Feykir - 26.11.1997, Blaðsíða 5
41/1997 FEYKIR 5
/W>i
Il*;i 1» ttrftlMiiliiíft
RAFTÆKJA- & TOLVUDEILD
s: 455 4537 - f: 455 4531 - www.ks.is
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu ættingjum og vinum sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýjan hug við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu minnar, dóttur,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
Erlu Jónsdóttur frá Kambi
Víðigrund 2, Sauðárkróki
Páll Hjálmarsson
Arnfríður Jónasdóttir
Hjálmar S. Pálsson Kristjana Sigmundsdóttir
Jón Ö. Pálsson Hugrún Eðvarðsdóttir
Rúnar Pálsson Sigurlaug Ó. Guðmannsd.
barnabörn og barnabarnabarn.
Undirheimafólk úr
Nesinu á fjalir Bifrastar
Páll frá Utanverðunesi og
systkini hans frá Hróarsdal, eins
og mai'gt fleira fólk úr Hegra-
nesi og nágrenni, hafa sagt sög-
ur af álfum og huldufólki sem
búi í klettum og klöppum í Nes-
inu. Þar koma við sögu dökkálf-
ar, ljósálfar og annað huldufólk.
Þessar persónur birtast nú ljós-
lifandi á sviði Bifrastar þessa
dagana í ævintýrinu Tntli sem
þau hjón og gleðigjafar Hilmir
Jóhannesson og Hulda Jóns-
dóttir hafa samið og Eiríkur
sonur þeirra veitt þeim aðstoð
með því að semja tónlistina, en
mikið er um söngva í leiknum.
Frumsýnt var í Bifröst á
föstudagskvöld og var leikend-
um, höfundum og leikstjóran-
um, Ingunni Asdísardóttur, vei
fagnað að lokinni sýninunni.
Búið er að sýna Trítil 5 sinnum
og er sjötta sýning í dag, mið-
vikudag kl. 18, og sfðan verða
tvær sýningar á sunnudaginn.
Leikendur í Trítli eru rúm-
lega 30 talsins, margir ungir að
árum og þykja þeir standa sig
mjög vel, eins og reyndar þeir
sem reyndari em. Leikgleðin
ræður ríkjum og sýningin þykir
vel heppnuð, ágætlega hafi tek-
ist til með marga hluti, t.d. þykja
búningamir falla ákaflega vel
að sýningunni.
Það er kingimagn-
aður andi á leik-
sviðinu í Bifröst.
Hinir ungu leikar-
ar sýna mikla leik-
gleði, enda eru
álfamir og huldu-
fólkið allra
skemmtilegasta
fólk, það geta
margir úr Hegra-
nesinu vitnað
um, enþar erein
mesta álfabyggð
landsins.
Öllum ber saman um að umferðarátakið sem nokkrir aðilar
stóðu fyrir á Sauðárkróki í síðustu viku hafi tekist mjög vel.
Meðal þess sem gert var vegfarendum til viðvörunar, var að
þessum klessukeyrða bíl var stillt upp við Faxatorgið og komið
var fyrir hraðamælitæki með blikkljósi á Skagfirðingabauk
VW BJODUM YKKUR VELKOMIN
í NÝJA 06 GLÆSILEDA RAFTÆKJADEILD
föstudaginn 28. nóvember!
STÓRSÝNING Á AIWA HLJÓMTÆKJUM!
kynning á 1998 línunni föstud. og laugard.
Einnig úrval fallegra ítalskra sjónvarpsskápa
FULLT AF GÓÐUM
OPNUNARTILBOÐUM:
fiú gerir hagstæ>ustu jólainnkaupin hjá okkur!
Moulinex matvinnsluvél á kr. 9.950
(áðurkr. 12.300)
Phiiips kaffikanna á kr. 3.900
(áður kr. 4.900)
AEG 1200w ryksuga
á kr. 9.900
(áður kr. 13.400)
Kitchen Aid hrærivél á kr. 29.900
Jólatilboð: Hakkavél fylgir!!!
(andvirði kr. 5.400)
Brauðrist á kr. 1.980
Geisladiskabakkar f. 44 diska
aðeins kr. 790
(áður kr. 1.290)