Feykir - 13.12.1995, Blaðsíða 4
4FEYKIR 44/1995
Menningarvaka
í Bifröst
Sl. laugardag var haldinn í
félagsheimilinu Bifröst á
Sauðárkróki menningarvaka
þar sem lesið var upp úr
verkum rithöfundanna og
skáldanna, Guðmundar Hall-
dórssonar frá Bergsstöðum og
Guðmundar L. Friðfínns-
sonar, en sá síöarnefndi átti
níræðisafrnæli þennan dag.
Það var Safnahús Skag-
firðinga og Leikfélag Sauðár-
króks sem stóðu sameiginlega
að menningarvökunni, en tilurð
hennar má að miklu leyti rekja
til þess að síðsumars hafði
Kristinn G. Jóhannsson list-
málari á Akureyri tal af Hjalta
Pálssyni forstöðumanni Safna-
húss Skagfirðinga þar sem Krist-
inn bauð safninu að gjöf mál-
verk meó myndum af Guð-
mundunum tveim, á Bergs-
stöðum og Egilsá, en þeir voru
báðir góðkunningjar listamanns-
ins. Hjalti sagðist í fyrstu hafa
orðió hálfklumsa við, enda
afarsjaldgæft að svo höfðinglegt
boð berist saíninu.
Við upphaf menningarvök-
unnar flutti Björn Björnsson
skólastjóri Bamaskólans erindi
þar sem hann ræddi um rit-
höfundana. I máli hans kom m.a.
fram að þótt um ólíka höfunda
væri að ræða hefðu þeir báðir
leitast við að spegla þann
vettvang sem þeir þekktu best og
viðfangsefnin hefðu þeir þekkt
út í hörgul. Skagfirðingar ættu
þeim margt að þakka.
Þá sté í pontu Kristinn G. Jó-
hannsson og gat kunningsskapar
síns við skáldin áður en
listaverkin vom afhjúpuð en það
gerðu afkomendur Guðmund-
anna beggja.
Leikarar úr Leikfélagi Sauð-
áikróks fluttu dagskrá úr verkum
beggja höfundanna. Hjalti
Pálsson skjalavörður valdi úr
verkum Guömundar á Egilsá til
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim er
sýndu mér hlýhug og glöddu mig á
margvíslegan hátt á nírœðisafmœli
mínu 9. desember sl.
Guð blessi ykkur
Gleðileg jól
Guðmundur L. Friðfinnsson.
Mæðgurnar Þóranna
Kristjánsdóttir, ekkja
Guðmundar frá Bergs-
stöðum, og Sigrún
Guðmundsdóttir.
Guðmundur á
Innri átök þroska
oft hinn leitandi mann
sem fegurð í litum og Ijóði
og lífi jarðar ann.
Skáldið og skagfirski bóndinn
skorinort sömdu um það
að yrkja á sumrin angandi jörð
en yrkja um vetur á blað.
Skáldið og bóndinn skrifar
skýrt sitt œviljóð,
með bókum og skógi er enn að efla
og auðga land og þjóð.
Egilsá níræður
Bœkur og brekkur dalsins
bera vitni og skarta
verkum sem unnin eru
af alúð og vitru hjarta.
Og skáldið er enn að yrkja
við aftansins milda skin
með skaparann, skógarlundi
og skagfirskan dal að vin.
Meö nágrannakveóju,
Gunnar Oddsson.
Anna María Guðmundsdóttir dótturdóttir Guðmundar á Egilsá, Sigurbjörg Lilja yngsta dóttir
hans og Guðmundur L. Friðfinnsson, sem fagnaði einnig 90 ára afrnæli sinu á laugardaginn.
flutnings og Hilmir
Jóhannesson úr bókum
Guðmundar heitins frá
Bergstöðum. I dagskrár-
hléi var boðið upp á kaffi
og pönnukökur. Menn-
ingarvakan var vel sótt.
Verslun Haraldar Júlíussonar
Hjá okkur færð þú jólafötin á börnin.
Hanskar og vettlingar í úrvali.
Náttföt á börn og fullorðna.
Einnig vandaðar vinnuskyrtur
á góðu verði o. fl. o. fl.
Líttu inn. Það borgar sig.
Verslun Haraldar Júlíussonar
Munið ódýru jóladúkana........
Góð söngskemmtun
Bólhlíðinga í Miðgarði
Karlakór Bólstaðahlíðar-
hrepps hélt söngskemmtun í
félagsheimilinu Miðgarði sl.
laugardagskvöld, en komið er
á annan áratug síðan kórinn
söng seinast í Skagafirði. Söng
kórsins var vel tekið og þurfti
hann að syngja ein þrjú auka-
lög. Danssalurinn í Miðgarði
var þéttskipaður og aðsóknin
því ágæt, sérstaklega ef tekið
er tillit til þess hve liðið er á
jólaföstuna.
Það er Sveinn Amason sem
stjómar Karlakór Bólstaðahlíð-
arhrepps í ár eins og undanfama
vetur og undirleikari er sem fyrr
Thomas Higgerson. Einsöngvar-
ar em þeir Svavar H. Jóhanns-
son og Sigfús Guðmundsson.
Þeir Guðmundur Valtýsson á
Eiríksstöðum og Jón Gíslason á
Búrfelli fluttu gamanmál í hléi
söngdagskrár og var framlagi
þeirra vel tekið. Guómundur
gerði m.a. úttekt á stjómarmönn-
um í kómum og Jón var með
blöndu, vísur og gamanefni ým-
iss konar. Alls vom á söngskrá
Karlakórs Bólstaðahlíðarhrepps
að þessu sinni 18 lög.