu í öóru sæú og Dalvík-
ingar í því þriója. Tindastóll mæt-
ir Aftureldingu úr Mosfellsbæ og
Sindra frá Höfn í úrslitum. Einn
leikur hefur þegar farið fram í
keppninni. Afturelding vann
Sindra 4:0. Tindastóll fær Aftur-
eldingu í heimsókn nk. miðviku-
dag og fer síðan úl leiks á Homa-
firöi sunnudaginn 2. september.
3. flokkur Tindastóls leikur í
úrslitariðli með LA og Stjömunni í
Hafnarfiröinum um helgina. I
hinum úrslitariðlinum em Hauk-
ar, KR og ÍBA.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
samúó og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföóur og afa
Finnboga Stefánssonar,
Þorsteinsstöðum.
Guó blessi ykkur öll!
Fríða Eóvarðsdóttir
Kristín Finnbogadóttir Kristinn Gamalíelsson
Berta Finnbogadóttir Sigtryggur Gíslason
Böðvar Finnbogason Guóbjörg Guómannsdóttir
Stefanía Finnbogadóttir Guómundur Magnússon
bamaböm og bamabamabam.