Feykir - 15.11.1995, Blaðsíða 6
6FEYKIR 40/1995
Heilir og sælir lesendur góðir.
Nokkuð eru enn til umræðu misjöfn
launakjör landsmanna. Ellilífeyrisþegi í
Garðabæ yrkir svo eftir að hafa fylgst
meó umræðum alþingismanna við Austur-
völl um bág kjör sér til handa.
Með bólgnar hendur blása í kaun
brúka vökustaura.
Þingmönnuni með lítil laun
lánum nokkra aura.
Önnur vísa kemur hér um svipað efhi.
Höfundur mun vera Hjalti Jónsson, áður
bóndi í Víðiholti í Skagafirði.
Misjafnt auði út er býtt,
ýmsa nauðirfanga.
Yfir hauður, hart og grýtt,
hlýt ég snauður gcmga.
Þar sem nú er eftir tímatali okkar kom-
inn vetur, hugsa eflaust margir með
söknuði til annarra árstíða. Einn af þeim
er Kristján Ólason. Hann yrkir svo.
Haustsins mál þig orkar á,
innsti sálarkjarni,
eins og þrá og eftirsjá
eftir dánu barni.
Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga
yrkir svo um haustkvöld.
Standa köld með beltin blá
byrgð í kvöldum svörtum.
Fjöllin tjöldum - hnjúka há
höfuðföldum björtum.
Jóhann bróðir Þorsteins mun vera
höfundur að þessari.
Vindar gjalla vítt wn svið,
veika hallast stráið.
Frostin valla gefa grið,
grösin falla í dáið.
Sigurjón Friðriksson á Litlu-Laugum í
Reykjadal orti svo eitt sinn á síðasta sum-
arkvöldinu.
Blikar kvöldsins bjarmaglóð,
bjartur, hlýr og fagur.
Hnígur þar á heljarslóð
hinsti sumardagur.
Um það leyti sem þessi þáttur er í
vinnslu berast þær fréttir á öldum
ljósvakans að forráðamenn raimagnsmála
séu famir að hugsa sér til hreyfings með
að stækka Blöndulón. Halda mætti að
nóg eyðilegging hefði nú þegar farið ffam
á gróöurlendi húnveskra heiða. Höfundur
að næstu vísu er Stefán Haraldsson bóndi
og vömbílstjóri í Víðidal í Skagafirði og
er hún gerð er hann vann við fram-
kvæmdir vegna Blönduvirkjunar um
1983.
Menn hér granda margri tó
mjög sá vandi brennur.
Allt til stranda út í sjó
enn þá Blanda rennur.
Eins og margir fleiri fagnar Stefán víst
í því umhverfi sem einkennir íslensk
öræfi og mun hafa gert næstu vísu er hann
flutti fé á fjall síðastliðið vor.
Gœti égfengið glasi að klingja
gígju strengir hljónm senn.
Heimisdrengir horskir syngja
hátt og lengi sanmn enn.
Á slíkum gleðistundum þakka menn
guðsgjafir og gætu eflaust einhverjir tekið
undir með Kára frá Valadal í næstu vísu.
Ylur streymir ört um mig
ástin geymist nueta.
Ég ófeiminfaðnm þig
fiaska heinmsœta.
Bjöm S. Blöndal hefur nokkum
fyrirvara á sínu áliti.
Vínið hreina hressir nmnn,
hryggð svo leynir andinn.
Það er eina ánœgjan
en þó meinum blandin.
Að mörgu er að gæta hvort sem ríkir
sorg eða gleði. Jón Pétursson yrkir svo.
Þínum áttu að gefa gaum
glöpum tilhneiginga
efþú finnur undirstraum
innri vísbendinga.
Þá held ég að þessi vísa sé einnig eftir Jón.
Tíminn bak við tjaldið hljótt
taumaslakur rennur.
Lífs kvöldvaka líður skjótt,
Ijós að stjaka brennur.
Um leið og ég þakka fyrir það efni
sem þættinum hefur borist vil ég enn
hvetja lesendur til að hafa samband og
víkja að mér vísum eftir sjálfa sig eða
aðra. Er svo góður kostur að enda með
fallegri hringhendu sem ort er til stök-
unnar. Höfundur er Jón Jónsson frá Ey-
vindarstöðum.
Gremju vindist gárar á
gleðilindum mínum.
Verðuryndið einatt hjá
unaðsmyndum þínum.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöóum
541 Blönduósi, sími 452 7154.
enn meðal efstu liða
Villuvandræði gegn KR
Tindastóll
Tindastólsmönnum hefur ekki
gengið sem skyldi í DHL-deild-
inni í síðustu tveimur umferð-
unum. Liðið tapaði fyrir ÍR-
ingum syðra sl. fimmtudags-
kvöld og síðan sínum fyrsta
heimaleik á þessari vertíð gegn
Islandsmeisturum Njarðvíkur í
Síkinu sl. sunnudagskvöld.
Tindastóll er engu að síður enn
i efri hluta deildarinnar, er í 5.
sæti með 16 stig eftir 12 leiki.
Tindastólsmenn fóm í leikinn
gegn ÍR-ingum án tveggja af sín-
um bestu mönnum, Péturs Guö-
mundssonar og Amars Kárason-
ar, sem báöir lágu í flensu heima.
Þá var Hinrik Gunnarsson ekki
laus við vímsinn og náöi sér ekki
á strik frekar en margir félagar
hans í Tindastólsliðinu. IR-ingar
geróu nánast út um leikinn í fyrri
hálfleiknum og lokatölur urðu
88:72. John Torrey skoraði 30
stig og Ómar Sigmarsson 20, og
voru þeir atkvæðamestir í liði
Tindastóls.
Njarðvíkingar gerðu góóa ferð
á Krókinn og náðu sér í tvö dýr-
mæt stig í toppbaráttu DHL-
deildarinnar, en Tindastólsmenn
biðu í fyrsta skipti í vetur lægri
hlut á heimavelli sínum.
Gestimir vom frá upphafi betri
aðilinn í leiknum, léku geysi-
grimma vöm allan leikinn og það
var fyrst og fremst sá þáttur sem
skóp sigurinn.
Tindastólsmenn byrjuðu illa í
leiknum. Hittnin var léleg og
margar sendingar fóm forgörðum
í sókninni, þannig að Njarðvík-
ingar fengu hverja gagnsóknina á
fætur annarri. Undir lok fyrri hálf-
leiks fóm skotin loksins að rata
ofan í og munurinn, sem mestur
varð 16 stig, var kominn niður í
10 stig í leikhléinu, 35:45.
Tindastólsmenn misstu leik-
stjómanda sinn Ómar Sigmarsson
af velli snemma í seinni hálfleikn-
um og fékk hann brottrekstrarvíti
í kjölfarið. Eftir þetta kom
smákafli þar sem heimaliðið virt-
ist ætla að taka leikinn í sínar
hendur með baráttu og grimmd,
en gestimir vom á öðm máli og
gerðu út um leikinn á skömmum
tíma. Öruggur sigur Njarðvík-
Félagar í Ungmennafélaginu
Neista á Hofsósi héldu sl. laug-
ardagskvöld uppskeruhátíð
sína, sem um leið var nokkurs
konar árshátíð félagsins. Hófst
hún með sameiginlegum
kvöldverði, þar á eftir var
skemmtun sem á þriðja
hundrað manns sótti og að
lokum var dansleikur með
Herramönnum sem stóð fram
eftir nóttu.
Viðurkenningar vom veittar
fyrir ástundun og íþróttaafrek
sumarsins í knattspyrnu og
ffjálsum íþróttum. I knattspym-
unni var Bjöm Svavar Jónsson
valinn besti leikmaður í flokki
10 ára og yngri og Friórik
Pálmason sá efhilegasti. í flokki
11 -14 ára var Rúnar Páll Stef-
inga var staðreynd, 69:82.
Torrey John var langbesti
maður Tindastóls í leiknum. Pétur
var drjúgur að vanda og Hinrik
lék ágætlega í seinni hálfleiknum.
Stig Tindastóls: Torrey 37 stig,
Láms Dagur 9, Hinrik 8, Ómar 8
og Pétur 7.Næsti leikur Tindastóls
verður í Smáranum í Kópavogi
annaðkvöld, fimmtudagskvöld,
gegn Breiðabliki. Vonandi nær
Tindastólsliðið sér þá á strik að
nýju, en liðið hefur ekki leikið
eins vel aó undanfömu og þaö
gerði í fyrstu leikjum sínum í
mótinu.
ánsson valinn besti leikmaður-
inn og Viðar Steinþórsson efni-
legastur. Magnús Jóhannesson
var valinn bæði knattspyrnu-
maður og íþróttamaður Neista.
Jón Bjamason þótti efhilegastur,
Viðar Einarsson sýndi bestu
ástundun í meistaraflokki og
markakóngur varð Jón Þór Ein-
arsson. I kvennaflokki var
Ragnheiður Bjamadóttir valin
besti leikmaðurinn og Álfheiður
Snæbjömsdóttir efhilegust.
Frjálsíþróttamaður Neista var
útnefnd Elín Gréta Stefánsdóttir
og Álfheiður Snæbjömsdóttir
þótti efhilegust. I yngri aldurs-
flokki þótti Viðar Steinþórsson
mesti frjálsíþróttakappinn og
Dagný Vilhjálmsdóttir efnileg-
ust. Jóna Rósa Stefánsdóttir fékk
Kvennalið Tindastóls beið
lægri hiut fyrir KR-ingum,
þegar Vesturbæingarnir komu
í heimsókn á Krókinn sl. laug-
ardag. Það var afleitur leikur
Tindastólsliðsins í fyrri hálf-
leiknurn sem gerði útslagið og
KR-ingar unnu öruggan sigur.
KR-ingamir byrjuðu mjög
vel í leiknum en Tindastólsstúlk-
umar virtust ekki ná takti. Á
töflunni mátti sjá tölur eins og
2:10 og 4:16 en síðan löguðust
hlutimir aðeins en ekki nóg til
þess að KR-ingar vom með yfir-
burðastöðu í hálfleik 19:42.
viðurkenningu fyrir gott starf að
frjálsíþróttamálum, Ólafur G.
Halldórsson hlaut vinnubikar
Neista fyrir góða umsjón með
íþróttasvæðinu og lipurð og
lagni við að virkja yngri kyn-
slóðina til starfa, en drjúgur hóp-
ur bama og unglinga tók þátt í
því að þekja æfingasvæðið í
sumar.
Þá vom tvenn aukaverðlaun
afhent. Að kröfu hljómsveitar-
innar Herramanna sem auglýstu
á keppnisbúningum Neista i
sumar var útnefndur „Herra
Neisti". Fyrir valinu varð nuddari
kvennaliðsins Haukur Þóröarson
frá Marbæli. Hin verðlaunin
voru svokallaður tilþrifabikar
sem Jón Þór Óskarsson hlaut.
Munurinn hélst síðan svipaður
fram yfir miðjan seinni háfleik,
en þá kom kafli þar sem Tinda-
stól náði að saxa á forskotið og
tókst að minnka muninn í 10
stig, en lengra varó ekki komist
og KR-ingar sigruðu 54:67.
Audry Codner var langat-
kvæðamest i liði Tindastóls þrátt
fyrir að þurfa að leika með fjórar
villur á bakinu mestan hluta
seinni hálfleiks, en villuvandræði
hjá lykilmönnum háði Tinda-
stólsliðinu í leiknum. Kristín
Magnúsdóttir fékk einnig
snemma á sig villur og gat því
ekki beitt sér á fullu í vöminni
allan leikinn. Kristín átti góöan
leik og einnig komst Sigrún
Skarphéðinsdóttir ágætlega frá
leiknum.
Stig Tindastóls skoruðu
Codner 30, Kristín 10, Sigrún 8,
Ásta Benediktsdóttir 3, Sandra
Guólaugsdóttir 2 og Rúna Bima
Finnsdóttir 1.
ljós punktur
í tilverunni....
Fjölmenn uppskeruhátíð Neista