Feykir


Feykir - 30.10.1996, Blaðsíða 3

Feykir - 30.10.1996, Blaðsíða 3
36/1996 FEYKIR3 „Við reynum alltaf að standa fyrir ein- hverju um helgar" segir formaður Nemendafélags FÁS Þrátt fyrir að sumri sé tekið mjög að halla þegar komið er fram í byrjun septembermán- aðar, og því fylgji gjarnan ein- hver doði í sálartetrinu, lifnar ævinlega yfir bæjarlífinu á Króknum á þessum tíma. Þá flykkjast nemendur fjöl- brautaskólans til bæjarins. I»að bregður alltaf fyrir mörg- um nýjum andlitum hvert haust Fyrstu vikurnar er svo- kallað „útstáelsi“ nemenda talsvert, þegar nýnemar eru að kynnast innbyrðis og blandast í hóp þeirra eldri. Krókurinn tekur á þessum tíma á sig brag stórbæja og sjálfsagt finnst mörgum bæjarbúanum að þessi tími sé eilítil framlenging á blómskrúð sumarsins. En fljótlega tekur alvaran við hjá nemendum fyölbrautaskólans, auk námsins, þarf að skipu- leggja félagsstarfið í skólanum. „Það verður þónokkuð að gerast hjá okkur í Nemendafé- laginu í vetur. Við reynum ævin- lega að standa fyrir einhverju þær helgar sem ekki eru heim- ferðahelgar, þ.e. aðra hverja helgi. Um daginn fómm við td. suður í leikhúsferð, sáum Stone Free í Borgarleikhúsinu. Það var ákailega skemmtileg og vel- heppnuð ferð. Um næstu helgi verðum við svo með heilmikla tónleika með SSSól. Þeir verða á mánudagskvöldið, órafmagnað- ir, og við skorum á sem allra flesta bæjarbúa að mæta. Síðan er þónokkuð um klúbbstarfsemi hjá okkur, heilmikill hópur sem stendur að útvarpinu, og þá má geta þess að mikið starf er í kór skólans, þó aó hann tengist ekki starfsemi Nemendafélagsins“, segir Kristín Rannveig Snorra- dóttir formaður NFÁS. Þetta er fyrsta ár Kristínar í stjóm félagsins, eins og reyndar annarra meðlima í stjóminni. „Það er gott samstarf hjá okkur og við gerum hlutina mikið í sameiningu. Sem formaður þarf ég síðan að hafa yfimmsjón með starfinu og vera talsmaður fé- lagsins út á vió“. Stjóm NFÁS, frá vinstri: Viðar Einarsson gjaldkeri, Emma Sif Björnsdóttir ritari, Elva Björk Kjartansdóttir formaður íþróttaráðs, Kristín Rannveig Snorradóttir formaður, Gunnar Búason útvarpsstjóri og Elva Hrönn Friðriksdóttir formaður skemmtinefiidar. Asta Kristín Reynisdóttir ritstjóri Molduxa var veik þegar myndin var tekin. En hvemig er að fá fólk til starfa? „Það er héma eins og víða í þjóðfélaginu, að það finnst öllum sjálfsagt að hlutimir séu gerðir, en það ert þú en ekki ég sem á að framkvæma þá. Það er óskap- lega leiðinlegt að þurfa að ganga á milli fólks, eins og í haust til að reyna að fá það til starfa. Það er alltof lítiö um að fólk gefi sig fram til starfa og sýni frum- kvæði. Samt hefur okkur tekist núna að lífga við klúbbstarfsemi sem hefúr legið í láginni í nokk- ur ár. Þar er ég að tala um mál- fúndafélagið sem var lífgað við í haust. Annars fór félagsstarfiö hægt af stað núna, en við verð- um örugglega öflugri eftir ára- mótin. Þá er alltaf meira að ger- ast í félagsstarfinu, það er reynsl- an“. Hvers vegna er það? , Ja, þá em td. framundan árs- hátíðin og Opnu dagamir. Þetta er hápunkturinn í skólastarfinu á hverjum vetri og vekjur jafnan nemendur til dáða. Síðustu Opnu dagar voru t.d. ákaflega vel heppnaðir, skipulag dagskrár mjög gott, og ég held að það hafi verið samdóma álit nemenda og kennara, að Opnu dagarnir í fyrra hafi verið skólanum til sóma. Við ætlum að feta í þau fótspor og steína að því að hafa Opnu dagana í vetur síst lakari en í fyrra. Þá eigum við líka von á Menntaskólanum á Laugavami í heimsókn eftir áramótin. Við reynum ávallt að rækta samskipti við aðra skóla“, sagði Kristín Rannveig að endingu. Engann langar til að skoða skítugt land Á dögunum fóru nemendur og kennarar Barnaskóla Staóar- hrepps í Hrútafirði í vettvangsferð á Heggsstaðanes. Skólabílar óku börnunum áleiðis en síðan var gengið um fjörur á nesinu. Nem- endur söfnuðu rekavióarspýtum og steinum, en auk þess var í fjör- unni ógrynni af rusli af ólíkleg- asta toga. Meðal þess sem fannst var „notað“ jólatré og tóku bömin sig til og „skreyttu tréó“ með msl- inu. Mest var af alls kyns msli er tengdist útgerö, s.s. net, netakúlur og fiskkassar, en einnig msl meó annan uppmna, t.d. bmnasmyrsl og skór. Að þessari vettvangsferð lok- inni vilja nemendur Bamaskóla Staðarhrepps koma þeirri áskomn til Islendinga að muna að hreint land er fagurt land. Það hefur enginn áhuga á að skoða skítugt land. (Landið/Mbl. 26. okL) Almennur félagsfundur í Fram veróur haldinn í Ströndinni, Sæmundargötu 7 A, fimmtudaginn 31. október kl. 20,30. Dagskrá: 1. Kjaramál, staóa og horfur. 2. Kosning samninganefndar skv. lögum. 3. Onnur mál. Stjórn Vlf. Fram DHL-deildin Tindastóll — ÍR í Síkinu fimmtudagskvöld kl. 20,00. Afmœlisárið á Króknum - Guðrún frá Lundi Á þessu ári eru lióin 50 ár frá útkomu fyrstu bókar Guórúnar frá Lundi. Af því tilefni býöur afmælisnefnd Sauöárkróks til dagskrár um Sauóárkróksrithöfundinn, Guórúnu frá Lundi í Bifröst laugardaginn 2. nóvember kl. 15,30. Bókmenntafræóingarnir Sigurrós Erlingsdóttir, Valdimar Gunnarsson og Marín Guörún Hrafnsdóttir (barnabarnabarn Guórúnar) fjalla um skáldkonuna. Nokkrir Króksarar rifja upp minningar tengdar Guðrúnu og leiklesið veróur úr verkum hennar. Bækur höfundarins til sýnis. Kaffi og meðlæti til sölu. Aðgangur óskeypis - Allir velkomnir! Afmælisnefnd Sauöárkróks.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.