Feykir - 28.08.1996, Page 6
6FEYKIR 27/1996
Heilir og sælir lesendur góöir.
Það mun hafa verið Karl Kristjánsson
alþingismaður sem orti svo eftir að hafa
litast um í strætisvagni sem var troðfull-
ur af farþegum.
Auðlegðin er ekki smá
og ekki smiðurinn gleyminn
sem lœtur sérstœtt andlit á
alla sem koma í heiminn.
Onnur vísa kemur hér eftir Karl sem
gerð er við svipaðar aðstæður.
Oft kemur ellin að gagni,
ógeðfellt samt það er,
stúlka í strœtisvagni
stóð upp í dag fyrir mér.
Ólafur Gunnarsson í Borgamesi, áður
á Borgum í Hrútafirði, er höfundur að
næstu vísu. Var tilefhi það að hann sat til
borðs með ungum manni sem hafði sett
sér það markmið að drekka þorskalýsi til
að veiða sterkur. Eitthvað mun hafa geng-
ið hægt að nota sér hressinguna, eftir vísu
Ólafs að dæma.
Áfram virðist gcefan greið
gildum lýsiskappa.
Er nú kominn alla leið
ofan fyrir tappa.
Þegar Ólafur bjó á Borgum gerðist
það eitt sinn að blað frá Oddsstöðum barst
honum ásamt öðrum pósti. Þegar Ólafur
sendi blaðið til síns heima fylgdi með eft-
irfarandi vísa.
Pósthúsfólki fipaðist,
fráleitt þó til baga.
Blaðið kom að Borgum fyrst
og beið hér nokkra daga.
ÞegarÞorsteinn Jónasson áOddsstöð-
um fékk þessa kveðju kvittaði hann fyrir
meó eftirfarandi vísu.
Leit ég stöku, lund varð glöð
léttust mínar sorgir.
Vildi óska að öll mín blöð
œttu leið um Borgir.
Mikið hefur verið að gerast í móta-
haldi hestamanna á sumrinu. Þykir sýnt
að Léttisfélagar á Akureyri ætla sér stór-
an hlut úr því að þeir hyggjast leggja und-
ir sig landið og miðin. Jóni í Skollagróf
varð þessi staka í munni, þegar ffam kom
í sjónvaipsffétt fýrr í sumar að til stæði að
halda kappreiðar norður í Grímsey.
Fylgdi með að viðstaddir ættu að skrá
nöfn sín á merarhúð.
Létt á bárum flýturfley,
frétta teygist nári.
Kappreiðar á Kolbeinsey
kannski verða að ári.
Lengi hefur það viljað loða við starfs-
lið fjölmiðla að því verði stundum fóta-
skortur á tungunni þegar mikið liggur við
að segja frá hinum ýmsu tíðindum. Dag-
bjartur Dagbjartsson á Refsstöðum hefur
orðið áheyrandi að einhverju slíku þegar
eftirfarandi limra varð til.
Stundum heyri ég merkilegt málfar
hjá mönnum sem hugsa eins og álfar
þessir fjölmiðlamenn
erufjallhressir enn
en tala eins og bölvaðir bjálfar.
Einhverju sinni er Dagbjartur kom inn
þar sem kveikt var á útvarpi, heyrði hann
þulinn segja eitthvað á þá leið, að sótt hafi
verið um sex! Mun fréttin reyndar hafa
verið af félagsskap sem sótthafði um sex
sjónvarpsrásir. Þar sem Dagbjartur heyrði
ekki alla frettina fór hann að velta fyrir sér
efni hennar og komst að eftirfarandi nið-
urstöðu.
Stöðugt okkar vandi vex,
en vonum samt það besta.
Nú eiga menn að sœkja um sex
til siðanefndar presta.
Sagt er að ónefndur prestur hafi gert
næstu vísu og mun tilefni hennar hafa
verið að kona nokkur sótti stíft eftir nán-
ari kynnum við prest.
Um veikleika holdsins hefég grun
hjá þér blessuð frúin,
en eitt er víst að ekki mun
andinn reiðubúinn.
Erfitt mun hafa verið að fá á vasapel-
ann þegar Asgeir Jónsson orti svo.
Um almátt drottins allt ber vott,
undrast ég það hálfur,
en mikið á hann guð minn gott
að geta skapað sjáljur.
Þrátt fyrir að nú sér farið að halla
sumri kemur hér vísa sem gerð er í byrj-
un þeirrar þráðu árstíðar. Höfundur er
Guðríður Brynjólfsdóttir frá Gilsbakka í
Skagafirði.
Upp til heiða fuglinnflaug,
fagnar vori jörðin.
Það er í mér einhver taug
enn við Skagafjörðinn.
Ekki verður fleira rifjað upp að sinni,
en lesendur beðnir eins og stundum áður
að gauka að undirrituðum vísum sem
tengjast þeim tíma sem nú fer í hönd.
Veriði sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Ungir kyifingar á Sauðár-
króki orðnirþeir bestu
Ungir kylfingar úr Golfklúbbi Sauð-
árkróks náðu um helgina frábærum
árangri í sveitakeppni Golfsambands
Islands. Drengjasveitin 14 ára og
yngri varð Islandsmeistari í keppni
sem fram fór á Selfossi og piltar 15-18
ára og stúlkur 18 ára og yngri kræktu
sér í bronsverðiaun í sínum flokkum í
keppni sem fram fór á Hellu.
Þetta er annað árið í röð sem Golf-
klúbbur Sauðárkróks nær Islandsmeist-
aratitli í flokki drengja 14 ára og yngri.
Sveitin sem vann í fyrra er nú komin í
eldri flokkinn, en þrátt fyrir ungan aldur
stóðu strákamir sig frábærlega vel að ná
þriðja sætinu í keppni við alla sterkustu
golfklúbba landsins. Sömu sögu er að
segja um frammistöðu stúlknanna, en
síðast en ekki síst skal þess getið aö 14
ára og yngri sveitin hjá strákunum vann
keppnina meó yfirburðum. Urslitin vom
þegar ljós fyrir síðasta hring.
Þessi árangur ungra kylfinga frá
Sauðárkróki sýnir að þeir eru komnir í
allra fremstu röð og eru þegar á heildina
er litið trúlega með efnilegasta fólkið á
landinu í dag. Oflugt unglingastarf Golf-
klúbbs Sauðárkróks síðustu árin, undir
sjórn Ama Jónssonar golfkennara, er
þegar farið að skila sér.
Stúlknasveit GSS sem vann bronsverðlaun. Talið frá vinstri: Svanborg Guð-
jónsdóttir liðsstjóri, Halla Erlendsdóttir, Margrét Halla Hallsdóttir, Sigríður
Viggósdóttir, Sesselía Barðdal, Eygló Óttarsdóttir og Ami Jónsson þjálfari.
íslandsmeistarnir í flokki 14 ára og yngri. Talið frá vinstri: Guðmundur Víðir,
Kjartan Ómarsson, Einar Haukur, Ami Már og Guðmundur Guðmundsson liðs-
stjóri.
Piltasveitin sem sigraði á síðasta ári og varð nú í 3. sæti í flokki 15-18 ára. Talið
frá vinstri: Einar Einarsson liðsstjóri, Guðmundur I. Einarsson, Sigurður G.
Jónsson, Örvar Jónsson og Gunnlaugur Erlendsson.