Feykir


Feykir - 28.08.1996, Blaðsíða 8

Feykir - 28.08.1996, Blaðsíða 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra 21. ágúst 1996, 26. tölublað 16. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Það komast allir í Gengið unglingaklúbb Landsbankans Sláðu til og komdu í Gengið Pottþéttur klúbbur! JW Landsbanki Sími 453 5353 MÁ Banki allra landsmanna í sumar hafa staðið yfir talsverðar ffamkvæmdir í Aðalgöt- unni á Sauðárkróki. Lögð hefur verið ný upphituð gangstétt austanmegin götu og skipt um ljósastaura. Nýja lýsingin þykir einkar glæsileg og setur skemmtilegan svip á götuna. Þá var fyr- ir afmælishátíðina í sumar malbikuð gangbraut meðffam Eyrar- veginum út á Eyrina, þannig að nú er leiðin orðin mjög greið fyrir gangandi, hjólandi og hlaupandi vegfarendur á Eyrina. Að margra áliti eiga bæjaryfirvöld skilið prik fyrir þessa framtaks- semi á afmælisári. Auk þessa má ncfna að í sumar var gerð ný hellulögð gang- stétt í Skógargötu, gangstéttir í iðnaðarhverfi, og sett nýtt slitlag á Sæmundarhlíð svo eitthvað sé nefnt. Vaktirnar styttar hjá Særúnu „Yið höfum dregið úr vinnsl- unni, stytt vaktirnar, og ætlum síðan að taka ákvörðun um framhaldiö eftir 2-3 vikur. Við eigum enn talsvert af frosnu hráefni þó ísfiskskipin hafi verið við bryggju í ágústmán- uði“, segir Kári Snorrason hjá rækjuvinnslunni Særúnu á Blönduósi. Gissur hvíti og Ingimundur gamli hafa ekki verið að veiðum undanfarið. Gissur fer á veiðar upp úr mánaðamótum, en Ingi- mundur verður við bryggju áfram. Frystiskipið Nökkvi hef- ur haldið sínu striki, enda verð- fallið verið minna á Japansrækj- unni, eða um 10%. Að sögn Kára vinna um 40 manns í vinnslunni. Unnið hefur verið á 9 tíma vöktum en þær verða nú styttar um 1-2 tíma. Aöspuróur um fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir hjá Særúnu sagði Kári að enn væri verið að teikna, en vonir stæðu til að samþykktar teikningar lægju fyrir í haust, eins og að var stefhL „Þaó er þó hugsanlegt að byggingaframkvæmdir hefjist ekki fyrr en að vori“, sagði Kári Snorrason. 100 ár liðin frá því Steingrímur bóndi lét byggja Silfrastaðakirkju Sl. sunnudag var haldið upp á 100 ára afmæli Silfrastaða- kirkju með hátíðarmessu og dagskrá. I»að var Steingrímur Jónsson bóndi á Silfrastöðum sem lét byggja kirkjuna á sín- um tíma og var hún vígð 12. júlí 1896. Silfrastaðakirkja er áttstrend og ásamt Auðkúlu- kirkju einu guðshús landsins sem þannig eru í laginu. Hún er byggð eins og fleiri kirkjur á þessu svæði af Þorsteini Sig- urðssyni frá Sauðárkróki, sem kallaður var kirkjusmiður, en hann sigldi til Danmerkur til að fúllnuma sig í iðninni. Sr. Dalla Þórðardóttir sá um hátíðarguðsþjónustuna á Silfra- stöðum sl. sunnudag, organisti var Sveinn Amar Sæmundsson og Kirkjukór Silfrastaða-, Mikla- bæjar- og Flugumýrarkirkju söng. Þá söng Sveinn Amar Sæ- mundsson við undirleik Margrét- ar Óladóttur. Guðmundur L. Friöfinnsson rithöfundur á Egilsá flutti ágrip úr sögu kirkjunnar og Helga Kristjánsdóttir á Silfra- stöðum var heiðmð. Henni var veitt viðurkenning frá söfnuði Silfrastaðasóknar fyrir mikla vel- vild og þrotlaust starf í þágu kirkju og safnaðar. Þá vom flutt- ar stemmur eftir Hjörleif Krist- insson frá Gilsbakka og athöfnin endaði á almennum söng. Guðmundur L. Friðfinnsson rakti í erindi sínu ítarlega sögu kirkjanna beggja á Silfrastöðum, þeirrar er nú stendur og forvera hennar. Eiga Silfrastaðakirkjur sér mjög merkilega sögu. Jafnframt því að láta byggja nýja kirkju á Silfrastöðum lét Steingrímur bóndi rífa þá gömlu sem staðið hafði í um 90 ár. Gömlu kirkjuna, sem var úr torfi meó timburstöfnum, lét Stein- grímur endurbyggja sem bað- stofu syðst húsa á Silfrastöðum og var þessi baðstofa á Silfra- stöóum með mun meiri lofthæð og rýmri en baðstofúr gerðust í sýslunni. Má segja að hún haft verið á tveimur hæðum, því her- bergi voru vió báða stafna og brú á milli. Komu þessi rúmu húsa- kynni sér vel á Silfrastöðum, þar sem þar var mjög gestkvæmt og bærinn í alfaraleið. En þar með var saga gömlu kirkjunnar á Silfrastöðum ekki öll. Síðar var Arbæjarkirkja í Reykjavík byggð upp úr kirkju- baðstofunni á Silfrastöðum, þannig að segja má að saga gömlu kirkjunnar á Silfrastöð- um, í sínum hlutverkaskiptum, sé einstök. Silfrastaðakirkja var bænda- kirkja og í eigu Silfrastaðabænda fram til ársins 1958 aö Jóhannes Láms Jóhannesson bóndi á Silfra- stöðum gaf söfhuðinum kiikjuna. Velheppnað þing SSNV Björn Sigurbjörnsson endurkjörinn formaður í stjórn SSNV voru kosnir, Björn Sigurbjörnsson endur- kjörinn formaður til tveggja ára og aðrir í stjórn, Björn Valdimarsson Siglufirði, Ingi- björg Ilafstað Vík, Ágúst Bragason Blönduósi og Valur Gunnarsson. Ágúst er nýr mað- ur í stjóm, kom inn í stað Magn- úsar B. Jónssonar á Skaga- strönd sem gaf ckki kost á sér til áframhaldandi stjómarsetu. „Þetta er búið að vera ágætt þing. Það er Ld. alltaf forvitnilegt að fylgjast meö þegar atvinnumál ber á góma“, sagði Bjöm Magn- ússon frá Hólabaki í Sveinsstaða- hreppi að loknu þingi SSNV á Löngumýri. Bjöm sagði að eðli- lega velti fólk í sveitum mikió fyrir sér úrræðum í atvinnumál- um, enda hefði mikil skerðing orðið á framleiðslurétti og atvinnu í sveitum mörg undanfarin ár. Greinilegt var að fundarmenn höfðu misjafnan áhuga á því sem gerðist á þinginu, atvinnumálinog umræður sem spunnust vegna á- lyktana nefnda lífguðu upp á sam- kunduna, en menn tóku að lygna Nafni Björns Sigurbjörns- sonar, Magnússon fulltrúi Sveinsstaðahrepps. augum þegar Evrópumálin bar á góma í erindi Sigurðar Tómasar Björgvinssonar og síðan hjá Finni Ingólfssyni iðnaðarráðherra á laugardagsmorgun. Hinsvegar snarlifnaði þingið er Páll Péturs- son félagsmálaráðherra sté í pontu, enda byrjaði Páll sína ræðu á léttu nótunum. Kanadamaður til Tindastóls Kanadískur miðherji hefur gengiö til liðs við úrvalsdeildar- lið Tindastóls í körfubolta. Hann heitir Joseph Ogoms 32ja ára að aldri 1,98 á hæð og rúmlega 100 kíló. Ogoms, sem kemur til Sauðárkróks á næstu dögum, hefur leikið í landsliði Kanada og þykir mjög sterkur leikmað- ur. Honum er ætlað, ásamt ungum og efnilegum nýliðum hjá Tindastóli, að fara langt með að fylla skarð þeirra Hinriks Gunnarssonar sem er genginn til liðs við KR og Péturs Guð- mundssonar sem hefur snúið á ný til Grindavíkur. Gæóaframköllun BÓKABtHD BKYKtlARS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.