Feykir - 03.04.1996, Page 2
2FEYKIR 13/1996
Sem kunnugt er fékk Máki hf úthlutað styrk frá Evrópusambandinu á liðnu hausti vegna tveggja
verkefha sem fyrirtækið vinnur að í samstarfi við fleiri aðila. í liðinni viku voru á ferð á Sauð-
árkróki fulltrúar frá Evrópusambandinu í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi Máka og skoða
aðstöðu fyrirtækisins. A miðri mynd er Guömundur Örn Ingólfsson (skeggjaður) fram-
kvæmdastjóri Máka að útlista fyrir sendinefndinni.
Kór og hljómsveit frá Seltjarnar-
nesi í heimsókn á Blönduósi
Tónlistarfélag V.-Hún:
Tónleikar í Selinu
Hin stórgóða söngkona Guð-
rún Gunnarsdóttir ásamt Val-
geiri Skagfjörð, verða með
Toyota double Cab disel turbo
intercool árg. 91, ekinn 102 þús.
km.Vcrö 1.750.000.
Toyota Land cmser disel turbo,
árg. '88, ekinn 195 þús. km.
Verð 1.100.000.
Toyota Hyace disel 4x4
árg.'91, ekinn 42 þús. km.
Verð 1.490.000..
MMC L 300 bensín, árg. '90,
ekinn 118 þús. km, gluggar og
sæti fyrir 8. Verð 1.200.000.
MMC Lancer GLX.I 1600
station 4X4, árgerð 1993, ekinn
84þús. km. Verð 1.280.000.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SF.
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Heimasími sölumanns 453 5410.
tónleika í Selinu Hvamms-
tanga í kvöld, miðvikudaginn
3. apríl nk. Tónleikarnir eru
heldnir á vegum Tónlistar-
félags Vestur-Húnvetninga og
hefjast þeir kl. 22 og standa
fram undir miðnættið.
Guðrún er löngum þekkt fyrir
góðan söng, en hún hefur m.a.
tekið þátt í Tvískinnungsóper-
unni og Súperstar, auk þess að
hafa sungió inn á ljöldan allann af
hljómplötum. Valgeir er einnig
vel þekktur, hvort heldur sem
leikari, texta- og lagahöfundar
söngvari eða hljóðfæraleikari.
A tónleikunum flytja þau
aðallega íslenska tónlist, bæði
frumsamda tónlist Valgeirs svo
og mörg þekkt vinsæl lög m.a. úr
leikritum.
(fréttatilkynning)
Sigríður
tapaði
málinu
Hæstiréttur sýknaði í liðinni
viku Dagsprent hf á Akureyri
af kröfu Sigríðar Þorgríms-
dóttur fyrrverandi blaðamanni
Dags á geiðslu skaðabóta, en
Sigríður gegndi starfi blaða-
manns á skrifstofú blaðsins á
Sauðárkróki um hríð.
Héraðsdómur Norðurlands
vestra hafði dæmt Sigríði skaða-
bætur að upphæð 400 þúsund.
Sigriður byggði skaðabótakröfu
sína á því að henni hafi verið sagt
upp starfi á sínum tíma af þeirri
ástæðu aó hún væri bamshafandi
og Dagsprent væri þar með að
komast hjá því að greiða henni
laun í fæðingarorlofi.
Dagsprent byggði vöm sína á
því að ástæða uppsagnarinnar
hafi verið lokun skrifstofunnar á
Sauðárkróki og til þeirrar að-
gerðar hafi verið gripið vegna
endurskipulagningar í rekstri
Dags.
Hæstarétti þykir Dagsprent
hafa sýnt lfam á svo veigamikið
tilefni fyrir uppsögn Sigríðar „að
á það beri að fallast, að fullnægt
hafi verið skilyröi um gildar
ástæður uppsagnar" með vísan
til laga um fæðingarorlof frá
1987.
Málskostnaður í héraði og
lyrir Hæstarétti var felldur niður.
Það voru góðir gestir hér á
Biönduósi um síðustu helgi,
þegar þeir bræður Jón Karl
og Kári Einarssynir heimsóttu
okkur, Jón Karl með Selkór-
inn og Kári með Lúðrasveit
Seltjarnarness.
Það var í einu orði sagt ffá-
bært að hlusta á 40 manna kór
með undirleik 30 manna lúðra-
sveitar flytja Fangakórinn eftir
Verdi, og það verður ekki síður
eftirminnilegt að hafa heyrt 16
ára ungling leika einleik á
básúnu í konsert fyrir básúnu og
hljómsveit eftir Rimsky Korsa-
kov.
En það var raunar sama hvað
verið var að flytja, fágun og ná-
kvæmni flutningsins var með
því allra besta og kirkjan flutti
söng- og hljóðfæraleik með
ágætum. Það eina sem skyggði
á var hversu margir misstu af
ffábærum tónlistarviðburði. Hafi
Seltirningar kæra þökk fyrir
komuna. Sigurður Kr.
Selkórinn frá Seltjamamesi. Mynd/Sigurður Kr. Jónsson.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Om Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 160 krónur
hveri tölublað m/vsk. Lausasöluverð 180 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.