Feykir - 26.11.1997, Blaðsíða 7
41 /1997 FEYKIR 7
Sigurður Jón Halldórsson
frá Halldórsstöðum
Komið er frændi að kveðju-
stund. Það er ólýsanleg tilfinning
sem því fylgir að setjast niður og
minnast elskulegs móðurbróður
Sigga á Halldórsstöðum. Siggi
var hæglátur maður, einstaklega
reglu- og samviskusamur. Harð-
duglegur var hann og vandaði öll
sín verk. Hjálpsamur og ijótur til
ef hann vissi að einhver var í
vandræðum. Hann hafði gaman
af glettni og kunni margar
skemmtilegar sögur af skondnum
atvikum.
í sveitinni á Halldórsstöðum
áttum við saman yndisleg ár hjá
ömmu og afa og fjölskyldunni.
Það var oft margt um manninn á
annatímum. Þegar heilsu afa og
ömmu fór að hraka tók Siggi við
búinu, en þau bjuggu áfram hjá
honum. Ætíð var Siggi leiðbein-
andinn í öllu sem unnið var á
bænum og stjómaði af sinni festu
og ró þannig að allir báru ómælda
virðingu fyrir honum og gerðu sitt
besta. Hann treysti okkur krökk-
unum snemma til að vinna á-
byrgðarstörf s.s. að mjólka og
keyra vélar o.fl. Það var oft mikil
gleði í heyskap og réttarstússi.
Þannig mætti lengi telja. Gamlárs-
kvöldin á Halldórsstöðum voru
einstök. Siggi keypti alltaf einn
stóran flugeld sem hann skaut upp
eftir klukkan tólf þegar allir höfðu
sungið saman, Nú árið er liðið.
Sfðan var dansað fram eftir nóttu,
ungir og gamlir og allir skemmtu
sér konunglega.
Siggi var góður söngmaður,
naut þess mjög að syngja, enda al-
inn upp við söng frá bamæsku.
Hann hafði garnan af hestum og
átti hest sem hét Háfeti. Hann var
ótrúlega vitur en ódæll á köflum.
Unun var á að horfa þegar þeir
stilltu saman strengi sína. Það
væri efni í heila bók að rilja upp
endurminningar, stundir í sveit-
inni, og á ég rnikinn ljársjóð
minninga sem ég ylja mér við.
Siggi vann hjá vegagerðinni á
Sauðárkróki með búinu og vinnu-
dagurinn oft æði langur. Mikil
þáttaskil urðu í lífi Sigga þegar
hann flutti til Sauðárkróks. Þá var
amma látin en afí flutti með hon-
um og héldu þeir saman heimili,
meðan heilsa afa leyfði. Umhugs-
un Sigga á foreldmm hans var
einstök. Hann hugsaði um þau af
sérstakri þolinmæði og tillitssemi.
Ein mesta gæfa í lífi Sigga var
þegar hann kynntist eftirlifandi
konu sinni Kristínu Jóhannsdóttur
frá Tyrfmgsstöðum. Samheldni
þeirra, vinátta og virðing hvort
fyrir öðru var slík að unun var að
vita tíl. Þau áttu hross á jörð henn-
ar Tyrfingsstöðum og dvöldu þar
mikið í sínum fríum. Ég var þeirr-
ar gleði aðnjótandi að fá að fóstra
fyrir þau folöld undanfama vetur
þar sem samverustundunum
fækkaði með ámnum. Vom þess-
ar gleðistundir dýrmætar.
Þann 23. ágúst í sumar giftu
þau sig Halldór bróðir og Sonja í
Sauðárkrókskirkju. Halldór bað
Sigga að vera svaramann vegna
þeirra nánu tengsla og vináttu.
Það gerði hann þrátt fyrir versn-
andi heilsu, því loforð sín sveik
hann ekki. Getum við verið svo
þakklát þeim fyrir þennan dag,
sem íjölskyldan átti svo yndisleg-
an. Oft talaði Siggi um að þau ætl-
uðu að byggja hús á Tyrfmgsstöð-
um, til að geta dvalið þar meira.
Ég fór með Sigga og Stínu í Tyrf-
ingsstaði síðla sumars 1995. Þau
sýndu mér sælureitinn sinn og
hvar nýja húsið skyldi rísa. Slík a
fegurð er óvíða að finna og líkast
ævintýraveröld niðri í gilinu. Að
lokinni þessari skoðun hafði Stína
orð á hvort við ættum ekki að fá
okkur hressingu. Mér fannst ég
hrökkva nokkur ár aftur á bak,
jregar hún tók upp nestistöskuna.
Þar vom ýmsir hlutir sem amma
hafi notað í réttarferðunum forð-
um. Ég dáðist að hennar rausnar-
skap og hversu vel hún hélt minn-
ingu ömmu í heiðri, með því að
nýta gömlu hlutina hennar. Tím-
inn leið og sl. sumar reis þetta
glæsilega hús sem ber eigendun-
um fagurt vitni. Húsið er ná-
kvæmlega eins og hans gjörðir,
glæsilegt og vandað í alla staði.
Dýrmætt var að Siggi skyldi hafa
heilsu til að vera með í byggingu
hússins, því hann var ekki maður
sem sat með hendur í skauti og
þurfti að hafa eitthvað til að fást
við meðan kraftar leyfðu. Ekki
eignaðist Siggi böm, en afi var
hann engu að síður. Böm Kristín-
ar em Jóhannes Jóhannesson,
maki Anna Sveinsdóttir og Freyja
Ólafsdóttir maki Benedikt Ólafs-
son. Þau og þeirra makar mátu
Sigga mjög mikils og vom ein-
staklega dugleg að rétta þeim
hjálparhönd. Siggi átti fimm litla
afastráka og ber einn af Jreim nafn
hans, sem honum þótti mjög vænt
um. Þessi litlu snáðar vom hænd-
ir að Sigga og sakna nú sárt afa. í
veikindum Sigga stóð Stína við
hlið hans af sínum einstaka dugn-
aði og gaf honum styrk og bjart-
sýni til hinstu stundar.
Ég vil þakka starfsfólki á
Borgarspítalanum þá einstöku
umönnun sem þau bæði nutu í
erfiðar sex vikur sem þau dvöldu
þar fyrir andlát hans.
Elsku hjartans Siggi frændi.
Ég vil þakka þér allt sem þú
kenndir mér í sveitinni forðum.
Ég bý að því alla tíð. Ég vil fyrir
hönd móðir minnar, eiginmanns
míns og bama þakka þér allar
yndislegu stundimar sem við átt-
um saman. Ég veit að þín bíða
mikilvæg verkefni á æðri sviðum
og þú hefur fengið fjölmenna
móttöku hinum megin. Móður
minni, systkinum hennar, afa, ætt-
ingjum öllum og vinum hans
votta ég mína dýpstu samúð.
Elsku hjartans Stína. Ég á eng-
in orð til að lýsa hversu sárt það er
að þið skylduð ekki fá að njóta
yndislega hússins ykkar og svo
ótal margs sem þið áttuð ógert.
Við stöndum orðlaus yfir jressum
dómi. Megi algóður Guð taka þig,
bömin þín og ljölskyldu þeirra í
faðminn og styðja ykkur og
styrkja. Einnig bið ég góðan Guð
að tendra hjá okkur öllum minn-
ingarljós um Sigga, sem við kom-
um auga á þegar sól fer að hækka
á lofti.
Guðrún Halldóra
Þorvaldsdóttir, Vatni.
Okeypis smáar
Til sölu!
Til sölu fjórir vélsleðar, tveir
Polaris Indy Classic Touring
árgerð 1994, eknir 1926 og
2128 mflur. Verð 570 þúsund
hvor. Indy XLI Touring árgerð
1995 ekinn 2149 mflur. Verð
695 þúsund. Widetrack árgerð
1994 ekinn 3374 mflur. Verð
530 þúsund. Allir sleðamir eru í
mög góðu lagi og líta vel út.
Vetðin á sleðunum em uppgefin
listaverð af umboði. Upplýs-
ingar í síma 453 8210 á kvöldin.
Til sölu skíðaskór nr. 43.
Upplýsingar í síma 453 5861.
Húsnæði óskast!
Oska eftir 4-5 herbergja íbúð,
raðhúsi eða einbýlishúsi.
Upplýsingar gefur Eyjrór í síma
453 5399 eða 453 5151.
Kýr óskast!
Óskum eftir að kaupa kýr
með burðartíma des-mars.
Upplýsingar í síma 453 5540.
Sokkaprjónavél!
Á einhver gamla hring-
prjónavél eða nálar úr hring-
pijónavél. Frændi minn einn
er að prjóna á fomgripinn sinn
sem orðinn er lélegur. Ef
einhver á svona vél og vill láta
hana af hendi, þá þætti mér
vænt um að heyra í viðkom-
andi. Sími minn er 462 6274
(Björk). P.S. Ef einhvem vantar
glerskál á gömlu Kitchen Aid
hrærivélina sína þá á ég hana.
Hlutir óskast!
Fjórhjól óskast, annaðhvort
Susuky LT 80 eða Polaris
Cyclone 250. Upplýsingar í
síma 453 5585 eftirkl. 19.
Gullfiskaáhugamenn
Sauðárkróki! Óska eftir
ókeypis Gúbbý-fiskum. Upp-
lýsingar í síma 896 1359.
Spilakvöld!
Spilakvöld í Höfðaborg á
Hofsósi fimmtudaginn 4. des.
kl. 21. Verðlaun og veitingar.
Félag eldri borgara Hofsósi.
Vöruflutningar
Sauðárkrókur - Skagaljörður
Vörumóttaka hjá HSH í tollvörugeymshinni
Héðinsgötu 1-3 - Sínii 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Reiki - heilun!
Held námskeið í hverjum mánuði. Næsta 1. stigs
námskeið 2.-4. desember.
Allar nánari upplýsingar í síma 452 7119.
JON ARNAR MACNÚSSON
súrmjólkin mín!
Próteinrík
íþróttasúrmjólk
með ekta
vanillukornuml
„/ tugþrautinni er
nauðsynlegt að vera í
toppformi. Grunnurinn er
hollur og næringarríkur
matur. fþróttasúrmjólkin
stenst mínar kröfur um
fæðu sem gefur orku, byggir
upp og er þar að auki
bragðgóð og mettandi. “
MJÓLKURSAMLAG KS
SAUÐ ÁRKRÓKi