Feykir - 22.01.1997, Síða 8
I
22.janúar, 3. tölublað, 17. árgangur
Sterkur auglýsingamiðill
KJÖRBÓK L Landsbanki w
Yfirburða bók Óbundin
Hentar öllum Islands
S: 453 5353 Banki allra landsmanna
Bára Jónsdóttir með fyrsta barn ársins sem fæddist á
fæðingardeildinni á Sauðárkróki 18. janúar.
Fæðingardeildin á Sauðárkróki
Fyrsta barn ársins
lét bíða eftir sér
Saumastofan á Hofsósi
Nýir aðilar að rekstrinum
Um næstu mánaðamót
munu nýir aðilar taka við
rekstri saumastofunnar á
Hofsósi. Svanhildur Guð-
jónsdóttir er að hætta vegna
aldurs, en nýtt hlutafélag,
sem hefur verið stofnað um
reksturinn, mun taka við.
Það eru bræðurnir frá
Þrastarstöðum, Þórhallur,
Sigurður og Valgeir Þor-
valdssynir, sem eru forvígis-
menn nýja hlutafélagsins og
hyggjast þeir fá fleiri aðila í
lið með sér. Tæki og húsnæði
saumastofunnar verður á-
fram í eigu Kaupfélags
Skagfírðinga.
Sem kunnugt er hefur ís-
lenski fáninn verið saumaður á
Hofsósi og framleiðsla hans
verið eitt helsta verkefni
saumastofunnar. Að sögn Val-
geirs Þorvaldssonar verður
fáninn saumaður þar áfram og
þess freistað að stækka mark-
aðinn enn frekar. „Við vitum
um talsverðan markað vestan
hafs og ættu tengsl okkar í
gegnum Vesturfarasetrið að
nýtast þar vel. Þá er vitað um
markað á Norðurlöndum fyrir
fánann. Síðan er ætlunin að
svipast um og sjá til hvort við
getum ekki orðið okkur úti um
fleiri verkefni til að byggja
starfsemina á og ef okkur tekst
það verður áreiðanlega ekki
vandræði með að fá gott fólk
til að vinna fyrir okkur“, sagði
Valgeir.
Þess má geta að Sigurður
bróðir Valgeirs hefur búið í
Noregi um árabil og starfrækt
þar sölufyrirtæki, sem m.a.
hefur sinnt mikið sölu á ís-
lenskum vörum. Vonir standa
til að það gæti hjálpað til varð-
andi markaðsetningu íslenska
fánans og annarrar framleiðslu
saumastofunnar á Hofsósi í
framtíðinni.
Hjá Saumastofunni á Hofs-
ósi hafa síðustu fimm árin, eða
frá því Svanhildur Guðjóns-
dóttir tók við rekstrinum af KS,
starfað að jafnaði þrjár mann-
eskjur, en fyrir þann tíma
störfuðu um árabil 6-7 manns
við saumaskap á Hofsósi.
Löngumýrarbændur fengu cignarnámsbætur vcgna línustæða
Ilæstiréttur hækkaði bætumar
Það varð aldeilis bið eftir
fyrsta barni ársins á fæðing-
ardeildinni á Sauðárkróki.
Það fæddist ekki fyrr en sl.
laugardag, 18. janúar. Það var
stúlka 15 merkur og 54 sm
sem fæddist þeim Báru Jóns-
dóttur og Sigurbirni Björns-
syni Sauðárkróki.
Birgitta Pálsdóttir ljósmóðir
segir að ljóst sé að ef gangurinn
í fæðingunum verði ekki meiri
þetta árið verði fjölgunin ekki
mikil. Reyndar hefur eitt barn
fæðst það sem af er árinu for-
eldrum frá Sauðárkróki, en það
fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri. Það var 9. janúar
sem Guðrún Valgeirsdóttir fæddi
manni sínum Þórði Þórðarsyni
stúlku 18 marka og 52 senti-
metra.
Hæstiréttur dæmi Ólöfu
Guðmundsdóttur á Ytri-
Löngumýri, ekkju Björn heit-
ins Pálssonar alþingismanns,
tæpar 800 þúsund krónur í
eignamámsbætur, vegna lands
undir línustæði og vegaslóða
er línulögninni fylgdi frá
Blönduvirkjun að byggðah'n-
unni. Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í nóvember
1994 Löngumýrarhjónum
250 þúsund krónur í bætur,
en Hæstiréttur hækkaði bæt-
urnar verulega.
Dómur Hæstaréttar var
kveðinn upp sl. fimmtudag. Á-
greiningur var milli landeig-
enda og Landsvirkjunar um mat
á landinu og náðist því ekki
samkomulag um bætur. Alls eru
11 háspennumöstur í landi
Löngumýrar og töldu landeig-
endur þau spilla 18 hektrurum
lands. Héraðsdómur Reykjavík-
ur mat landið er til spillis færi
2,4 ha en Hæstiréttur tæpa 3,5
ha.
Bjöm heitinn Pálsson taldi
að Landsvirkjun ætti að greiða
sama verð iyrir landið og þegar
keyptir voru 80,5 ha lands af
Svínavatns- og Torfulækjar-
hreppi og Blönduósbæ, eða 520
þúsund krónur á hektara. Eign-
amámsverð sem Hæstiréttur
dæmdi dánarbúi Björns var
hinsvegar innan við helmingur
þeirrar upphæðar á hektarann.
Á sínum tíma var mikill hiti
meðal nokkurra bænda í Svína-
vatnshreppi vegna lagningar
línunnar og töldu bændur um
yfirgang verktaka Landsvirkj-
unar að ræða, þar sem þeir
æddu yfir tún og lendur í leyfts-
leysi. Þannig greip Sigurður
Ingvi Bjömsson bóndi á Guð-
laugsstöðum til þess ráðs að
bera kúamykju á völlinn, í þeim
tilgangi að hefta för vinnuvéla
um svæðið. Einnig vamaði
hann verktökum aðgang með
því að leggja dráttarvél í hlið.
Þegar síðan átti að draga vélina
burtu úr hliðinu brá hann lykkju
á tógið og snaraði um háls sér,
og kom þannig í veg fyrir að
vélin yrði Ijarlægð. Sigurður
Ingvi náði síðan samningum
við Landsvirkjun.
Höfðaskóli á Skagströnd berst höfðingleg gjöf
Hefur nú yfir góðum
tölvukosti að ráða
Höfðaskóla á Skagaströnd
voru nú fyrir helgina afhent-
ar 10 tölvur að gjöf frá fjöl-
mörgum aðilum í þorpinu og
nágrenni, en efnt var til söfn-
unar vegna tölvukaupanna.
Fyrir átti Höfðaskóli tvær
tölvur. Ingibergur Guð-
mundsson skólastjóri Höfða-
skóla segir skólann nú betur
búinn kennslubúnaði í tölvu-
fræðum en margir grunn-
skólar landsins.
Það vont 21 aðili sem lagði í
púkkið til tölvukaupanna. Við
afhendingu þeina fengu for-
ráðamenn þessara aðila skjal ífá
skólanum þar sem framlagið er
þakkað. Þá var tölvuver skólans
skoðað og boðið til kaffi-
drykkju.
Tölvumar tíu eru af gerðinni
Mitac Pentium og em þær með
1280 mb hörðum diski og 16
mb vinnsluminni. Verð hverrar
tölvu um sig er um 90 þúsund.
Þá er geisladrif í nokkmm
tölvanna.
Gefendumir vom útibú
bankanna þriggja, íslandsbanka,
Búnaðarbanka og Landsbanka,
Skagstrendingur, Kaupfélag
Húnvetninga, Bflaskálinn, vöm-
flutningafyrirtækið Einbúinn,
bókhaldskrifstofa Helga Mar-
inós Magnússonar, Foreldrafé-
lag Höfðaskóla, Nemendafélag
Höfðaskóla, Apótek Blönduóss,
Maska, rafmagnsverkstæðið
Neistinn, útgerðarfyrirtækið
Jökull, skóverksmiðjan Skrefið,
sorphreinsun Vilhelms Harðar-
sonar, Toppnet, Trésmiðja
Helga Gunnarssonar, Trésmiðja
Kára Lámssonar, Verkalýðs- og
sjómannafélag Skagastrandar
og verslunin Borg.
Gæðaframköllun
BÖKABÍIÐ
BRmjABS