Feykir - 20.12.1995, Blaðsíða 5
45/1995 FEYKIR5
KS-bÓkin Ný og góð ávöxtun
hefur 5,50% vexti, er verðtryggð og hefur tveggja ára binditíma.
Nafnvextir almennrar Samvinnubókar eru 6,0%,
ársávöxtun 6,09%
Innlánsdeild
Kvenfélagskonur gefa
Sjúkrahúsi Skagfirðinga
Nýlega voru Sjúkrahúsi Skag-
firðinga færðar gjafir frá
kvenfélagskonum á Sauðár-
króki og í Lýtingsstaðahreppi,
en kvenfélögin hafa árum
saman verið dugleg að hlúa að
starfsemi sjúkrahússins á einn
og annan hátt
Kvenfélag Sauðárkróks færði
sjúkrahúsinu í þetta sinn fæðing-
armonitor (sírita) til notkunar á
fæðingardeild, en hliðstætt tæki
var orðið gamalt og ekki eins
fúllkomið og nýlegri tæki sem
komið hafa á markað. Þá færði
Helena Magnúsdóttir kvenfé-
lagskona sjúkrahúsinu að gjöf
skímarkjól sem hún hefur nýlega
saumað, og verður sá kjóll til
taks næst þegar stúlkubam verð-
Helena Magnúsdóttir th. með
skírnarkjólinn ásamt Krist-
björgu Ingvarsdóttur Ijós-
móður.
ur skírt á sjúkrahúsinu, en það
gerist nú algengara að böm séu
skíró á sjúkrahúsum, áður en
sængurkonur fara heim með þau.
Kvenfélagskonur úr Lýtings-
staðahreppi komu einnig færandi
hendi og gáfu ýmsa kirkjulega
muni í kappellu sjúkrahússins.
Ólafur Ingimarsson yfirlæknir
og Herdís Klausen hjúkrunarfor-
stjóri þökkuðu gjafimar.
Kvenfélagskonurnar fylgjast
með Ólafi Ingimarssyni yfir-
lækni skýra hvernig gamli
síritinn vann.
Nýr veitingasalur
opnaðurí Króknum
Sl. laugardagskvöld var opn-
aður nýr veitingasalur í Kaffi
Krók á Sauðárkróki. Eigend-
ur staðarins hafa kosið að
nefiia þennan nýja sal, Krók-
inn. Viðstaddir opnunina voru
á annað hundrað gestir og sal-
arkynnin voru þéttskipuð er
leið á nóttina. Talið er að um
þrjú hundruð manns hafi sótt
Krókinn aðfaranótt sunnu-
dagsins.
„Við teljum að þessi nýi salur
bjóði upp á marga möguleika,
bæði fyrir stærri og minni
skemmtanir, samkvæmi, ráð-
stefnur, tónleika o.fl. þannig að
það ætti að vera lióin tíð að
Sauðkrækingar þurfi að leita í
nágrannahreppana með allar
venjulegar árshátíðir. Salurinn
tekur vel 100 manns í sæti og
einnig er hægt að opna í milli
fram í kaffihúsið, þannig að við
teljum að möguleikarnis séu
ýmsir. Við ætlum okkur að
brydda upp á ýmsum nýjungum,
en meiningin er að höfða til
fólks sem er orðið vel tvítugt,
þar sem þörfum fúllorðins fólks
hefur ekki verið mætt sem skyldi
á þeim skemmtistöðum sem fyr-
ir voru“, segir María Björk
Ingvadóttir.
Nýi salurinn er glæsilegur á
að líta. Hann verður einnig
leigður út fyrir danskennslu,
enda danspláss þar mikið. Það
voru eigendur staðarins hjónin
María Björk og Ómar Bragi sem
stigu fyrsta dansinn í Króknum
og var meðfylgjandi mynd tekin
við það tækifæri.
Eigendur Kaffi Króks vilja
koma á framfæri kæm þakklæti
til þeirra sem unnu að breyting-
unum. Trésmiðjan Borg sá um
trévekið, Jón Geirmundsson um
pípulagnir, Gísli Sigurðsson um
raflagnir, Erlingur Jóhannesson
um múrverk, Ami Ragnarsson
var arkitekt varðandi breyting-
amar og tæknilega ráðgjöf ann-
aðist Verkfræðistofan Stoó. Út-
litshönnun gerði annar eigenda
Króksins, Omar Bragi Stefáns-
son.
Eldri borgarar
athugið
Áóur auglýstum jóla-
fundi í félagsaóstöóu
aldraóra í Sjúkrahúsi
Skagfirðinga, sem vera
átti fimmtudaginn 21.
desember er frestað til
fimmtudagsins 28.
desemberkl. 14.
Stjómin.