Feykir - 13.12.1995, Síða 5
44/1995 FEYKIR5
Verslunarstaðurinn Hvammstangi 100 ára
í dag, 13. desember, eru nákvæmlega 100 ár frá því
ákveðið var meö lögum frá Alþingi aó gera Hvamms-
tanga aó löggiltum verslunarstað. Afmæli Hvamms-
tanga sem verslunarstaðar hefur verið miðað við
þennan dag. I tilefni þessa afmælis er að koma út saga
Hvammstangahrepps og Kirkjuhvammshrepps hins foma.
Bókin er væntanleg í byrjun næstu viku. Hér á eftir
kemur kaflabrot úr bókinni, þar sem m.a. er fjallað
um ástæður þess aö óskað var eftir löggildingu
Hvammstanga sem verslunarstaðar á sínum tíma.
Meö þátttöku bænda í Vest-
ur-Húnavatnssýslu í ýmsum
verslunarfélögum á síðustu ára-
tugum 19. aldar og vaxandi
verslun að öóru leyti var nokkuð
um það að kaupmenn við Fló-
ann sendu vörur með bátum á
Vatnsnes og tækju þá oft eitt-
hvað af vömm bænda í staðinn.
Slíkum siglingum fór líklega
heldur fjölgandi þegar líða tók
nær aldamótum. Kaupmenn á
Borðeyri, Skagaströnd og
Blönduósi sendu þá opin skip á
Vatnsnes, meðal annars í Sigríð-
arstaöaós og tóku vörur bænda,
einkum kjöt og gærur í staðinn
fyrir ýmsa þungavöru. Þessir
flutningar gátu þó aldrei full-
nægt þörfum allra bænda og
virðist sem þeir hafi aðallega
verið með því sniði sem segir í
bréfi Jóhanns Möllers til Þor-
gríms Jónatanssonar, aó gerðir
hafi verið samningar við ein-
staka bændur, eða hóp bænda og
hafi þeir fyrst og fremst notið
góðs af flutningunum.
Upphafbyggðar
Upphaf byggðar á Hvamms-
tanga má rekja til þess að ákveð-
ið var með lögum frá Alþingi
þann 13. desember 1895 að gera
staðinn að löggiltum verslunar-
stað. Höfðu bændur þá reynt að
fá kaupmenn til að landa vömm
sínum á Hvammstanga og skip-
stjórar jafnan hafnað þeirri
beiðni á þeirri forsendu að
ábyrgöarfélögin vildu ekki
ábyrgjast skip á ólöggiltum
höfhum. Bændur fengu þá þing-
mann sinn, Bjöm Sigfússon á
Komsá, til að leggja ffam ffum-
vaip um verslunarstaó á Hvamms-
tanga og sagði hann meðal ann-
ars í ræðu sinni á Alþingi:
Þó héraðsbúum sé ekki
áhugamál að fá fasta verslun á
þessum stað, þá er þeim þó
áhugamál að fá þennan stað lög-
giltan, vegna þess, að það munar
marga svo miklu um flutning á
allri þungavöm, svo sem timbri,
kolum, matvöm o.fl.... Kapteinn
Vandel skoðaði vandlega þenn-
an stað fyrir nokkmm ámm og
eftir skýrslu sýslunefndarmanns-
ins í Kirkjuhvammshreppi á
Vandel að hafa sagt að botn væri
ágætur og að í raun og veru
mætti skoða allan austurhluta
Miðfjarðar sem eina höfn, því að
botninn væri alls staðar svo góð-
ur og fjörðurinn hreinn og
skerjalaus.
Fyrstu húsin
Þessi breyting varð til mikils
hagræðis fyrir bændur í Vestur-
Húnavatnssýslu, sem fram að
því höfðu að mestu orðið að
sækja verslun til Borðeyrar eða
Blönduóss. Skipakomur vom þó
fáar fyrstu árin. Ekki upphófst
nein byggð á staðnum fyrst í
stað, en árið 1900 byggði Sig-
valdi Bjömsson ffá Bjargi í Mið-
firði þar tvö hús, annað fyrir
sjálfan sig, en hitt fyrir verslun-
arstjóra Riis kaupmanns á Borð-
eyri sem þá setti upp útibú á
Tanganum. Af manntalsskýrsl-
um verður ekki séð að búið hafi
verið í húsinu fyrstu árin, að
minnsta kosti ekki allt árið og er
ekki fráleitt að það hafi verið
notað undir vörur og verslunar-
stjórinn búið þar yfír kauptíðina.
Þetta sama sumar, aldamóta-
árið, rak Jóhann Georg Möller
kaupmaður á Blönduósi einnig
útibú á Hvammstanga og þetta
ár greiddu bæði Riis og Möller
tíundir af verslunarstarfsemi
sinni í hreppnum. Árið eftir var
Hvammstangi gerður að aósetri
héraðslæknis og seldi Sigvaldi
þá Bimi G. Blöndal héraðslækni
hús sitL
Augljóslega hefur eitthvert líf
verið á staðnum aldamótaárið og
jafnvel eitthvað fyrr, því gert er
ráð fyrir að þangað sé fluttur
póstur ffá Blönduósi, Borðeyri
og víðar og einnig er gert ráð
fyrir bréfhirðingu þar.
Tómthúsmaðurinn
flytur
Á fundi hreppsnefndar þann
7. desember 1900 var lesið upp
bréf frá Þorsteini Hjálmarssyni
bónda á Þóreyjamúpi, þar sem
hann sækir um leyfi hrepps-
nefndarinnar um að mega setjast
að sem tómthúsmaður á verslun-
arstaðnum Hvammstanga hér í
hreppi. Hreppsnefnin veitir þetta
leyfi, ef umsækjandi fullnægir
þeim skilyrðum sem þar að lút-
andi lög heimta að þurfti til þess
að það megi veitasL
Þorsteinn fluttist þó ekki á
staðinn fyrr en ári síðar.
Á þessum fúndi lá einnig fyr-
ir samsvarandi munnleg beiðni
frá Sigvalda Bjömssyni og var
honum gert að senda skriflega
Hvammstangi á fögrum sumardegi.
umsókn.
Samkvæmt manntalinu 1901
var aðeins búið í tveimur húsum
á Hvammstanga, Brunnhúsi,
sem síðar var kallað Blöndals-
hús og í Guðrúnarkoti, en þann
bæ reisti Sigvaldi Bjömsson
einnig árið 1900 eða 1901.
Brunnhús var svo nefnt vegna
þess að í kjallara þess var brunn-
ur er menn sóttu í neysluvatn
sitt. Guðrún sú sem Guðrúnarkot
var kennt við var Olafsdóttir,
ekkja Kristjáns ívarssonar bónda
á Kárastöðum og stundaði hún
veitingarekstur á Hvammstanga
um 10-15 áraskeið.
Vatnsskortur á
Vatnsnesi
Allt það árabil sem hér er til
umfjöllunar var vatnsskortur á
Hvammstanga mjög aðkallandi
úrlausnarefni. Málið virðist fyrst
hafa verið tekið upp í hrepps-
nefnd 1920 en þá var oddvita
falið að senda bréf til stjómar-
ráðsins með beiðni um að maður
yrði sendur til aó kanna hvemig
hentugast mundi að leggja
vatnsveitu í hús á Hvamms-
tanga. Jónas Sveinsson héraðs-
læknir tók málið fyrst til um-
ræðu á Málfundafélagi
Hvammstanga 1926 og var þá
kosin nefnd til að hefja viðræður
viö hreppsnefndina um málið. I
framhaldi af því var gerö lausleg
athugun á vatnslindum í ná-
grenni við þorpið. Málið var síð-
an rætt áfram á fúndum félagsins
og 1929 var hreppsnefhdin harð-
lega gagnrýnd fyrir tómlæti í
málinu. Svo mikið er víst að
ekkert varö úr framkvæmdum
og urðu Hvammstangabúar aó
mestu að láta sér lynda vatn úr
Syðri-Hvammsá allt til 1948.
Hér að neðan fer stutt lýsing
á vatnsmálum þorpsbúa frá því
um 1920. Höfundur er óþekktur
Frá því byggó hófst á Tang-
anum um aldamótin og til 1948
var ein atvinnugrein sem aldrei
brást. Það var að bera vatn í
menn og skepnur. Brunnholur
voru margar, sumar í kjöllurum
húsanna, en afnotin misjöfn.
Flestir notuóu vatn úr ánni. Á
vetmm mátti sjá húsmæður við
ána að moka djúpar holur með
mörgum tröppum til aó ná í
vatn. I rigningu og leysingu var
vatnið óhreinL Þegar ég var hjá
Sveinbimi Jónssyni komu sam-
an nokkrir karlar og ákváðu að
gera bmnn eða vatnsgeymi fyrir
ofan veg í forarmýri. Þama unn-
um við dag eftir dag, gerðum
djúpa og stóra gryfju, þiljuðum
yfir, meó brunnvindu og lás fyr-
ir. I næstu hláku fylltist gryfjan
af vatni, en þegar jörð þomaði,
hvarf allt vatn úr brunninum.
□
Jólaföt - Jólagjafir - Gjafabréf
Mikiö úrval af fatnaði á böm 0-14 ára:
Spariföt - skólaföt - kuldaföt.
Spariskór - Moonboots - kuldaskór.
Nýkomið - Tískuskart og músík fyrir böm.
Tískusýning á Hótel Mælifelli
sunnudaginn 17. des. kl. 15,00.
Verið velkomin!
Hans og Gréta
Aóalgötu 9, Sauóárkróki sími 453 643