Feykir - 03.04.1996, Qupperneq 7
13/1996 FEYKIR7
Hver er
maðurinn?
í síðasta myndaþætti voru
birtar myndir af fímm konum. A
mynd nr. 114 em þær Theodóra
Hallgrímsdóttir frá Hvammi í
Vatnsdal (standandi) og Ragn-
heiður Konráösdóttir á Hellu-
landi (sitjandi). Þá er líklegt að
mynd nr. 116 sé af Þorbjörgu
Guðmundsdóttur frá Vatnskoti.
Það var Þórunn Olafsdóttir á
Hellulandi sem upplýsti okkur
um þetta. Henni og öðrum sem
höfðu samband em færðar bestu
þakkir.
í þessum myndaþætti birtast
enn fjórar myndir af konum.
Myndir 117 til 119 em teknar af
Jóni Pálma ljósmyndara á Sauð-
árkróki en mynd nr. 120 af Jóni
J. Dahlmann á Akureyri. Mynd-
imar vom í eigu Margrétar Kon-
ráðsdóttur frá Ytri-Brekkum.
Þeir sem vita af hverjum
myndimar em hafi vinsamlegast
samband við Héraðsskjalasafn
Skagfirðinga í síma 453 6640.
Mynd nr. 117.
Mynd nr. 118.
Ókeypássmáor
Til sölu!
Til sölu Subaru Justy 12
sjálfskiptur, ekinn 7.800 km, árg.
1990. Upplýsingar í síma 453
5141 (Jóhann). Mjög góður bfll.
Til sölu notaðir varahlutir í eldri
gerðir af dráttarvélum og vöm-
bílum. Einnig vagnefni, dekk og
kerrur. Upplýsingar í síma 453
8055.
Til sölu bamakerra og þríhjól.
Upplýsingar í síma 453 5065.
Til sölu hjónarúm með áföstum
náttborðum, tekkspónn og
svampdýnur. Upplýsingar í síma
453 5376.
Kvíga til sölu, komin nálægt
burði. Upplýsingar í síma 453
6502.
Atvina óskast!
24 ára stúlka óskar eftir sumar-
vinnu í sveit. Er vön fjósverkum,
ráðskonustörfum og tamningum.
Upplýsingar í síma 467 1053 eða
437 0102.
Ýmislegt!
Thailensk 32 ára kona óskar eítir
að kynnast íslenskum karlmanni.
Hún vill gjaman búa á
Sauðárkróki eða nágrenni. Þeir
sem hafa áhuga skrifi á ensku og
sendi passamynd til:
Kmawan Srilamtai,
126/8 BanNongpai,
T. Nathrai,
U. Pibunlag,
41130 Udom Thani, Thailand.
Mynd nr. 119. Mynd nr. 120.
Fasteign til sölu!
Til sölu fimm herbergja einbýlishús á Sauðárkróki.
Eigna- eða leiguskipti möguleg á húsnæði í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 453 5065.
Skorin bíldekk, hentug í mottur undir hross, fást hjá
Verslun Haraldar Aöalgötu 22 Sauóárkróki.
Aðalkonsert
Rökkurkórsins
Aðalkonsert Rökkurkórsins
var haldinn í Miðgarði á laugar-
dagskvöldið iyrir fullu húsi. Val-
geir Bjamason var kynnir og
stóð sig vel. Sveinn Amason
söngstjóri hneigði sig eftir hvert
lag.
Stöðugt hneigir Svenni sig
og sínum dinglar tólum,
en Valgeir ei bukkar og beygir
sig
Bjarnason á Hólum.
í hléi hjá kómum skemmti
m.a. danshópurinn E-Rotic frá
Sauðárkróki, léttklæddar og fim-
ar ungar stúlkur.
Það sem ei á þeim var bert,
það huldu grœnar tœjur.
Mönnum þykir mikilsvert
að mega horfa á svom pœjur.
Það tmflaði mig við yrkingar
að myrkur var í salnum og
kannski var ég líka dálítið upp-
tekinn af því að horfa á kórinn,
en ég sat þannig að allur kven-
vængurinn blasti við sjónum, en
karlmenn sá ég bara ífá hlið. Svo
var ég auðvitað að hlusta.
Ekki get ég ort í myrkri,
þá armað meira kemur til.
Til að halda hugsun virkri
hafa verður Ijós og yl.
A sunnudagsmorguninn
reyndi ég að rifja upp frammi-
stöðu einsöngvaranna. Sigurlaug
Maronsdóttir er einn af mínum
uppáhalds söngvumm og alltaf
gaman að heyra í henni.
Andleg nœring er þaðfróm,
endafœr hún þenmn dóm:
Silfurtœran hefur hljóm
hún og skæran líka róm.
Hjalti Jóhannsson kom ífam á
svið sem varamaður Jóhanns
Más Jóhannssonar og stóð sig
vel eftir atvikum. Hvað skyldu
annars vera margir varamenn í
þessum kór?
Sumir lenda sínkt ífórnum,
sístmá þeirri hugmynd gleyma,
að margir sem æfi meður kórn-
um
megi sitja eftir heima.
Eftir tónleika kórsins í Lauga-
borg um daginn, ritaði Haukur
Agústsson í dómi sínum í Degi,
að Björn Sveinsson hafi
skemmtilegan fullan bassa.
Þegar óim tekur törn
og tóm rómur gefur,
meðfullan sómabassa Björn
brúkað góminn hejur.
Þegar Björn frétti af áður-
nefndri umsögn Hauks, taldi
hann að nær hefði verið að tala
um timbraðan bassa.
w m A m i áfe 4 Y f
$ ■Æ* f 1 <1 W 17 | í f
m. 1 ! HÉ 1 n * » 1 | K 1 JL i Ú a§,
m w L _ 2 í 4S 1 ^ J JKj 1 rtr m SlL
Við á því höfum trú,
það engumfyrir sönnun,
að bassinn séfiillur þó Björn sé
edrú
eða baritin af timburmönnum.
Læt ég hér lokið umfjöllun
um þennan konsert Rökkurkórs-
ins og er þó margra verðugra að
engu getið.
A fimmtudag í fyrri viku vom
aðrir tónleikar í Miðgarði, þar
sem bæði Rökkurkórinn og
Heimir komu fram, auk þess
Friðbjöm G. Jónsson, sem var
fmmkvöðull þeirra tónleika og
Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari, sem m.a. lék fjórhent á
flygilinn ásamt Agústu konu
sinni.
Áflygilinn var Ijúflega
leikið vel.
í það minnsta, allavega
að ég tel.
Þar gerðist einnig þetta.
Sýslumaður settur var
að sussa á fullan mann,
sá var einn með ófrið þar,
öllum leiddist haim.
Þessir tónleikar voru til
styrktar flygilkaupum í Miðgarði
og vom á vegum Tónlistarfélags
Skagafjarðar. Kynning á starf-
semi þess og markmiðum er
hugmynd að efni í Feyki, sem
hér með er komið á ífamfæri.
Jón H. Arnljótsson.
Munið áskriftargjöldin!
Þeir sem enn kunna að hafa í fórum sínum ógreidda gíró-
seðla fyrir áskriftargjöldum em beðnir að greiða hið allra
fyrsta. Þeim sem glatað hafa gíróseðli skal bent á að hægt
er að millifæra áskriftargjaldið á reikning Feykis nr. 1660
í útibúi Búnaðarbankans á Sauðárkróki.