Feykir - 30.10.1996, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Endurspeglast atvinnuástand á Sauðárkróki í tölum um atvinnuskiptingu í landinu?
Vantar á þriðja hundrað störf í þjónustu í bænum
Samkvæmt tölum frá Byggða-
stofnun, sem byggir á gögnum
frá árinu 1994, vantar 215 störf
í þjónustu á Sauðárkróki, til
þess að atvinnuskipting í bæn-
um sé sambærileg og nái því
meðaltali sem felst í skiptingu
atvinnu í þéttbýlisstöðum með
2500 íbúa eða fleiri í landinu.
Hins vegar eru störf í fram-
leiðslugreinum langt yfir lands-
meðaltali: í sjávarútvegi, land-
búnaði og iðnaði. Allt bendir til
þess að störfúm við framleiðslu
muni fækka á næstu árum eins
og reyndar ástandið í atvinnu-
málunum í dag gefúr til kynna
og þróunin hefúr verið síðustu
árin. Það er því ljóst að stórfellt
átak þarf að gera til að ijölga
þjónustustörfum ef atvinnu-
þróun og launaþróun á að
verða með sambærilegum
hætti á Sauðárkróki og annars
staðar á Iandinu.
A undanförnum áratugum
hefur atvinnuþróun verið á þann
veg bæði hér á landi og annars-
staðar, að veruleg fjölgun hefur
orðið í þjónustustörfum á sama
tíma og fækkun hefur orðið við
ffamleiðslustörf. Allt útlit er fýrir
að þessi þróun haldi áfram á
næstu árum. Uppbygging at-
vinnumála á Sauðárkróki þarf því
að margra áliti að snúa að þeim
atvinnugreinum sem verið hafa í
sókn síðustu árin og verða það
fyrirsjáanlega næstu árin.
Af ffamansögðu liggur beinast
við að ætla sveitarstjómarmönn-
um og þingmönnum kjördæmis-
ins að taka höndum saman um að
efla hér opinbera þjónustu, svo
sem á sviði skólamála, heilbrigð-
ismála og stjómsýslu, þar sem
ljóst er að tugi ef ekki hundruð
starfa vantar í þjónustu: í opin-
berri þjónustu; við skóla, heilsu-
gæslu, stjómsýslu, verslun, banka
og fjámiálastofnanir. Auk þess er
ljóst að hér þarf að gera verulegt
átak í að skapa fleiri störf varð-
andi ferðaþjónustu og nægir í því
Sjávarútvegur Iðnaður Þjónusta
og
landbúnaður
sambandi að benda á bágborið
ástand í hótelmálum staðarins. Þá
mætti brúa þetta rúmlega 200
starfa bil að hluta til með flutningi
opinberra stofnana til bæjarins, en
ljóst er á þessum tölum að það er
vöntun á slíkum störfúm sem ger-
ir bilið svona mikið. Brunamála-
stofnun og Skipulag ríksins hafa
verið nefndar sem líklegar til
flutnings út á land, t.d. til Sauðár-
króks.
Eins og mörgum er kunnugt,
er hærra launastig í þjónustu-
greinum en framleiðslugreinum
og er það trúlega skýringin á því
hvers vegna Norðurland vestra
hefur um langa hríð verið eitt
mesta láglaunasvæði landsins.
Það er því eftir miklu að slægjast
að þjónustustörfúm fjölgi á svæð-
inu.
Samkvæmt tölum Byggóa-
stofnunar starfa 226 í sjávarútvegi
og landbúnaði á Sauðárkróki. Er
það hvorki meira né minna en
139 yftr landsmeðaltali. í iðnaði
er hlutfallið jafnara. Við iðnað
starfa 354 í bænum og er það 76
yfir landsmeðaltali. Við þjónustu
starfa 682, en að meðaltali 897 í
bæjum með íbúatölu um og yfir
2500 manns.
Gatnaframkvæmdum um
skólahverfið miðar vel
Brúin á Sauðánni, sem byggð var um svipað
leyti og sjúkrahúsið á Sauðárhæðum, heyrir nú
sögunni til. Hún var mölvuð niður í fyrradag og
á myndinni eru vélgröfur að fjarlægja brotin.
Eins og sjá má eiga miklar breytingar sér stað á
akstursleiðinni í gegnum skólahverfið. Nýjum
stokk fyrir Sauðána hefur verið komið fyrir og
einnig undirgöngum fyrir umferð fólks, sem
sjást ofar á myndinni. Gerð nýja vegarins um
skólahverfið eru umfangsmestu framkvæmdir
við gatnakerfi Sauðárkróks í langan tíma og
kannski frá upphafi. I tengslum við þessar fram-
kvæmdir hefur einnig verið gert mikið rask í
brekkunni ofan sjúkrahússins, en hún hefur þurft
að víkja að mestu fyrir nýjum Batavegi frá
sjúkrahúsinu að Sæmundahlíð. Gert er ráð fyrir
aö umferð verði hleypt á nýju umferóarmann-
virkin um miðjan nóvember. Þaó er Rögnvaldur
Amason verktaki og hans menn sem standa að
framkvæmdunum.
—ICTeH^ifl hpl— SítTfbílaverkstæði æ m m m m sími 453 sui
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, bílas. 853 1419, fax 453 6019
Almenn verktakaþjónusta Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 453 6140
Frysti- og kœliþjónusta Bíla- og skiparaímagn Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Véla- og verkíœraþjónusta Réttingar Sprautun