Feykir - 18.06.1997, Qupperneq 4
4 FEYKIR 22/1997
Hálfdánarhringurinn
vígður um næstu helgi
Stærsta tjald landsins í Lónkoti í Sléttuhlíð
Á sólstöðuhátíð í Lónkoti í
Sléttuhlíð nk. laugardag
verður vígt stærsta tjald
landsins. Það hefur verið
nefnt Hálfdánar-hringur eftir
galdramanninum og prestin-
um Hálfdáni Narfasyni í
Felli. Hálfdánar-hringur er
stærsta mannvirki sinnar
gerðar á Islandi. Tjaldið er
um 700 fermetrar að stærð,
afar sérstæð bygging og skoð-
unarverð. Það er einkum
hugsað fyrir ýmiss konar
skemmtanahald, s.s. hljóm-
leika, sjónleiki, sýningar og
ættarmóL
„Það er bráðnauðsynlegt íyr-
ir ferðaþjónustuaðila utan hring-
vegarins að skapa sér sérstöðu,
öðruvísi fáum við ekki fólk til
okkar. Það höfum við verið að
reyna að gera og þetta er enn
einn liðurinn íþeirri viðleitni”,
segir Ólafur Jónsson staðarhald-
ari í Lónkoti, en þar hefur verið
bryddað upp á ýmsu síðustu
árin. Til dæmis er þar golfvöllur
og ýmislegt til afþreyingar,
ágætis aðstaða til að grilla og
fyrir tveim árum tengdu þeir
Lónkotsmenn nafn staðarins
frægasta Slétthlíðing allra tíma,
listamanninum, landshoma-
flokkaranum og rauparanum
Sölva Helgasyni. Sölva var
reistur minnisvarði og Sölvabar
opnaður. Nú er annar frægur
Slétthlíðingur leiddur fram á
Risatjaldið, enn einn gjörningurinn sem skapar Ferðaþjónustunni í Lónkoti sérstöðu.
Mikill fjöldi fólks sótti
héraðssýningarnar
Mikill fjöldi fólks fylgdist
með Héraðssýningu Skag-
lirðinga og Vestur-Húnvetn-
inga á kynbótahrossum sem
fram fór á Vindheimamelum
sl.laugardag. Einnig mun
héraðssýning Austur-Hún-
vetninga sem fram fór við
Húnaver kvöldið áður hafa
verið fjölsótt. „Það virðist
sem sýningar á kynbótagrip-
um laði að fleiri áhorfendur
en hestamótin sjálf’, sagði
kunnur hestamaður við
blaðamann á Melunum sl.
laugardag.
Kalsamt veður gerði það að
verkum að fátt var af fólki í
brekkunni, en brúnin meðfram
var þéttskipuð bílum og bíl-
þurrkur og rúðuvindur í mikilli
notkun. Eflaust hafa aðstæður
haft sitt að segja um árangur
hestanna í sýningunni, en oft
hafa sést betri tilþrif en að þessu
sinni.
Átta stóðhestar fengu fulln-
aðardóm á Vindheimamelum.
Hugi frá Hafsteinsstöðum, und-
Skaftí Steinbjörnsson á Huga
hæst dæmda stóðhestínum á
Vindheimamelum.
an Hrafrii frá Holtsmúla og Sýn-
ar frá Hafsteinsstöðum stóð ofar
þeim tveimur sex vetra hestum
sem sýndir voru. Hann fékk
8,11 í aðaleinkunn, 7,93 fyrir
byggingu og 8,29 fyrir hæfi-
leika. Hugi hlaut Sörlabikarinn
sem veittur er því kynbótahrossi
úr Skagafirði sem fær hæstu
dóma á héraðssýningu.
Af hrossum úr V.-Hún. fékk
hæstu einkunn fimm vetra
hryssan Hekla frá Þóreyjamúpi
undan Freyfaxa og Stóru-Blesu
frá Þóreyjamúpi. Hekla fékk
7,92 í aðaleinkunn, 8,03 íyrir
byggingu og 7,81 fyrir hæfi-
leika.
Maístjama frá Sveinsstöðum
fékk hæstu einkunn í Húnaveri.
Hún er undan Stíganda frá
Sauðárkróki og Nýbjörgu frá
Hesti. Maístjama fékk 7,98 í að-
aleinkunn, 7,90 fyrir byggingu
og 8,06 íyrir hæfileika.
Þeir Lónkotsfeðgar, Ólafur og Jón, hafa lagt gífurlega vinnu í
snyrtingu utanhúss og innan í Lónkoti á undanförnum árum.
Mikil vinna Iiggur eftir þá í grjóthleðslu og þökulögnum við
Hálfdánarhring sem minnir á grískt leiksvið.
sjónarsviðið að nýju, séra Hálf-
dán í Felli, sem uppi var á 16.
öld og á sinni tíð var frægasti
galdramaður norðlenskur og
annar tveggja á landinu sem
sagan segir að hafí náð frábær-
um árangri eftir nám í Svarta-
skóla, Sæmundur fróði í Odda
var hinn.
Til em margar þjóðsögur af
Hálfdáni og gjömingum hans.
Hann var þó ekki sá eini fjöl-
kunnugi í Sléttuhlíðinni. í Lón-
koti bjó á hans tíð galdrakerling
er Ólöf hét. Eftirfarandi saga er
sögð af samskiptum þeirra:
í Lónkoti í sókn Hálfdáns
prests í Felli bjó kerling ein
gömul sem Ólöf hét. Hún var
Ijölkunnug mjög og áttu þau
Hálfdán margar brösur saman.
Eitt haust reri Hálfdán til fiskjar
með mönnum sínum og drógu
þeir flyðru eina stóra. Þá var
harka mikil og var hásetum kalt.
Þá segir prestur þegar þeir kvört-
uðu um kuldann: „Hvað ætli þið
vilduð gefa mér til þess piltar að
draga nú heitan blóðmörskepp
til að hressa ykkur?” Þeir sögðu
að hann mundi ekki geta það þó
hann vildi. En litlu síðarkemur
prestur með sjóðheitan blóð-
mörskepp á önglinum. Snæddu
þá allir hásetamir og þótti vænt
um. En á meðan hvarf flyðran
úr skipinu. Þá segir Hálfdán
prestur: „Hafa vill kerling nokk-
uð fyrir snúð sinn”. Hálfdán
seiddi keppinn frá Ólöfu, en hún
aftur flyðmna frá honum.
Vígsluathöfnin hefst í Lón-
koti nk. laugardag kl. 14,00.
Seiðkarl hátíðarinnar verður
gleðigjafmn Andri Bachmann
og ætlar hann ásamt hljómsveit
að töffa í tónum og söng á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Halldór Gísli Guðnason á Heklu frá Þóreyjamúpi hæst dæmda
kynbótahrossinu í V.-Hún. og Jóhann Þorsteinsson frá Miðsitju
á Yrkju frá Kirkjubæ, sem fékk hæstu dóma hryssna 5 vetra.
Kærarþakkir til allra sem heimsóttu
mig eða sendu mér hlýjar kveðjur og
gfafirá 90 ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Júlíusdóttir
frá Syðra-Skörðugili.