Feykir - 20.01.1999, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Símasambands- og raf-
magnslaust í óveðrinu
Mjög tvísýnt um úrslit í
prófkjörinu hjá framsókn
Stefán Guönmndsson alþingismaður greiddi atkvæði í próf-
kjörinu um kaffileytið sl. sunnudag. Stefán lætur af þing-
mennsku í vor og hart er barist um sæti hans.
Talsvert rafmagnsleysi varð í
norðanveðrinu um helgina.
Rafmagnslaust var á einstök-
um svæðum, svo sem á Skaga
og Reykjaströnd, þar sem það
varaði einna langst, eða í tæpa
tvo sólarhringa. Talsvert raf-
magnsleysi var í Skagafirði, í
Flókadal og í grennd við Hofs-
ós, en bændur þar fengu
skammtað rafmagn frá dísel-
stöð á Hofsósi á mjaltatímum.
Þá var nokkuð um það að ein-
stök svæði í Vestur-Húna-
vatnssýslu væru án rafmagns,
aðalega á Heggstaðanesi,
Vatnsnesi og í Vesturhópi.
Það voru Þverárbæimir í
Vesturhópi sem voru án raf-
magns í tæpan sólarhring.
Mjólkurbú er á bænum Neðri-
Þverá. Þar tóku við búi fyrir átta
árum Bjöm Unnsteinsson og
Guðrún Aðalsteinsdóttir. Þau em
með 18 kýr í fjósi flestar nýbom-
ar. Rafmagnið fór af á þriðja tím-
anum á laugardag og á laugar-
dagskvöld tókst ekki að rnjólka
kýmar, og morgunmjaltir á
sunnudag drógust nokkuð, þar
sem að viðgerðarmaður kom
ekki fyrr en um hádegið.
„Við höfðum ekki möguleika
á neinu til að knýja mjaltakerfið.
Menn hafa verið að bjarga sér
með því að tengja mótor frá
Tíu tonna trilla sökk í miklu
ísingarveðri á Hofsósi aðfara-
nótt laugardags. Sjómenn á
Hofsósi stóðu í því að berja ís
af bátum sínum á laugardag
og sunnudag, en mikla ísingu
lamdi inn með norðan-
veðrinu.
Einungis stefni bátsins var
uppi úr sjónum á sunnudags-
haugsugu við kerfið, en við emm
ekki með haugsugu þannig að
það vom engir möguleikar með
að mjólka. Hins vegar var bilun-
in lítilsháttar, aðeins selta á þétt-
ir í staur héma hjá okkur sem
stundum gerist. Viðgerðarmað-
urinn var ekki nema 2-3 mínútur
uppi í staumum, þannig að
manni finnst það blóðugt að
verða fyrir tjóni þegar ekki tekur
lengri tíma að kippa hlutnum í
lag. En nytin féll náttúrlega í
kúnum og þetta tekur sinn tíma
að komast í samt lag aftur”, sagði
Bjöm á Neðri-Þverá.
I nógu var að snúast fyrir
starfsmenn Rarik um helgina, en
þó ljóst að fyrirbyggjandi að-
gerðir með því að setja línur í
jörð á undanfömum ámm,
bjargði því að ástandið varð ekki
mikið verra. Verst þótti þó að
símasamband skildi detta út á
laugardaginn, og rafmagns-
geymar í stöðinni á Sauðárkróki
sem áttu að endast í þrjá sólar-
hringa, entust ekki nema í hálfan
sólarhring. Ljóst er að Landssím-
inn mun vinna að einhveijum úr-
bótum í þessum málum og eins
er sýnt að ekki verður búið við
það til lengdar að engin varaafls-
stöð verði til staðar á Sauðár-
krók, stærsta þéttbýlisstað kjör-
dæmisins.
morgun. Trillan náðist upp í
fjöruborðið á mánudag og var
síðan bjargað á land í gær. Talið
er fullvíst að hún sé mikið
skemmd eftir volkið.
Ef frá er talið þetta óhapp og
snjóflóð í Oslandshlíð er ekki
vitað um nein meiriháttar óhöpp
í kjördæminu af völdum óveð-
ursins um helgina.
Ljóst er að mjög góð þátttaka
verður í prófkjöri Framsókn-
arflokksins á Norðurlandi
vestra. Þegar kjörfundur
hófst kl. 17 í gær, höfðu um
1600 manns kosið og þar sem
að nokkrar kjördeildir voru
þá að opna í fyrsta sinn, er
ekki ólíklegt að ætla að kosn-
ingin nái kjörfylgi flokksins í
síðustu kosningum, sem var
um 2300 atkvæði. Kjörgögn-
um átti að safna saman í
gærkveldi og talning að fara
fram í dag. Búist er við tví-
sýnum úrslitum, einkanlega
um annað sæti listans. Sér-
lega er talið að mjótt verði á
mununi milli Arna Gunnars-
sonar og Herdísar Sæmund-
ardóttur.
Við upphaf kjörfundar í gær
höfðu um 1000 manns kosið í
Skagafirði, þar af um 600 á
Sauðárkróki. Um 300 manns
höfðu kosið á Siglufirði, sent er
mjög góð þátttaka, en í Húna-
þingi átti eftir að kjósa í öllum
kjördeildunum út unt sveitir og
því vantaði nokkuð á þátttökuna
fyrir vestan.
Ljóst er að baráttan er búin
að vera hörð í prófkjörinu og
talsverð spenna hlaðist upp milli
fylgismanna frambjóðendanna.
Símasambandsleysi á laugardag
var ekki til að draga úr spenn-
unni og þess valdandi að
„agentar” komu inn með aukn-
um þunga á sunnudeginum og
framlenging kjörfundar fram á
þriðjudag og talning í dag hefur
orðið til að framlengja tauga-
strfð ffambjóðendanna.
Magnús Olafsson formaður
kjördæmisráðs kveðst mjög
ánægður með þátttökuna. Hann
segir prófkjörið hafa farið vel
fram og menn virt þar allar sett-
ar reglur. Magnús segir menn
búa nú af reynslu ffá fyrri próf-
kjömm, til að mynda sé það nú
ekki leyft eins og gerðist í próf-
kjörinu fyrir fjórum ámm, að
farið væri með kjörkassana
heim á bæi eða á heimili til
fólks sem ekki komst á kjörstað.
En talsverð óánægja var með
það fyrirkomulag eftir prófkjör-
ið, enda bámst kjörkassar þá allt
að því veðurbarðir til talningar,
en þá viðraði líkt og gert hefur
undanfama daga, með hörðu
norðanveðri og kafaldsbil. Það
mun víst hafa komið til tals að
framsóknarmenn verði með
næsta prófkjör á öðmm tíma,
haldi sig ekki lengur við þessa
helgi í janúar, greinilega er ekki
góð til kjörfunda.
Trilla sökk á Hofsósi
—KTch^ífl ekjDI— JIMíTtbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sfmi 453 5519, fax 453 6019 Æ ÆJLMJKL sími .453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6J40
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA ÍJ Réttingar ^ Sprautun