Feykir


Feykir - 03.04.1996, Blaðsíða 8

Feykir - 03.04.1996, Blaðsíða 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra 3. aprfl 1996, 13. tölublað 16. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Krakkarnir í 7. bekk Gagnfræðaskólans á Sauðárkróki hafa að undanfórnu verið að safna í ferðasjóð fyrir skólaferðalagið í vor. Á dögunum voru þau í því skyni að taka til í porti bygg- ingavörudeildar kaupfélagsins á Eyrinni og þá var þessi mynd tekin. Bygging íþróttahússins á Sauðárkróki: Óákveðið hvort eða hvernig verkið verður boðið út Útlit fyrir sátt í troðaramálinu „Forsvarsmenn ungmennafé- lagsins voru hræddir við að ábyrgðir mundu falla á félagið út af troðaranum en þeirri óvissu verður eytt með því að Skíðafelagið verði sjálfstætt fé- lag. Þessi ótti var raunar ástæðulaus þar sem Trausti Sveinsson er í persónulegum ábyrgðum fyrir þeim hluta snjótroðarans sem ógreiddur er“, segir Sveinn Traustason formaður skíðadeildar Skíða- felags Fljótamanna. Líkur em á að deilan er reis vegna snjótroðarakaupa Trausta Sveinssonar á Bjamagili sé að fá farsælan endi, en sem kunnugt er voru forsvarsmenn Ungmenna- félags Fljótamanna ósáttir við aö Trausti notaði í kaupin fjórar milljónir króna, sem þeir töldu eign Ungmennafélagsins. Á dögunum var haldinn sátta- fundur og þar mættu tveir full- trúar frá Ungmennafélagi Is- lands, Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri og Þórir Jóns- son formaður. Að sögn Sveins Traustasonar kom fram á þeim fundi að umræddir peningar sem fóm í troðarakaupin hafi ótvírætt verið í eigu skíðadeildar. Sú sátt var gerð á fundinum milli stjóm- ar ungmennafélagsins og skíða- deildarinnar að skíðadeildin yrði að nýju sjálfstætt félag, eða með öðrum orðum að Skíðafélag Fljótamanna verði endurvakið. Það er þó undir félagsfúndi í Ungmennafélagi Fljótamanna komið hvort þessi sátt nær fram að ganga, þar sem lög UMFI kveða á um að samþykki félags- fundar þurfi til að deild innan fé- lags kljúfi sig úr með þessum hætti, en Sveinn segist telja að innan Ungmennafélags Fljóta- manna sé vilji til að fara þessa leið. „Þá getum við hjá Skíðafé- laginu haldið óhindrað áfram uppbyggingu skíðasvæðisins að Bjamargili en þau mál em í góð- um farvegi“, segir Sveinn. Siglufjarðarbær krafinn um 50 milljónir vegna bæjarábyrgða Bæjarstjórnarmenn á Sauð- árkróki hafa undanfarið velt því fyrir sér hvernig haga skuli samningum og vali á verktökum við byggingafram- kvæmdir í bænum í sumar. Þar er helsta framkvæmdin stækkun íþróttahússins, en áætlað er að sú bygging verði gerð fokheld fyrir veturinn og til þess varið um 50 milljónum króna á fjárhagsáætlun. Ljóst er að vilji er innan bæjar- stjórnar Sauðárkróks að iðn- aðarmenn í bænum vinni þetta verk, enda voru meðal röksemda meirihlutans að ráðast í verkið nú í ár, að sár- lega vantaði verkefni fyrir iðnaðarmenn í bænum, þar sem að engin stórverkefni væri á döfinni. Snorri Bjöm Sigurðsson bæj- arstjóri sagði í samtali við blaðið að útboðsgögn væru tilbúin og ekki veitti af að fara að hcfjast handa ætti íþróttahúsið að kom- ast undir þak fyrir veturinn. Bjöm Sigurbjömsson formaður bæjarráðs sagði að menn væm að skoða með hvaða hætti yrði samið um verkið, hvort gengið yrði til samninga við ákveóinn verktaka, eða hvort beitt yrði lokuðu útboði, til að tryggja það að byggingaraðilar í bænum ynnu verkið. Rætt hefði verið við verktaka í bænum að undan- fömu. Málið virðist á viðkvæmu stigi innan bæjarstjómar. Bæjar- fulltrúar vilja lítið tjá sig um það, en samkvæmt heimildum blaðisins virðist mestur vilji inn- an bæjarstjórnar að ganga til samninga við Trésmiðjuna Borg, en Borgin byggði íþróttahúsið á sínum tíma. Það sé helst innan raða sjálfstæðismanna í bæjar- stjóm sem menn séu andsnúnir þessu. Ljóst er að aðrir verktak- ar í bænum vilja útboð, og einn byggingarmeistari sagði í sam- tali við Feyki ekki trúa því að bærinn færi út á þessa braut. Erfitt yrði fyrir bæjarstjómar- menn aö verja þessa málsmeð- ferð gangvart skattborgurunum og með því væri skapað slæmt fordæmi. „Mér vitanlega hafa hingað til nýbyggingar á vegum bæjarins verið boðnar úL Hér yrði þá um stefnubreytingu að ræða ef samið yrði við verktaka". Nýlega hafa verið þingfest tvö mál í Héraðsdómi Norður- lands vestra á hendur Siglu- fjarðarbæ vegna bæjar- ábyrgða. Ríkisábyrgðasjóður leggur fram kröfii upp á tæpar 25 milljónir vegna Dýpkunar- félagsins og Búnaðarbankinn krefur Siglufjarðarbæ um sömu upphæð vegna láns er Rarik og Miklilax tóku á sín- um tíma, og bankinn telur bæ- inn hafa ábyrgst. Falli báðar þessar kröfúr á Siglufjarðar- bæ er Ijóst að það yrði mikið áfall fyrir bæjarsjóð, en alls nema þær um 50 milljónum króna. I fyrmefnda málinu er það skoðun forsvarsmanna ríkis- ábyrgðasjóðs að Siglufjarðarbær hafi veitt einfalda ábyrgð gagn- vart ríkissjóði með ábyrgðarsam- þykkt 27. febrúar 1988 á tveimur lánum sem framkvæmdasjóður íslands veitti Dýpkunarfélaginu hf. Það félag var skráð á Siglu- firði og er löngu orðið gjald- þrota. Framkvæmdastjóri þess var Jóhannes Lárusson og var hann búsettur í Noregi síðast er vitað var samkvæmt frétt Vió- skiptablaðsins nýlega. Krafa Búnaðarbankans snýst um meinta ábyrgð sem ekki var gengið ffá með formlegum hætti árið 1987. Eins og kunnugt er var Miklilax starfandi fyrirtæki í Fljótahreppi og fyrir nokkm orð- ið gjaldþrota. Þetta mál hefur þvælst nokkuð í kerfinu og deilt verið um hverjir væru ábyrgðar- aðilar þessa láns sem Miklilax tók. Þar blandast inn í bæði Fljóta- hreppur og Rarik, en nú hefur Búnaðarbankinn sem sagt gert kröfu á Siglufjarðarbæ vegna þessa. Á fulltrúaráðsfundi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í Borgamesi nýlega var samþykkt ályktun sem fól í sér að heimildir til bæjarábyrgða skuli fella út úr sveitarstjómarlögum, og óskum þar að lútandi beint til löggjaf- ans. ,A.ð bæjarfélögum verði yf- irhöfuð bannað aó veita bæjará- byrgð. Eg er sammála því, það get ég sagt“, segir Kristján Möll- er forseti bæjarstjómar Siglu- fjarðar. BQKABÚÐ BKYINtlARS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.