Feykir


Feykir - 03.04.1996, Page 6

Feykir - 03.04.1996, Page 6
6FEYKIR 13/1996 hagyrðingaþáttur 206 HRHHHHHHHHHHRHHHRRHHHRHHRHHHHRRHHHHHHHHHHRHHHHHRHHHHHHHHRHHHRI^Hm Heilir og sælir lesendur góðir. Fram hefur komið leiðrétting á einni af þeim vísum er birtist í síðasta þætti. Þá hafa einnig borist þær upplýsingar að höfundur umræddar vísur muni vera Dýr- ólína Jónsdóttir áður húsfreyja á Fagra- nesi á Reykjaströnd. Birti ég þá vísuna með þeim leiðréttingum sem ég hef feng- ið. Lítið drottinn lét í té líkamsfegurð minni. Vonlegt er að sálin sé svipuð umgerðinni. Dýrólína mun hafa á sínum yngri ámm dvalið í Lýtingsstaðahreppi og mun vísan vera gerð á þeim tíma. Voru tildrög þau að hún heyrði einhverja samferóa- menn ræða um að þeim þætti hún ófdð. Jón Oddur Þórhallsson á Sauðárkróki velti fyrir sér hvað hann þurfti að eignast til þess að verða fullkomlega sáttur við líf- ið og tilveruna. Hann komst að eftirfar- andi niðurstöðu. Að eiga lipran Land-Rover ergott og lífsglaða konu þá betra. Tölvu undir Ijóðinfin ogflott ogfjórgangshest sjö vetra. Eigir þú svo óðalsjörð, arinn, gítar, speki og hund. Fögur börn og frjóan svörð jullnuð er þín óskastund. Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk er höfundur næstu vísu. Mun hún vera gerð nú fyrir skömmu er hann lá á sjúkrahúsi á Akureyri. Liðna tíðin líður burt, Ijúft er minning, kenna. Ég hefalla œfi þurft aðstoð góðra kvenna. Stefán Stefánsson frá Móskógum velt- ir fyrir sér gangi lífsins og yrkir svo. Öllum meyjum upp í loft ástin snýr í skyndi. Fíkjublöðin fjúka oft ífreistinganna vindi. Önnur vísa kemur hér eftir Stefán, sem hann mun hafa ort að endaðri ævi vin- konu sinnar. Þín er enduð œvistund ceska, gleði og snilli. Þekkti ég þig spaka sprund spjaldanna á milli. Einhverju sinni bar svo við í sveitar- stjómarkosningunum á Hellu að tveir list- ar vom í kjöri. Efst á lista mótframboðs oddvita var kona. Um þá uppstillingu orti Jónatan Jakobsson svo. Alvarlegan álitshnekki oddvitinn á Hellu bíður. Efaðfrúin fellur ekki fyrir honum senn hvað líður. Önnur vísa kemur hér sem ég held að sé einnig cftir Jónatan. Hekla hún er beggja blands, ber á eldinn skíði. Hún er sveitum sunnan lands sífelld ógn og prýði. Vegna frásagnar af skipsferðum tveggja kvenna í Hafnarfirði og mikillar rannsóknar á smokk í eigu annanrar þeirr- ar orti Aðalbjöm Benediktsson svo. Enn er rennt á erlend mið aflann þatfað kanna. Enda kannski út-sceðið afurð tveggja manna. Mikið hefur fæðst af vísum nú undan- famar vikur í þeirri miklu umfjöllun sem verið hefur um málefni kirkjunnar manna. Það er Sigfús Jónsson í Skrúð sem yrkir svo. Kirkjan er afFlókum full friðarhnefinn steyttur. Prestar tala bara buU og biskup orðinn þreyttur. Þórður Skúlason mun vera höfundur að þessari. Blessaði drottinn ó bcen mína heyr hún bljúg er og iðrunarfull. Ég er þreyttur og leiður á þrasinu í Geir og þoli ekki meira bull. Jóhann Guðmundsson frá Stapa legg- ur þetta til málanna. Orgelið þagnar, nú kyrjar ei kór og kirkjan í martraðardraumi. Presturinn illskast af andagift sljór og andskotinn glottir í laumi. Ekki veit ég um höfund að þessari. Biskupinn þó brýni raust og brúki aðferð klóka, þá er ekki andskotalaust að eiga við séra Flóka. Önnur kemur hér sem einnig er höf- undarlaus. Þó sóknamefndin sitji fundi, samt hefur orðið tjón. Friður sé nteð oss í Flókalundi. Farðu til andskotans Jón. Þá vil ég þakka lesendum fyrir góðar undirtektir með efni fyrir þáttinn og enda hann svo með þeim alvarlegu staðreynd- um sem Steindór Andersen drepur á í eft- irfarandi vísu. Fœrir klerkar fara á sprett, umflókin kirkjumálin þrefa. Kœrleiksverkin kenna rétt en kunna ekki að fyrirgefa. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Heimir „á túr" Lögberg Heimkringla, blað Is- lendinga í Vesturheimi, birti á dögunum grein um Karlakór- inn Heimi, þar sem vitnað er í bréf Harðar Ingimarssonar á Sauðárkróki til blaðsins. I greininni eru látnar í ljósi væntingar um komu kórsins til Kanada næsta sumar. Fyr- irsögn greinarinnar „Heimir on tour“ lauslega þýtt Heimir túr“ er kannski svolítið tví- ræð, þar sem haft er í huga að þarna eru 60 karlmenn á ferð- inni. Það er e.t.v. að bera í bakka- fullan lækinn, að enn einu sinni skuli Heimismanna getið á síð- um Feykis, eins rækilega og það hefur verið gert undanfarin miss- eri, en eflaust samt margir til að fagna því. Og það er kannski táknrænt um þá vakningu sem er fyrir kórsöng í landinu um þess- ar mundir og sumir vilja þakka Heimi, að neðst í homi síðunnar þar sem greinin er um Heimir í Lögbergi Heimskringu, er lítill rammi þar sem lesendur eru á- minntir um að minnast Bet- elsafhaðarins í erfðaskrám sín- um. Hvort ætla má að vakning Heimis sé farinn að ógna trúar- Bræðurnir Gísli og Sigfús Péturssynir þenja raustina, Útvarp Norðurlands: Svæðisbundnar útsend- ingar yfir páskana Útvarp Norðurlands býður upp á svæðisbundnar útsend- ingar yfir páskana eins og und- anfarin ár. Leitast verður að fylgjast með öllu markverðu sem er í boði fyrir ferðamenn og heimafólk á hlustunarsvæð- inu. Einnig veróur greint ítar- lega frá starfsemi skíðasvæða, færð og veðri. Útsendingamar hefjast klukkan 11,00 og standa fram að hádegisfréttum. Mörg sveitarfélög bjóða upp á afþrey- ingu fyrir þá fjölmörgu ferða- menn sem eru á faraldsfæti þessa helgi, sem er ein mesta ferðamannahelgi ársins. A Ak- ureyri verður ýmislegt í boði en þar hafa nokkur fyrirtæki sam- einast meðal annars um að reka tívolí og fleira fyrir gesti og heimamenn. Útvarp Norður- lands tekur vinsamlega við á- bendingum frá hlustendum um það sem er í boði yfir páskana. Starfsmenn svæðisútvarpsins sjá um páskaútvarpið og út- varpað verður alla daga nema annan í páskum. (fféttatilkynning) söfnuðum Þar vestra, skal þó ósagt látið. En það em ekki aðeins vænt- ingar hjá frændum okkar vestra fyrir komu kórsins. Heimismenn sjálfir munu vera fullir tilhlökk- unar. Auk eiginkvenna og nokk- urra velunnara mun slást í hóp- inn Ómar Þorfinnur Ragnarsson fréttamaður ásamt eiginkonu, en jafnhliða því sem hann festir söng Heimis á filmu vinnur Ómar að gerð þátta um byggðir Vestur-Islendinga í Kanada fyrir íslenska sjónvarpið. Guðmundur sigraði á fyrsta opna golfmótinu á árinu „Sumar helgar eru svona“, sagði Guðmundur Ragnars- son kylfingur frá Sauðár- króki, sem gerði sér lítið fyr- ir og sigraði á fyrsta opna golfmóti ársins, en það fór fram í Leirunni á Reykja- nesskaga um helgina. Keppt var samkvæmt punktafyrir- komulagi 7/8 forgjafar- keppni. Guðmundur hlaut 39 punkta. Tæplega 200 kylfingar tóku þátt í mótinu, margir af bestu golfspilurum landsins. Það vorar óvenjusnemma hjá kylf- ingum að þessu sinni og eru félagar í Golfklúbbi Sauð- árkróks þegar byrjaðir að spila á Hlíðarendavelli. □

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.