Feykir


Feykir - 03.04.1996, Qupperneq 1

Feykir - 03.04.1996, Qupperneq 1
RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Kaupfélag Skagfirðinga: Heldur verri afkoma í fyrra en árið áður Hagnaður af rckstri Kaupfclags Skaglirðinga á síðasta ári nam 20,3 milijónum króna og var út- koman hcldur lakari cn árið á undan cn þá varð hagnaðurinn 24,8 milljónir. Ef tekið er tillit til reksturs dótturfclaga og ann- arra fyrirtækja sem KS á eign- arhlut í nam hagnaður ársins 1995 135,2 milljónum króna, en var 13,6 milljónir króna árið á undan. Þcssi mikli mismunur skýrist að sticrstum hluta af sölu Drangeyjar á síðasta ári. Deildarfundir KS hafa verió haldnir að undanfömu og aóal- fúndur veróur síóar í mánuðinum. Staða Kaupfélags Skagfiróinga er sterk, sem sést á því að eigið fé var 1.244,3 milljónir í árslok og var eiginijárhlutfallið 55,1%. og hefúr það aukist um 2,8% milli ára. Veltufjárhlutfall hefur hinsvegar minnkað, úr 1,99 í 1,90 milli ára. Þessi lækkun stafar fyrst og ífemst af fjárfestingum á árinu 1995 og niðurgreiðslum lána. Veltufé frá rekstri nam 127,7 milljónum á síð- asta ári en var 134,9 milljónir árið áundan. Áhöfhin á Sandvík kemur með fidlfermi að landi, Hartmann Halldórsson, Guðmundur Árnason og Stefán Pálsson. Mokveiði á innfjarðarrækju Slæm útkoma hjá SAH en bati hjá Kaupfélagi Húnvetninga Talsverður bati varð hjá Kaup- felagi Húnvetninga á Blönduósi á síðasta ári. Hagnaður varð á rekstri er nam 1,7 milljónum og velta fyrirtækisins jókst um 11%. Árið á undan voru rekstrartekjur og gjöld í jafn- vægi. Rekstur Sölufélags A.- Hún. gekk ekki eins vel í fyrra og árin á undan. Tap varð upp á 2,8 mifljónir, eftir að afskrifað hafði verið hlutafé í Islcnskum búvörum, sem áður var Goði, upp á 3,6 milljónir. Aðalfúndir bcggja félaganna voru haldnir fyrir hclgina. Veltuaukningin hjá KH er að sögn Guðsteins Einarssonar kaupfélagsstjóra, einkum tilkom- in vegna aukinnar sölu í öllum deildum félagsins, ekki síst hjá Vilko. Sala á súpunum hjá Vilko jókst um 68% á síðasta ári og deildin þrefaldaði afkomu sína upp í sameiginlegan kostnað hjá KH. Uppsveiflan er enn til staðar hjá Vilko. Sölumet var sett hjá fyrirtækinu í febrúarmánuði. Þar starfa átta manns við framleiðsl- una og í skoðun er að bæta véla- kostinn. Slæm útkoma Sölufélagsins má að sögn Guösteins einkum reka til sláturhúss og kjötsölu. Rekstur Mjólkursamlagsins kom hinsvegar ágætlega út. „Slátrunin og kjötsalan er það sem veldur mönnum verulegum áhyggjum og verður að bregðast við meö einhverjum hætti“, segir Guð- steinn. Hann segir stöðu SAH engu að síður sterka. Eigiö fé fé- lagsins er 237 milljónir eóa 44% af efnahagsreikingi, en staöa KH er hinsvegar viðkvæm. Eigið fé einungis 37 milljónir eða 13% af efnahag. Fjármagnskostnaður fé- laganna var svipaður á milli ára Magnús Ólafsson á Sveins- stöðum sem verið hefur stjómar- formaður í SAH síðustu níu ár lét af formennsku, en lög félagsins heimila ekki formannsetu í lengri tíma. Við formennsku af Magn- úsi tók nágranni hans Ragnar Bjamason í Norðurhaga. Mokveiði hefur verið á inn- fjarðarrækjunni á Skagafirði að undanförnu og hefúr rækju- vinnslan Dögun þurft að óska eftir því við stjórnendur bát- anna að þeir takmarki veiðam- ar. Dögun afkastar 14 tonnum í vinnslunni á sólarhring og hafa afköstin aukist um fjórðung að undanförnu með tilkomu svo- kallaðs „kerlingarbana“ og aukins frystirýmis verksmiðj- unnar, en hvorutveggja var tekið í notkun um mánaðamót- in janúar-febrúar. „Við stýrum veiðunum og vinnslunni í samráði við bátana“, segir Ágúst Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Dögunar, en kvót- inn á rækunni var aukinn upp í 500 tonn á þessari vertíð. Þrír fjórðu kvótans koma til vinnslu hjá Dögun, en allir bátamir þrír sem gerðir eru út á rækjuna frá Króknum leggja upp hjá verk- smiðjunni, Jökull, Sandvík og Þórir. Berghildur frá Hofsósi leggur hins vegar upp hjá Þor- móói ramma á Siglufirði. Þegar tíóindamaður Feykis var staddur á bryggjunni á dögunum var Sandvík að landa um sex tonnum af ágætri rækju. Skipverj- ar sögðu þetta venjulega veiði þegar vel viðraði, en báturinn bæri ekki mikið meira. Þórir er að svipaðri stærð og kemur með álíka magn að landi, en Jökull er stærri og venjuleg veiði er 10-12 tonn. Þessa dagana er verió að ljúka við að koma upp búnaði í Dögum sem skilur hratið frá rækjunni og er þaó flutt í mjölvinnsluna á Hvammstanga. Um sjö tonn af rækjuúrgangi fellur til dag hvem og kemur nú til vinnslu á Tang- ann, en fór áður í sjóinn rétt við höfnina, sem „fiskafóður" að sögn Ágústs í Dögun. „Það er eins og straumurinn hafi tekið þetta og borið það á haf ÚL Þetta hefur lítið sést á fjörum og ábyggilega ekki borist mikið inn í höfnina“, segir Ágúst Misgóðar sölu togara Hegranesió gerði ágæta sölu í Bremerhaven sl. miðvikudag en Skagfirðingsmenn höfðu ekki heppnina með sér nú eftir helgina og salan hjá þeim var lægri þrátt fyrir að þeir væm með talsvert magn umfram Hegranesið. Með- alveróið hjá Hegranesinu fyrir hvert kíló var 148 krónur en hjá Skagfirðingi aóeins 101 króna. Hegranesið var með 167 tonn og fékk fyrir farminn 24,7 millj- ónir sem er mjög góð sala. Skag- firðingur var með alls 183 tonn, seldi á mánudag 143 tonn fyrir 16,7 milljónir og síðan á þriðju- dag 40 tonn fyrir 2,1 milljón . „Þetta eru miklar sveiflur í þessu. Hegranesið er náttúrlega að selja á degi sem oft hefur reynst vel og gefið góð verð, en Skagfirðingur lendir í því að of- framboö hefur orðið á markaðn- um. Þaó er svona ein af mörgum ástæðunum, en einnig var Hegra- nesið með mjög stóran og góðan frsk“, sagði Gísli Svan Einarsson útgeróarstjóri Skagfiróings. —Kten$ifl — Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bílas. 853 1419, íax 453 6019 Almenn verktakaþjónusta Frysti- og kœliþjónusta Bíla- og skiparafmagn Véla- og verkfœraþjónusta Sœmundargötu bílaverkstæði Sími 453 5141 16 Sauöárkróki íax: 453 6140 Bíloviðgerðir Hjólbarðaverkstœði Réttingar Sprautun

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.