Feykir - 23.08.1995, Blaðsíða 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
23. ágúst 1995, 28. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
Þing SSNV um
næstu helgi
Ársþing Sambands sveitarfé-
laga á Norðurlandi vestra
verður haldið í bóknámshúsi
fjölbrautaskólans á Sauðár-
króki nk. föstudag og Iaugar-
dag, 25. og 26. ágúst. Aðalmál-
efiii þingsins verða: yfirfærsla
grunnskólans að fúllu til sveit-
arfélaganna og atvinnumál á
Norðurlandi vestra.
Þingsetning verður á föstu-
daginn kl. 13,00. Á föstudags-
kvöld verður hóf fyrir þingíúlltrúa
og gesti. Áætlað er að þinglok
verði upp úr hádegi á laugardag.
Tveir ráðherrar verða gestir
þingsins, þeir Páll Pétursson fél-
agsmálaráðherra og Bjöm Bjama-
son menntamálaráðherra. Einnig
situr þingið Þórður Skúlason
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Bjöm Bjamason
mcnntamálaráóhcrra verður
meðal frummælenda í um-
ræðum um yfirfærslu grunn-
skólans til sveitafélaganna og
Garðar Jónsson ffá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga mun skil-
greina hvemig sú tilfærlsa er
hugsuð. Meðal frummælenda
um atvinnumál eru Magnús
Oddsson ferðamálastjóri, Olafur
R. Dýrmundsson ráðunautur BI
og Sigríður Gróa Þórarinsdóttir
framkvæmdastjóri Hagfélagsins.
Á ársþingi SSNV eiga sæti
fjórir fulltrúar frá Sauðárkróki,
þrír lfá Blönduósi og Siglufirði,
tveir frá Skagaströnd og
Hvammstanga, og einn fulltrúi
frá hinum sveitarfélögunum. I
reglum um úthlutun fulltrúa er
miðað við íbúatölu staöanna.
Heimagangi stolið
Lögreglan á Sauðárkróki
hefur nú til rannsóknar sér-
kennilegt þjófnaðarmál, cn
um miðjan dag í lok júlí var
stolið heimagangi frá bænum
Vestari-Hóli í Flókadal.
Heimagangurinn var tckinn til
handargagns af fólki í svörtum
fólksbíl sem leið átti um
dalinn. Bóndinn á Vestara-
Hóli, Sigmundur Jónsson, náði
ekki númcrinu á bílnum.
Hann segir ftirðulegt að svona
hlutir skuli gerast og menn séu
alveg grandalausir, fúll ástæða
sé fyrir bændur að hafa góða
gát á búfénaði sínum sem er
heima við bæi.
„Ég var að drekka miðdegis-
kaffió mitt í rólegheitum og
heyrði þá í bíl á ferðinni héma
neðan viö bæinn. Ég hélt aó þetta
væru gestir að koma í heimsókn,
en fannst þeir vera búnir að
dvelja svolítið lengi nióur við
veginn. Ég gekk því héma fram
á hólinn til að grennslast fyrir
um þá en sé þá svartan fólksbíl
keyra í burtu niður dalinn.
Hólfið sem heimalningamir eru í
nær alveg niður að veginum og
ég tók strax eftir því að nú voru
þeir bara tveir, en þeir voru
þarna allir þrír þegar ég fór í
kaffið. Sá grái í hópnum var
horlinn", segir Sigmundur Jóns-
son bóndi á Vestari-Hóli.
Það eina sem komið hefur
fram varðandi málið, er að fyrir
skömmu hringdi maður í lög-
regluna á Sauðárkróki. Sagðist
hann hafa séð heimagang á
flandri við malamámu skammt
frá Sleitustöðum. Sagði hann
heimaganginn kollóttann og
markaðan. Hinsvegar gat hann
ekki lesið úr markinu og honum
láðist einnig að geta um litinn á
lambinu. Hugsanlegt er að
þarna hafi heimagangurinn
frá Vestara-Hóli verið kom-
inn, en ekki tókst að ganga
úr skugga um það í þetta
skiptið.
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
Sláðu til og komdu í Gengið
Pottþéttur klúbbur!
áW Landsbanki
Sími 453 5353 MÁ
Islands
Banki allra landsmanna
Séra Gísli Gunnarsson, Stefán Gíslason organisti og Agnar
Gunnarsson bóndi á Miklabæ í Blönduhlíð ferðbúnir á
reiðskjótum að lokinni messu.
Messað að Knapps-
stöðum
Fjölmenni var viðstatt guðs-
þjónustu að Knappsstöðum í
Stíflu í Fljótum fyrir skömmu.
I þessari litlu og afskekktu
kirkju sem mun vera elsta
timburkirkja landsins er mess-
að einu sinni á ári og ávallt að
viðstöddu ijölmenni. Það eru
ekki síst burtfluttir Fljóta-
menn sem koma til þessarar
messu og sýna þannig tryggð
Nýlega var gengið frá ráðn-
ingu nýs sveitarstjóra Hofs-
hrepps á Hofsósi í stað Jóns
Guðmundssonar frá Oslandi
sem látið hefur af störfum af
heilsufarsástæðum. Til
starfans var ráðinn Árni Egils-
son sölustjóri á Sauðárkróki,
en 18 umsóknir bárust um
star f s veitarstj órans.
„Ég hlakka til að takast á við
nýtt verkefni og veit að þetta
verður mjög lærdómsríkt“, segir
Ami Egilsson, en hann tekur við
starfmu 1. september næstkom-
andi.
Umsækjendur um sveitar-
stjórastarfið á Hofsósi vom: Þor-
í Stíflu
við sína gömlu átthaga.
Undanfarið hefur skapast sú
venja að margt heimamanna fari
á hestum til messunnar og var
svo einnig nú og setti það
skemmtilegan blæ á samkom-
una. Þess má geta að bæði prest-
ur og organisti settust á hestbak
að messu lokinni og riðu áleiðis
heim með hópi heimamanna í
sérdeilis mildu sumarveðri. OÞ.
bergur Eysteinsson Kópavogi,
Guðmundur Skúli Johnsen
Reykjavík, Þóróur Guðbjömsson
Reykjavík, Gísli Erlendsson
Reykjavík, Ami Egilsson Sauð-
árkróki, Guðmundur H. Ingólfs-
son Isafirði, Gylfi Þór Gíslason
Reykjavík, Ásta Olöf Jónsdóttir
Hafnarfirði, Vigfús Guðmunds-
son Hafnarfirði, Kristján Grétar
Jónsson Reykjavík, Sigurður
Ámason Marbæli Seyluhreppi,
Þorgils Axelsson Kópavogi, Þór-
hallur Ásmundsson Sauðárkróki,
Einar Pálsson Patreksfirði og
Bjöm Oli Hauksson Reykjavík.
Þrír umsækjenda óskuðu nafn-
leyndar.
Hjalti
ritstýrir
búenda-
talinu nýja
Eins og greint hefúr verið frá í
Feyki hafa Héraðsnefnd
Skagfirðinga, Kaupfélag
Skagfirðinga, Sögufélag Skag-
firðinga og Búnaðarsamband
Skagafjarðar, ákveðið að ráð-
ast í nýja.og endurbætta út-
gáfú jarða- og búendatals fyr-
ir Skagafjörð. Ljóst er að um
viðamikið verk verður að
ræða. Fjallar það um sögu og
lýsingu jarða í Skagafirði, sem
eru milli 600 og 700 talsins, á-
samt miklu myndefni frá
jörðunum bæði nýju og göml-
u. Gert er ráð fyrir 3000 blað-
síðna verki og áætlað að
fyrsta bindi þess komi út rétt
fyrir aldamótin.
Á fundi útgáfustjómar í júlí
var ákveðið að ráða Hjalta Páls-
son skjalavörð sem ritstjóra
verksins og mun hann taka til
starfa í októbermánuði næst-
komandi. Formaður útgáfu- og
ritstjómar er Þorsteinn Ásgríms-
son á Varmalandi og með hon-
um í stjóminni eru þeir Egill
Bjamason og Hjalti Pálsson.
Vegna ráðningar Hjalta í ritstjóra-
starfió mun hann víkja úr stjóm-
inni og við taka einhver þriggja
varamanna, sem eru Bjarni
Maronsson Ásgeirsbrekku, Sól-
veig Arnórsdóttir Utvík og
Pálmi Rögnvaldsson Hofsósi.
Á fundi stjómar Safnahúss-
ins í júlí var síðan ákveðió að
auglýsa eftir aðstoðarskjala-
verði til aö vera Hjalta til að-
stoðar meðan hann ritar
byggðasöguna, en til að byrja
meó réð Hjalti sig í starfið til
eins árs, sem síóan væntanlega
mun framlengjasL
Starf aðstoðarskjalavarðar
var auglýst og um það bámst 11
umsóknir, þar af tvær frá mönn-
um með sagnfræóimenntun.
Annar þeirra, Unnar Raín Ingv-
arsson frá Sólheimum í Svína-
vatnshreppi, var ráðinn til starf-
ans einróma af stjóm Safnhúss-
ins. Héraðsráð á eftir að stað-
festa ráðninguna, en reiknað er
með að Unnar taki til starfa í
Safnahúsinu 1. október nk.
Árni Egilsson ráðinn
sveitarstjóri á Hofsósi
Gæóaframköllun
BÓKABtTÐ
BB3ÓMJCARS