Feykir - 18.06.1997, Page 7
22/1997 FFYKIK 7
Aldarminning
Brynjólfur Danivalsson
17. júní 1897 fæddist hjón-
unum í Selhaga í Bólstaðahlíð-
arhreppi A.-Hún., Jóhönnu
Jónsdóttur og Danival Krist-
jánssyni sonur sem hlaut nafnið
Brynjólfur eítir móðurbróður
sínum Brynjólfí Jónssyni í
Merkigarði, sem dó ungur að
árum. Vorið 1901 fluttu þau Jó-
hanna og Danival með fjöl-
skyldu sína að Litla-Vatnsskarði
í Laxárdal. Þar bjuggu þau síð-
an alla sína búskapartíð og ólu
upp sinn stóra bamahóp, 5 dæt-
ur og 3 syni sem hétu talið í ald-
ursröð: Sólveig, Danival, Ingi-
gerður, Brynjólfur, Sigurjón,
Kristín, Halldóra og Ingibjörg
Salome.
Litla-Vatnsskarð var ekki bú-
sældarbýli lyrir svo stóra fjöl-
skyldu. Þar var þó talið gott að
koma lyrir þreytta ferðamenn á
þeirri fjallaleið sem lá um Litla-
Vatnsskarðið. Jóhanna hafði ftá-
bæra hæfileika til að taka vel á
móti gestum í þröngum húsa-
kynnum og oft við lítinn kost.
Bömin fóm snemma að vinna
bæði heima og annars staðar.
Brynjólfur, kallaður Binni, fór
ungur að heiman. Hann var í
nokkur ár (1909-1914) hjá Bimi
Eysteinssyni sem þá bjó aldrað-
ur á Orrastöðum í Svínavatns-
hreppi. Þjóðkunnur maður lyrir
einbeitni og viljastyrk. Binni
taldi að árin á Orrastöðum hefðu
verið lærdómsrik og á ýmsan
hátt nýst sér vel síðar á ævinni.
Þó vinnudagurinn væri langur á
Orrastöðum var þar ætíð nóg að
borða. Bjöm gaf Binna vandað
vasaúr að skilnaði og ýmis heil-
ræði í veganesti.
Síðar lágu leiðir hans í
Skagafjörð. Þar vann hann að
bústörfum á nokkmm bæjum,
en aðallega á Hafsteinsstöðum
og Sauðá í Borgarsveit. Á þeim
ámm fór hann í Búnaðarskól-
ann á Hvítárbakka. Maigar góð-
ar minningar átti hann frá þeirri
skólavist. Nokkrir skólabræður
hans vom vinir hans eða kunn-
ingjar meðan ævi entist, þó bú-
settir væm á fjarlægum stöðum.
Brynjólfur var aldamótamaður í
orðsins lyllstu merkingu. Hann
studdi af alhug félagslegar
ffamfarir: jafnaðarstefhu, verka-
lýðsbaráttu og samvinnustarf.
Hann var bæði mannvinur og
dýravinur. Gerði meiri kröfur
fyrir aðra en sjálfan sig. Dóm-
greind hans var skörp og yfir-
veguð. Hann hagræddi ekki áliti
sínu vegna eiginhagsmuna né
hagsmuna annarra. Framsýnn
maður og jákvæður.
Um 1925 settist Brynjólfúr
að á Sauðárkróki. Nokkmm
ámm síðar stofnaði hann heim-
ili að Árbæ (er síðar varð Suður-
gata 24) með konu sinni Emelíu
Lámsdóttur lfá Skarði. Þau áttu
þar heimili bæði til æviloka. Að
Árbæ ólu þau upp bömin sín
fimm. Þau em: Sveinn f. ‘29
verkstjóri kvæntur Guðrúnu
Þorsteinsdóttur búsett í Kefla-
vík, Ragnheiður f. ‘30 ljósmóð-
ir, lést 16. okt. ‘86, Stefama f.
‘32 gift Ara Jónssyni fv. útibús-
stjóra Landsbankans, búsett í
Reykjavík. Jóhanna f. ‘33
hjúkmnarfræðingur gift John
Þór Toffolo tæknifræðingi á
Ratsjárstofnun, búsett í Kefla-
vík. Erla f. ‘35 bjó heima hjá
foreldmm sínum, lést 30. ágúst
1990.
Auk bama sinna ólst upp hjá
þeim sonur Ragnheiðar,
Brynjólfúr Dan Halldórsson
mælingamaður og verktaki.
Fyrir hjónaband sitt eignaðist
Brynjólfúr son með Steinunni
Hansen á Sauðá, Björgvin f. ‘23
sem þetta ritar.
Brynjólfúr var fremur hlé-
drægur en sóttist ekki eftir fé né
frama. Áhugi hans á félagsmál-
um varð til þess að hann komst
ekki hjá að taka að sér ýmiss fé-
lagsstörf, einkum þó lyrir sveit-
arfélagið. Hann átti um langt
árabil sæti í nokkmm nefndum
Sauðárkróksbæjar og var bæjar-
fulltrúi um skeið fyrir Alþýðu-
flokkinn. Hann leit á flokkinn
sem baráttutæki jafnaðarstefn-
unnar lyrir mannrækt og betra
þjóðfélagi. Brynjólfi tókst að
eiga góð samskipti við sína
samferðamenn án þess að slá
nokkuð af sínum skoðunum.
Hann eignaðist aldrei öfundar-
menn né óvini. Hann kaus að
lifa kyrrlátu lífi á fábrotinn hátt.
Búskap rak Brynjólfur með-
an heilsan leifði. Ræktaði tún í
bæjarlandinu og sótti engjabú-
skap á Víkurengið. Hann sá
lengi um reksturinn á Sýsluhest-
húsinu, sem stóð nálægt Ár-
bænum. Þó búskapurinn væri
bindandi vann hann einnig dag-
launavinnu þegar hana var að
fá. Vinnudagur hans var því oft
ótrúlega langur. Emelía veitti
honum oft mikla aðstoð og
bömin meðan þau vom heima,
einkum við heyskapinn.
Brynjólfur missti að mestu
röddina skömmu efdr fimmtugt.
Það torveldaði mjög þátttöku
hans á fundum og félagsstörf-
um. Hann fékk heilablæðingu
og lamaðist vemlega þegar
hann var á sjötugsaldri. Þannig
lauk hans löngu vinnudögum.
En hin einstæða ró hans raskað-
ist ekki þó vinnan og vinimir
ljarlægðust. Heimilið var ömggt
athvarf. Eiginkonan dugleg og
ósérhlífin og bömin komu oft
þó þau byggju í fjarlægð. Hann
fór aldrei á sjúkrahús í sínum
löngu veikindum. Hann lést 14.
september 1972 þegar heila-
blæðing gerði aftur vart við sig,
75 ára að aldri. Emelía lifði
mann sinn lengi, lést 8. ágúst
1993,97 ára gömul.
Að lokum vil ég þakka þeim
báðum fyrir að veita mér at-
hvarf og annað heimili þegar ég
flutti frá Sauðá fyrir 56 ámm.
Góðar minningar lifa lengi.
Björgvin Brynjólfsson,
Skagaströnd.
Ókeypis smáar
Til sölu!
Til sölu Opel árg. ‘82,
upptekin vél. lítur vel út að
innan en skemmdur á hlið.
Varahlutir fylgja. Upplýsingar í
síma 453 5464.
Til sölu bastsófasett með
glerborði. Á sama stað óskast
homsófi. Skipti væm tilvalin.
Upplýsingar í síma 453 5363
eftir kl. 20.
Til sölu ljögur vetrardekk á
felgum, stærð 175x14, seljast
ódýrt. Uppl. í síma 453 5428
Til sölu Lada sport árg. ‘87
ekinn 109.000 km, upphækk-
aður, dekk 215/75x15, bretta-
kantar. Góður bíll á góðu verði.
Upplýsingar í síma 453 4320 á
kvöldin.
Til sölu notað reiðhjól Jazz
Voltage 24” 18 gíra og BMX
16”. Einnig veiðileyfi í Laxá í
Skefilsstaðahreppi, ein stöng 6.
júh' (opnunarhelgi) og 30. júlí.
Aðstaða í húsi fylgir.
Upplýsingar í síma 453 6750
eða 453 5602.
Húsnæði óskast!
Við óskum efúr húsnæði með
húsgögnum á Sauðárkróki eða
nágrenni, 3ja herbergja eða
stærri. Skilvísum greiðslum
heitið og góðri umgengni. Upp-
lýsingar í síma 561 2419
(Guðný) eða 555 0809 (Katrín).
Tapað -fúndið!
Gleraugu í rauðbrúnu hulstri
töpuðust í síðustu viku, einhvers
staðar á leiðinni frá Hótel
Mælifelli um Túnahverfi upp í
Hh'ðarhverfi. Upplýsingar í
síma 453 5753
Afmælisár á Króknum
Konur á Króknum
Fimmtudaginn 19. júní verður opnuð í
Barnaskólanum sýning
r
KONURAKRÓKNfM
þar sem stiklað verður á stóru um sögu kvenna
á Sauðárkróki.
Klukkan 17.00 verður aflijúpaður steinn á horni Freyjugötu og
Skólastígs til minningar um Frúarstíg. Að því loknu verður sýningin í
Barnaskólanum opnuð.
Kl. 20.30 hefst dagskrá í Bamaskólanum. Erindi eftir Aðalheiði B.
Ormsdóttur. Pilsaþytur, þættir úr sögu kvenna og kvennafélaga í
Skagafirði. Flytjendur María Gréta Ólafsdóttir, Anna Pála Þorsteinsdóttir
og Sigrún Alda Sighvatsdóttir. Þá verður harmonikkuleikur kvenna.
Föstudagurinn 20. iúní kl, 20.30. Erindi Helga Kress prófessor,
Skáldkonur í Skagafirði. „Hugsanir mínar urðu tíðum að ljóði”.
Svana Berglind Karlsdóttir syngur við undirleik Heiðdísar Lilju
Magnúsdóttur.
Laugardaginn 21. júní kl. 17.00 verður dagskrá „Konur á vinnu-
markaði” í umsjá Ásdísar Guðmundsdóttur.
Miðvikudagur 25. júní kl, 20.30 verður dagskrá „Konur og íþróttir” í
umsjá Fanneyjar í. Karlsdóttur.
Sýningin Konur á Króknum er opin virka daga kl. 16-21 og um helgar
kl. 14-22.
Aðgangseyrir kr. 300, ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri.
Selt verður kaffi og meðlæti í „Guðrúnarlundi” að hætti Guðrúnar frá
Lundi.
Undirbúningsnefndin.