Feykir


Feykir - 30.10.1996, Qupperneq 8

Feykir - 30.10.1996, Qupperneq 8
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra 30. október 1996, 36. tölublað 16. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Það komast allir í Gengið unglingaklúbb Landsbankans Sláóu til og komdu í Gengið Pottþéttur klúbbur! jr Landsbanki Sími 453 5353 MÁ Banki allra landsmanna Dansað af hjartans lyst Fyrir helgina stóð 10. bekkur Gagnfræða- skóla Sauðárkróks fyrir sínu árlega maraþoni, en ágóöi þess rennur eins og jaftian í sjóð fyrir skólaferöalagiö aö vori. Að þessu sinni voru gömlu dansamir dansaðir og prjónað. Maraþon- ið hófst klukkan 10 á fimmtudagsmorgun og stóð til hádegis á föstudag, og það var dansað og prjónað allan tímann. Þegar ljósmyndari Feykis leit inn í félagsmiðstöðina á fimmtudaginn var greinilegt að krakkamir höfðu mjög gaman af gömlu dönsunum og vom fljót að finna sporin og taktinn. Það var í nógu að snúast í kringum maraþon- ið hjá krökkunum og foreldrar þeirra hjálpuðu einnig til. A fimmtudagskvöld var boðið upp á súrsætan svínakjötspottrétt með hrísgrjónum og snittubrauði og vom fjölmargir bæjarbúar sem nýttu sér það kostaboð sem þar var á feróinni. „Slysahætta eykst gífurlega við aukinn hraða" segir Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn vegna tillögu sex þingmanna um hækkun leyfilegs ökuhraða „Ég er talsmaöur þess að öku- hraða verði haldið sem mest niðri. Ég á fastlega von á að ef leyfður hámarkshraði verði hækkaður muni ökuhraðinn aukast að sama skapi. Slysa- hættan eykst gífurlega við auk- inn hraða. Þú verður að gá að því að við hvern kílómeter sem þú ferð yfir hundraðið, eykst al- varleiki óhappsins eða slyssins ef eitthvað ber út af hjá þér“, segir Björn Mikaelsson yfirlögreglu- þjónn á Sauðárkróki vegna til- lögu um breytingar á umferða- lögum, sem lögð heíúr verið íyr- ir Alþingi af Hjálmari Jónssyni, Vilhjálmi Egilssyni og fjórum öðrum þingmönnum. Tillagan gerir ráð fyrir að hækka leyfi- legan hámarkshraða á þjóðveg- um með bundnu slitlagi úr 90 kílómetrum í 110 kílómetra. Bjöm segist viss um að þeir sam aki að jafnaði á 110 kílómetra hraða í dag þeir hækki hraða sinn um 10-20 kílómetra á klukku- stund. Sú viðleitni að nota leyfðan ökuhraða sem viðmiðun, en ekki sem reglu, virðist vera mjög al- geng hjá fólki. „Síðan náttúrlega bjóða þessir mjóu vegir okkar með gulri línu í miðjunni ekkert upp á svona hraðan akstur. Þaó má ekk- ert út af bera þá ertu alveg í vindin- um“, segir yfirlögregluþjónninn á Sauðárkróki. Sýslumaóur Hún- vetninga, Kjartan Þorbjamarson, er sömu skoöunar, en um árabil hafa hlutlallslega flestir ökumenn verið gripnir fyrir oihraðan akstur í hans umdæmi. Flutningsmenn tillögunnar auk þcirra Hjálmars og Vilhjálms eru þau Sif Friðleifsdóttir, Einar Kr. Guðfinnsson, Arni Johnsen og Gunnlaugur M. Sigmundsson. í greinargerð með fmmvarpinu segir m.a. að vegakerfi landsins hafi tekið stakkaskiptum til hins betra síðustu 10-15 árin. A sama tíma hafi aksturseiginleikum og ör- yggisbúnaði fólksbifreióa sífellt fleygt ifam. Sú almenna hraöatak- mörkun sem umferðarlögin setja við akstur á bundnu slitlagi, þ.e. 90 km/klst sé bam síns tíma og ekki lengurraunhæf viðmiðun. „Lög em sett úl að farið sé eftir þeim. Þaó slævir réttarvitund al- mennings ef í gildi eru lög sem nær óframkvæmanlegt er fyrir lög- gæsluna aó framfylgja", segir einnig í greinargerðinni með tillög- unni. Starfsemi Vöku haldið áfram Nokkur óvissa hefur ríkt um skeið varðandi ffamtíð sauma- stofunnar Vöku á Sauðár- króki. Nú er ljóst að rekstri saumastofunnar verður haldið áfram. Knútur Aadnegaard stjórnarformaður fyrirtækis- ins segir það hafa tryggt sér framtíðarhúsnæði í sama húsi og það hefur starfað í um langt skeið, að Borgarflöt 1, en mun minnka við sig um helm- ing í húsnæði. Gert er ráð fyr- ir því að Vaka kaupi þann hluta hússins af Erlendi Han- sen. Að sögn Knúts Aadnegaard er engu aó síður reiknað meó að starfsemin verói svipuð og verið hefur og stefnt að því að bæta viö fólki frekar en hitt. Undan- farið hafa um 15 konur unnið í Vöku, en margar þeirra eru í hálfsdagsstörfum. Reksturinn hefur gengió erfiólega síðustu misserin, einkum vegna þess að markaðir erlendis hafa brugðist. A síðasta ári var rúmlega 10 milljón króna tap á rekstrinum. Knútur segir að heldur hafi verið að glæðast með sölumálin síð- ustu mánuðina og menn séu til- tölulega bjartsýnir meö fram- haldið. Ákveðnar hugmyndir liggja nú íyrir varðandi sölumál- in sem unnið er að um þessar mundir og menn binda ákveðnar vonir við. Sérteekar aðgerðir koma ekki til greina vegna lakrar afkomu í bolfiskvinnslunni Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra teiur að lausn þess vanda sem Fiskiðjan og mörg önnur fyrirtæki í Iandinu eigi við að stríða vegna lakrar af- komu í bolfiskvinnslu, verði ekki leystur með sértækum að- gerðum stjórnvalda, Ld. aukn- ingu á kvóta. „Lausnin hlýtur að felast í aðgerðum fyrirtækj- anna sjálfra“, sagði sjávarút- vegsráðherra á fundi sem at- vinnumálanefnd Sauðárkróks efndi til sl. fostudag. Ráðherrann var þama aó svara fyrirspum Tryggva Jónssonar for- manns fiskvinnsludeildar Verka- lýðsfélagsins Fram og Magnúsar Sigurjónssonar framkvæmda- stjóra héraðsnefndar sem spurói, hvort mögulegt væri að fyrirsjá- anleg aukning í þorskafla, komi til ráóstöfunar hjá sveitarfélögum eða landshlutasamtökum, svo tryggja megi betur fiskvinnslu í dreifbýlinu. „Aðalatriðió er aó það eru skilyrði í okkar þjóðfélagi fyrir því að fyrirtækin komist af og ég sé teikn þess að þau muni smám saman fikra sig áfram til full- vinnslu afurða. Ég tel að stjóm- völd hafi tryggt almenn rekstrar- skilyrði fyrirtækjanna og raun- gengi á íslenskri framleiðslu sé mjög hagstætt um þessar mund- irí\ sagði Þorsteinn Pálsson. Vilhjálmur Egilsson alþingis- maður greindi frá fundi ráðherra og þingmanna Sjálfstæðisflokks- ins í kjördæminu með forsvars- mönnum Fiskiðjunnar þá um morguninn. Sagði Vilhjálmur að sér litist vel á áform stjómenda fyrirtækisins og hafa fulla trú á því að þeir næðu að vinna sig út úr þeim vanda sem við blasti. „Mér sýnist menn ætla að bretta upp ermar og það er tvennt ólíkt núna og fyrir ári síðan hvað menn eru að hugsa og tala“, sagói Vil- hjálmur. Gæóaframköllun BÓKABtJÐ BRYKLIARS

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.