Feykir - 20.12.1995, Qupperneq 3
45/1995 FEYKIR3
Nærvera guðs og englanna
„Dýrö sé Guöi í upphœöum,
og friöur á jöröu meö mönnum,
sem hann hefur velþóknun á“,
sungu himneskar hersveitir fyrstu jólanóttina. Þegar þær
höföu birst í einni svipan við hliö engils, sem ræddi viö
hiröana forviöa á völlunum við Betlehem.
Þegar englarnir voru farnir til himins, sögöu hiröarnir
sín á milli: „Förum beint til Betlehem til að sjá þaö sem gjörst
hefur“.
Ogþaö gerðuþeir meö hraöi, sáu Guö sjálfan og vissuþar
meö aö löngu gefin fyrirheit voru efnd og að Guð var
kominn til jaröar.
Einnig viö höldum skjótt til Betlehem til aö koma aöjötu
frelsarans, til þeirrar Betlehem sem er í hjarta okkar. Viö
komum og krjúpum til þess að þakka þennan einstæöa
atburö á löngu liönum öldum svo og það einstæöa þegar
Guð sækir okkur heim og kemur til aö líta á aöstæöur mínar
og þínar. Þaö gerði hann aö sönnu ekki aðeins á hátíöinni
heldur hvern dag, en væntanlega er það svo aö við veitum
því ekki athygli eða hugsum um þaö, nema endrum og
sinnum. Við munum ekki alltafað Immanúel er ávallt hjá
okkur, Guö hjá okkur.
Nú í nánd jólahátíöarinnar, þessa daga jólaföstunnar,
fmnum viö nærveru Guðs greinilega, nærveru þess sem er
aö koma og fyrir hvern viö búum hjörtu og híbýli í besta
skart. Viö beyrum söng englanna hljóma skírt fyrir eyrum
okkar, greinum þessa aldagömlu hljóma, gleöi, lofsöng í
tónum allra sálmanna, laganna sem síöan hafa veriö
samin og leikin fæöingu frelsarans til dýrðar. Söngur um
frið og velþóknun á meöal manna er bergmál af söng
englanna á Betlehemsvöllum.
I upphafskafla Lúkasarguðspjalls, sem geymir jóla-
guðspjalliö, og ífrásögn Matteusar afkomu Jesú íþennan
heim eru englarnir nefndir.
Engill stendur skyndilega hjá Maríu og segir henni aö hún
sé valin tilþess að fæða frelsarann, engillinn birtist Sakaría,
fööur Jóhannesar skírara til aö boöa fæöingu hans. Svo var
þaö á allra fyrstu dögum Jesú og hann var í hættu kominn
vegna ótta og afbrýði Heródesar að engill birtist Jósep í
draumi og benti foreldrunum á undankomuleiö. Engill
Guös erfrá himnum sendur til aö leiöbeina og benda á veg
Drottins.
Ég hugsa aö mörg okkar eigum viö erfitt meö að útlista
nákvæmlega hvað engill er. Samt eru englarnir svo fast
bundnir tilveru okkar. Mörg okkar höfum viö örugglega átt
mynd af engli, kannski hékk hún yfir rúminu okkar í
bernsku, gerír hugsanlega enn. Þaö var svo öruggt að vita
af englinum viö höfuölagið þegar myrkriö var skollið á og
s'
SL
i
-t'-
enginn sjáanlegur eða enginn til aö halda í höndina á
lengur. Nema engillinn. Og aö morgniþegar allt var aftur
bjart og enginn ótti eöa hætta nærrí, tók engillinn brosandi
á móti barninu, haföi gættþess alla nóttina.
Fyrír nokkrum árum, heyröi ég í útvarpi - sennilega var
þaö nærríjólum - rætt um englana. „Hvaö eru englar?“, var
spurt. Og prófessor í guðfræðideildinni svaraði. Aö sögn
hans voru englar hugmyndir um veruleika, annan en þann
sem við höfum fyrir augunum. Þeir eru ekki ímyndun, en
þeir eru ekki til eins og þú og ég eöa eins og kaupfélagiö,
traust og á sínum staö. Þeir eru til eins og Guð. Og hann
sendirþá til aö bera okkur boö, styðja okkur.
Þegar englar sungu nóttina foröum fyrir hirðana, sem
síöan fengu aö sjá frelsarann íjötu, voru þeir aö flytja boö
um allt annan veruleika en hiröarnirþekktu, um eitthvað
háleitt og æöra hugsunum þeirra og lífi.
Ár hvert fylgir komu jólanna mikil tilhlökkun. Það er
eitthvaö sem liggur í loftinu. Óáþreifanlega en þó svo
greinilega nærri. Skyldiþað ekki einmitt vera eftirvœntingin
eftir hinu háleita, hinu dýrlega, sem kemur og gistir heimili
okkar, hjartaö og einkennir samskipti okkar?Jesús kemurog
hugleiöir líf okkar meö okkurog hann bendirá braut, sýnir
að eitt er hógómi, annaö svo mikilvægt að við ættum aö
rækta þaö. Viö fáum, ef viö höfum augun opin, að líta allt
meö augum hans. Við fáum aö sjá lífiö með augum
englanna.
Mitt í myrkrinu, sem einkennir hátíðina hér á landi,
heyrum við í söng englanna loforö Guðs um hjálp, um Ijós.
Guö snýr hinu illa til góðs, getur sent huggun í sorg og
gefiö von.
Á fyrstu jólum krupu hirðar og vitringar viö jötu
frelsarans og veittu með því lotning ogjátuöu trú. Einnig
þaö hæfir okkur á jólum.
Gleðilega jólahátíö
Dalla Þórðardóttir, prófastur, Miklahæ.