Feykir


Feykir - 03.04.1996, Síða 5

Feykir - 03.04.1996, Síða 5
13/1996 FEYKIR5 „Hef fengið mikil viðbrögð frá fólki" segir segir séra Kristján Björnsson á Hvammstanga sem vill að biskupi íslands, herra Ólafi Skúlasyni, verði vikið úr embætti Kristján Björnsson sóknar- prestur á Hvammstanga hef- ur allt frá því að svonefnt biskupsmál kom upp verið þeirrar skoðunar að biskup ætti að víkja meðan fagleg og lögfræðileg rannsókn færi fram á málinu. Reyndar vill séra Kristján kalla málið Olafsmál, þar sem það varði persónu hans sjálfs fyrst og fremst, ekki embætti biskups, en Olafur sé þó með áfram- haldandi setu sinni búinn að draga embættið mjög niður. Kristján Björnsson skrifar mjög opinskáa grein í Dag sl. laugardag undir yfirskriftinni „Hreinsun pálmasunnudags- ins“. I samtali við Feyki sagðist Kristján hafa fengið mjög mikil viðbrögð við greininni. Fjöldi fólks hafi hringt í sig, aðallega frá Norðurlandi fyrst eftir aó greinin birtist í Degi, en síóan víðsvegar af landinu eftir að aðrir miðlar birtu fréttina. í greininni segist Kristján hafa óskað eftir því við kirkjumála- ráðherra að gerðar verði viðeig- andi ráðstafanir til að hr. Ólafi Skúlasyni biskupi Islands verði vikið úr embætti. Kristján segist hafa leitað til ráðherra þegar ljóst var að biskup ætlaði ekki að virða viðlits áskomn sína um að víkja úr embætti. „Eg ætla ekki að dæma, en viðbrögð biskups á opinbemm vettvangi hafa ekki verið líkleg til að auka tiltrú fólks á algjöru sakleysi hans. Eina lausnin á málinu sýnist mér vera að bisk- up víki úr biskupsstofu“, sagði Kristján í samtali við Feyki. Þaö versta í viðbrögðum hr. Ólafs hafi verið að hann skyldi ekki víkja strax þegar ásakan- imar komu fram. Þá hafi við- brögð hans gegn ásökunum kvennanna er bám hann sökum verið harkaleg, hvað þá fram- ganga lögmanna hans sem hafi komið fyrir sjónir eins og hund- amir í Animal farm, þegar þeir létu hæst. „Síðan er það ótrúlegt brot, eins og biskup segir sjálfur, þegar hann fékk starfsfólk Langholtskirkju til að rita sér trúnaðarbréf um það hver sótti viðtöl til prestsins. Brotið var síðan fullkomnað með því að rjúfa trúnaðinn viö þetta starfs- fólk og senda bréfið inn á allar helstu fréttastofur landsins. Það er alvarlegt brot á þagnarskyldu og siðareglum presta“, segir séra Kristján Björnsson á Hvammstanga. Siðanefnd Prestafélags ís- lands birti úrskurð sinn á mánu- dag og komst að sömu niður- stöðu og Kristján hér að fram- an. Kirkjan á til úrræði Sé gripiö niður í grein Krist- jáns í Degi segir þar m.a.: „Þegar nokkrir prestar taka á sig rögg og skrifa honum rök- studda greinargerð þess efnis að hann eigi hiklaust að víkja með- an mál hans em til meðferðar, svarar hann því til að þetta séu nú bara fáeinir prestar. Þjóð- kirkjan mun því eiga hann til ævarandi áminningar um það hvemig ekki átti að bregðast við og í sögunni mun hann festa sig í sessi sem biskupinn er ekki vék. Þetta segi ég í ljósi þess að kirkjur víða um lönd hafa þegar glímt við þennan vanda og farið í gegnum sárindin sem af honum hljótast. Nokkrar af nágrannakirkjum okkar hafa mótað vinnuáætlanir til að bregðast við álíka ásökunum. Þegar við lesum þær rennur upp fyrir okkur að kirkjan á til úr- ræði og hún hefur fundið leið til að skapa frið um úrvinnslu slíkra mála. Það er því sorglegt að sjá forystusveit þjóðkirkj- unnar sniðganga faglegar og færar leiðir en grípa þess í stað til hörkunnar og sverðsins þeg- Séra Kristján Björnsson. ar slegið er á kinn herra Ólafs. Það er dapurlegt að sjá hvemig tilburðir til að drepa málinu á dreif hafa aðeins orðið til aó eldur er nú borinn að hverju embætti kirkjunnar. Þagnar- skyldan í starfí kirkjunnar fuðr- ar upp og niðurlæging prest- anna er mikil í starfi þeirra að sálgæslu ekki síður en sóknar- bama allra“. Gtedilega páska Góóan mat á hátíöarboröiö fœröu hjá okkur Hangikjöt, svínasteik, nautasteik, lambasteik, kalkúnar, kjúklingar, endur ofL ofL Allt meölœtiö á góöu veröi. Gott úrval af ávöxtum og grœnmeti. Skagfírðingabúð opió laugardag fyrir páska frá kl. 10,00-16,00

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.