Feykir - 13.12.1995, Síða 8
13. desember 1995, 44. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Fcyki fer víða!
Geir Jón Þórisson og Gissur Guðmundsson stjómarmenn í Styrktar- og líknarsjóði lögreglu-
manna ásamt Olöfu Þórhallsdóttur bónda á Narfastöðum.
Góðir gestir á ferðinni
Fyrir helgina vom góðir gestir
á ferð á Sauðárkróki, lög-
reglumennirnir Geir Jón Þór-
isson og Gissur Guðmundsson
frá Reykjavík. Þeir eiga báðir
sæti í stjórn Styrktar- og líkn-
arsjóðs lögreglumanna og
komu hingað í þeim tilgangi
að veita peningum úr sjóðn-
um, en þetta var í fimmta
skipti sem það er gert síðan
sjóðurinn var stofnaður á
Landsþingi lögreglumanna í
Vestmannaeyjum 1992.
Geir Jón er stjómarformaður
sjóðsins. Hann segir að í starfí
sínu verði lögreglumaðurinn oft
var við að hjálpar sé þörf, sem
hann geti ekki veitt í gegnum
starfið þrátt fyrir að vera allur af
vilja gjöróur. Þetta hafi verið
ástæða fyrir stofnun sjóðsins á
sínum tíma. Sjóðnum var skap-
aður tekjustofii með því að veita
í hann 50 krónum af félagsgjaldi
hvers lögreglumanns, einnig
stendur sjóóurinn fyrir jólakorta-
sölu og fleiri fjáröflunum. Það
var síðan til að auka til muna
möguleika sjóðsins til styrkveit-
inga er Jóhannes Sturla Guð-
jónsson, lögreglumaðurinn sem
stórslasaðist þegar ekið var á
lögreglubíl í tengslum við rann-
sókn á stóra kókaínmálinu, af-
henti nýlega 1 milljón af sínum
sjúkrabótum til sjóðsins. Jó-
hannes sagði að nú vildi hann
láta sjóðinn njóta góðs af því
sem hann hefði gert fyrir sig, og
auðvelda sjóðnum að hjálpa öðr-
um, en sjóðurinn keypti tæki á
Grensásdeild sem Jóhannes
Sturla naut við endurhæfinguna,
auk þess sem um var að ræða
fjárhagslegan stuðning við hann
ífá sjóðnum.
Það var að ábendingu lög-
reglunnar á Sauðárkróki sem
stjóm Styrictar- og líknarsjóðsins
ákvað að styrkja að þessu sinni
Olöfu Þórhallsdóttur bónda á
Narfastöðum í Viðvíkurhreppi,
en hún missti eignmann sinn og
ungan son í bílslysi á liðnu vori.
Olöf þakkaði lögreglumönnun-
um þennan óvænta stuðning og
bað Feyki um leið að koma á
framfæri kæm þakklæti til allra
þeirra sem hefðu stutt sig og
bömin sín eftir slysið og miss-
inn.
□
Félag æðarbænda í Skagafirði:
eyðingu meindýra
Vill efla
Á fundi í Æðarræktarfélagi
Skagafjarðar, sem haldinn var
nýlega, komu fram hörð mót-
mæli vegna ályktunar veiði-
stjóraembættisins þar sem
lagt er til að dregið verði úr
kostnaði við eyðingu refa og
minka. Fundurinn telur álykt-
unina stórhættulega og ógna
ftiglalífi landsins.
I ályktun ftindar Æöarræktar-
félags Skagafjarðar segir að ef
þjóðin sé svo fátæk að efni
skorti til að halda niðri fjölgun
meindýra, telji fundurinn réttara
að leggja niður embætti veiði-
stjóra og verja þeim peningum
sem í það fara til eyðingar refa
og minka sem og vargfugla, er
stöóugt virðist fjölga og ekki séu
sjáanlegir neinir tilburðir til að
reyna að halda í skefjun.
„Þar sem nokkrir tugir millj-
óna í gjaldeyri fáist væntanlega
árlega fyrir æðardún þætti fúnd-
armönnum æskilegra að veiði-
stjóraembættið hefði einhverja
tilburði með leiðbeiningar varð-
andi eyðingu refa og minka, en
hefði sig minna í ffammi sem
rukkunarstofnun fyrir veiðileyf-
isgjöld", segir einnig í ályktun-
inni.
Verkalýðsfélag A.-Hún.:
Semja beri eingöngu
við vinnuveitendur
„Verkalýðsfélag A.-Hún. telur
af margfenginni reynslu að
verkalýðsfélögin eigi eingöngu
að semja við vinnuveitendur í
komandi samningum. Standi
ríkisstjórnin sig hins vegar
ekki að mati verkafólks hefúr
launafólk á Islandi alla burði
til að gera ríkisstjórn það
skiljanlegt í alþingiskosning-
um“, segir í yfirlýsingu frá al-
mennum félagsfundi í Verka-
lýðsfélagi Austur-Húnvetn-
inga sem haldinn var sl.
fimmtudag. Þar var tillaga
launanefndar að segja ekki
upp samningum, samþykkt
með trega, en hörð gagnrýni
kom fram á störf launaneftid-
arinnar á fúndinum.
Fundurinn átaldi harðlega
vinnubrögð meirihluta launa-
nefndar að opinbera ekki niður-
stöðu sína fyrr en á síðasta
starfsdegi nefndarinnar.
Með þessum vinnubrögðum
hafi mörg verkalýðsfélög verið
sett í algjört tímahrak með af-
greiðslu á uppsögn samninga, en
mörgum þeirra var uppsögn
bundin því að launanefndin
segði ekki upp, því var ekki
hægt að afgreiða málið fyrr en
launanefhd hafði lokið störfúm.
í ályktun fundar VAH segir
einnig aó ljóst sé að ef þing Al-
þýðusambands Norðurlands og
Verkamannasambands Islands
hefðu ekki tekið jafn harða af-
stöðu í kjaramálum og raun varð
á, hefðu atvinnurekendur aldrei
tekið lásinn af töskum sínum
hvað þá opnað þær og ríkis-
stjómin trúlega svikið enn meira
en hún ætlaði í upphafi að gera.
Ingibjörg Sveinsdóttir t.v. ásamt eiganda Carmen, Helgu
Bjarnadóttur. Þetta var fimmta árið í röð sem nemandi
hársnyrtistofunnar hampar Islandsmeistaratitli.
Islandsmeistari í hárlist
Það verður ekki sagt annað en
henni Ingibjörgu Sveinsdóttur frá
Sauðárkróki gangi vel að nema hár-
greiðsluna, en hún er að læra þá ión
í Carmen í Hafnarfirði. Ingibjörg
gerði sér nefnilega lítið fyrir á dög-
unum og krækti í íslandsmeistara-
titil í tískulinu og kvöldgreiðslu,
eða í báðum þeim greinum sem hún
keppti í. Þess má geta að foreldrar
Ingibjargar eru þau Sveinn Sigfús-
son og Heiðrún Friðriksdóttir.