Feykir - 15.11.1995, Síða 5
40/1995 FEYKIR5
Annasamt og
ánægjulegt ár í
Glaumbæjarsafni
Áriö hefur veriö annasamt og
ánægjulegt fyrir starfsfólk safhs-
ins. Aösókn aö hefðbundinni
sýningu þess í gamla bænum í
Glaumbæ eykst ár frá ári. Húsið
frá Asi í Hegranesi, sem byggt
var á ámnum 1883-1886 og flutt
ffam í Glaumbæ áriö 1991, var
opnað fyrir almenning 1. júní sl.
og vakti auósýnilegan og mikinn
áhuga heimamanna. Starfsfólk
safhsins sumarið 1995, auk safn-
stjóra, vom Atli Gunnar Amórs-
son, Edda Jónsdóttir, Eyþór Ein-
arsson, Olína Jónsdóttir, Ragna
María Ragnarsdóttir og Þorgeir
Freyr Sveinsson.
Ashúsiö hefur margfalt hlut-
verk í starfsemi safhsins. í kjall-
aranum er geymsla og móttaka
muna, á aðalhæóinni er skrif-
stofa safhsins og kaffistofa og á
loftinu vom settar upp þrjár litlar
sýningar fyrir sumarið. Ein
tengdist húsinu sjálfu og íbúum
þess, á annarri mátti sjá sýnis-
hom af skagfirskum útskurði eft-
ir Stefán askasmið á Mallandi,
Bólu-Hjálmar og fleiri og á
þeirri þriðju hversdagshluti úr
eigu skagfirskrar húsmóður,
Moniku á Merkigili. Meginhluti
aðalhæðar var leigður út undir
rekstur lítillar kaffistofu sem
kölluð er Áskaffi. Þar nutu gestir
heimilislegra veitinga hjá Önnu
Margréti Stefánsdóttur og Ásdísi
Sigurjónsdóttur.
Tvær aðrar sýningar voru
uppi í sumar á vegum safnsins.
Orsök rútuslyssins í Hrútafirði:
Rakin til margra
samverkandi þátta
Nokkrir samverkandi þætt-
ir: krapaflot á vegi, vind-
hviða, ófullnægjandi hjól-
barðar og hraði bifreiðar-
innar, eru taldar orsakir fyr-
ir rútuslysinu í Hrútafírði
22. október sl. að mati
nefndar sem dómsmála-
ráðuneytið skipaði til að
rannsaka tildrög slyssins.
Nefndin sem nýlega skilaði
skýrslu telur að afleiðingar
slyssins hefðu orðið minni ef
farþegar hefðu verið í örygg-
isbeltum, en tveir farþega
létust og á þriðja tug slasað-
isL
Mynstrió í hjólbörðum bif-
reiðarinnar reyndist innan lög-
mæts ramma en nefhdin telur
að miðað við aóstæður hefði
dýpra mynstur og naglar í
dekkjunum hjálpað mikið. Bif-
reiðin var komin rúmlega 8 km
norður fyrir Staðarskála og var
á fullri ferð í akstri er slysið
varð. Ekki greindust neinar
skemmdir í veginum, en
nefndin telur að greining,
merking og fyrsta meðferð
slasaðra ásamt flutningi á
sjúkrahús hafi verið góó.
Til að gera flutning farþega
í hópbifreiðum sem allra ör-
uggastan leggur nefndin til
ýmiss atriði. Kannað verói
hvort unnt sé að setja öryggis-
belti í öll sæti hópferðabifreiða.
Lagt er til að ökumenn hópbif-
reiða geri ferðaáætlun ef þeir
aka yfir heiðar eða fjallvegi á
leiðum sínum. Þar verði tekið
tillit til veðurs og færðar meó
hliðsjón af aksturseiginleikum
þeirrar bifreiðar er í hlut á og
að sérstaklega verði til staðar
vitneskja um veður, færð,
krapaflot, vindstyrk, hálku og
þess háttar. Sjá þurfi til þess að
hópbifreiðin verði ávallt búin
miðað við aðstæður, einkum
að hjólbarðar séu gróf-
munstraðir með nöglum eða
keðjum þegar gera má ráð fyrir
snjó, krapafloti eóa annars
konar hálku. Lagt er til að gerð
verði tæknileg úttekt á því
hvort hægt sé að setja öruggt
net eða lok fyrir farangurs-
geymslur yfir höfðum farþega
í hópbifreiðum. Leiðbeiningar-
skilti veröi í bifreiðunum með
áletrun um að þunga hluti sem
skaðað geti fólk í umferðaró-
happi skuli geyma í farangurs-
geymslu en ekki farþegarými.
Telja nefndarmenn, sem
voru þeir Magnús Einarsson
yfirlögregluþjónn í Kópavogi,
Brynjólfur Mogensen yfir-
læknir og Kristján Vigfússon
deildarstjóri í samgönguráóu-
neytinu, að jafnframt verði
gerð tæknileg úttekt á því
hvaða tækniútbúnaður þurfi að
vera hjá löggæsluaðila til að
unnt sé að rannsaka og varð-
veita gögn á hópslysavett-
vangi. Umferðarráði verði falið
að láta taka til sérstakrar skoð-
unar og rannsóknar eiginleika
hópferðabifreiða til að fljóta á
vatni, hálku eða krapi á yfir-
borði vegar.
Klifjahestar teymdir framhjá Áshúsi á svokölluðum þjóðminjadegi í Glaumbæ.
Sérafmörkuð sýning á fuglaveiði
og útgerð við Drangey var í
Pakkhúsinu á Hofsósi. Þetta er
sumarsýning sem sett var upp
árið 1993 í samvinnu við heima-
menn og eiganda hússins, Þjóð-
minjasaih Islands. Þá setti safhið
nú í sumar upp smásýningu á
reiðverum frá fyrri tíð á Vind-
heimamelum í samvinnu við
Hestasport. Sýningargestir á
þessum sýningum munu samtals
hafa verið að nálgast 30 þúsund í
haust. Þar af komu um 21 þús-
und í Glaumbæ.
Munir berast safninu í aukn-
um mæli og brátt þarf að stækka
safngeymsluna sem staðsett er á
Sauðárkróki. Geymslan er ann-
ars mjög góð og þar fer vel um
hluti á meóan þeir bíða sýninga
eða rannsókna eins og vera ber.
Söfn eiga að geyma muni í
marga mannsaldra og því skiptir
góð geymsla höfuðmáli.
Starfsemi safnsins er í tölu-
verðri framsókn og er stefna
þess að koma sýningum á fót
víðar í héraðinu um hin ýmsu
aðskildu efni. Framundan er
undirbúningur fyrir nýja sýningu
í samvinnu við ferðaþjónustuað-
ila á Hofsósi sem á að opna
næsta sumar. Sú sýning ásamt
ættfræðisetri og upplýsingaþjón-
ustu hefur fengið heitið Vestur-
farasafnið -The Icelandic
Emigration House. Til þessarar
sýningar verður safnað af öllu
landinu enda er hún sú eina sinn-
ar tegundar hérlendis. Með upp-
setningu hennar er brotið blað í
samvinnu ferðaþjónustuaðila og
safna hérlendis. Vesturfarasafniö
er þáttur í samvinnuverkefni
fjölmargra þjóðlanda sem kallast
Routes to the Roots og stefhir að
því að sameina ferðaþjónustu og
menningarstofhanir í þeirri við-
leitni að fjölga ferðum Evrópu-
ættaðra Ameríkumanna til átt-
haga forfeðranna, gefa þeim inn-
sýn í sögu lands og þjóðar og
veita þeim upplýsingar um upp-
runa sinn eftir bestu faglegu leið-
um.
Söfnun
Undirrituð vill beina þeirri
ósk til lesenda aó þeir hugsi til
safhsins áður en hent er gömlum
hlutum. I augum safhmanns eru
margir hlutir oft fágætir og stór-
merkilegir sem öórum finnst
ruslahaugamatur. Ef lesandi á í
fórum sínum gamla muni sem
þurfa aó komast á öruggan stað
til frambúðar er einlæg ósk um
að þið hafiö samband við safhið.
I vetur verður lögð áhersla á að
safna munum sem tengjast bú-
ferlaflutningum fólks til vestur-
heims um og eftir aldamótin,
einnig skjölum og myndum sem
yrðu falin Héraðsskjalasafninu
til varóveislu. Þá bráðvantar á
safnið gamalt jólaskraut. Það má
vera 25 ára og eldra. Og auk alls
annars sem safnið tekur viö er
mikill fengur að fá muni sem
tengjast beint Ásheimilinu.
I langflestum tilfellum fara
munir á sýningu fljótlega eftir að
þeir berast. Sumir eru þó geymd-
ir til betri tíma og til eru hlutir
sem eru mikilvægir fyrir safnið
en eru ekki sýningarhæfir. Fólki
er velkomið aö hringja í síma
safnsins sem er 453 6173 til að
fá upplýsingar um búsetu og
mannlíf í Skagafirði áður fyrr
eða um muni sem fólk á í fórum
sínum og veit ekki um nafh eða
notkun á. Allar fyrirspumir eru
leystar eftir bestu getu.
Sigríður Sigurðardóttir
safhstjóri.
^ Matvörubúðin %
£
Aðalgötu 8 Sauðárkróki
Föstudaginn 17. nóv. veróum við aftur með
yfir 100 vöruflokka á 100 kr. stk.
og stendur það til 27. nóvember,
eða meóan birgóir endast.
o
Gr eiðslukortaþj ónusta!
Verið ávallt velkomin!