Feykir - 20.01.1999, Qupperneq 2
2 FEYKIR 3/1999
í bígerð að safna húnvetnskri
menningu í myndrænt form
„Þetta eru svo miklar breyt-
ingartímar sem við lifum á, til
að mynda virðast bændabýlin
tína tölunni, þannig að ef við
viljum halda til haga húnvetnskri
menningu, þá veitir ekki af að
hefjast handa”, segir Guðrún
Guðmundsdóttir verslunarkona
á Skagaströnd, mikil áhuga-
manneskja um varðveislu sögu-
legra menja og menningar.
Guðrún hefur komið því erindi
til héraðsnefndar A.-Hún. að
húnvetnsk menning verði varð-
veitt í myndrænu formi: mynd-
um af mannlífi, mannvirkjum
og ýmsum viðburðum á héraðs-
vísu verið komið á myndband.
Guðrún bendir einnig á leiðir til
íjármögnunar þessa verkefnis,
svo sem styrki frá ýmsum fé-
lögum og fyrirtækjum er svæð-
inu tengjast.
Héraðsnefnd hefur beint
þessu erindi út til sveitarstjóm-
anna og bæjarstjóm Blönduóss
lýsir vilja sínum til þátttöku í
þessu verkefni, enda séu önnur
sveitarfélög í héraðinu tilbúin til
þátttöku.
Guðrún Guðmundsdóttir
vonast til að sveitarstjómir taki
þetta mál til umfjöllunar á næst-
unni, en vonir standa til að hægt
verði að byija af fúllum krafí að
vori.
Guðrún segir hugmyndina
að myndbandið verði byggt upp
á svipaðan hátt og Vestur-Hún-
vetningar gerðu á sínum tíma,
þegar þeir gáfu út „Bændur og
býli”. Þá voiu teknar myndir af
ábúendum og húsakosti á
sveitabæjum.
„Það væri gaman að safna
þama saman lifandi myndum,
sem teknar væm bæði sumar og
vetur á bæjunum. Við höfum
líka hug á að taka myndir hér á
Skagaströnd og Blönduósi. Ég
veit til þess að Skagstrendingur
lét taka á myndband skötuveisl-
una á Þorláksmessu, afmælis-
veislu fyrirtækisins og móttöku
vegna Örvars. Það þyrfti endi-
lega að taka myndir á sjó-
mannadaginn á Skagaströnd,
17. júní á Blönduósi og fleiri
viðburði á svæðinu. Væntan-
lega mundi þetta verkefni taka
a.m.k. 2-3 ár”, segir Guðrún
Guðmundsdóttir á Skagaströnd.
Hátíðarhöld árið 2000 í SkagafLrði
Samið við Jón Ormar
um umsjón dagskrár
Jón Ormar Ormsson hefur
verið ráðinn til að hafa umsjón
með dagskrá væntanlegra hátíð-
arhalda í Skagafirði árið 2000
vegna kristnitökuhátíðarinnar.
Jón Ormar hefur reynslu á
þessu sviði, annaðist dagskrár-
gerð á afmælisári Sauðárkróks
og þótti þar gera marga góða
hluti.
Jón Ormar sagðist í samtali
við Feyki lítið geta sagt á þessu
stigi um fyrirkomulag hátíða-
haldanna enda málið ekki kom-
ið á flot. Hins vegar væri ljóst
að margt yrði að gerast í Skaga-
firði bæði á árinu 2000 og 2001.
„Það verður greinilega mjög
kraftmikið”, sagði Jón Ormar.
Áhrif Blönduvirkiunar á lífríkið
Skilyrði lyrir uppgöngu
físks í ána hafa batnað
Prófkjör Samfylkingar á
Norðurlandi vestra
Prófkjör samlylldiigar Alþýðubandalagsms, Alþýðuflokks og
Kvennalistatis á Norðurlandi vestra íýrir Alþingiskosningamar 8.
maí 1999 verður haldið 13. febrúar nlí. Aflir íbúar á Norðurlandi
vestra sem fæddir eru árið 1981 eða fyrr hafa rétt til að greiða
atkvæði í prófkjörinu. Kosning í tvö efstu sætin eru bmdandi.
Frestur til að tillíynna framboð er til 23. janúar.
Tilkynnt skal xnn framboð til eftirtalinna aðila:
Unnar Raíii Ingvarsson, Jöklatúni 14, Sauðárkróki, s. 453 6290.
Jón Karlsson, Hólavegi 31, Sauðárkróki, s. 453 5313.
Kjörstjóm Samfylkingar á Norðurlandi vestra.
MBWh Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Kvensjúkdómalæknir
Karl Ólafsson kvensjúkdómalæknir verður með móttöku á
stofnuninni dagana 1.-5. febraúar nk.
Tímapantanir í síma 455 4000.
Athugið
Opnunartími skiptiborðs stofnunarinnar verður framvegis
kl. 8,00 - 16,00 virka daga.
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
Samkvæmt skýrslu fiski-
fræðinganna Sigurðar Guð-
jónssonar og Inga Rúnars Jóns-
sonar, sem þeir gerðu fyrir
Landsvirkjun, hafa skilyrði fyr-
ir fisk til að ganga upp Blöndu
batnað, vegna minni svifaurs.
Þannig gengur fiskur, bæði lax
og sjóbleikja, greiðar upp
vatnakerfið og dreifmg veið-
innar í vatnakerfmu hefur því
breyst þannig að meira veiðist
nú hlutfallslega ofar í vatna-
kerfinu en áður var, samkvæmt
mati þeirra félaga.
Ahrif virkjunarinnar á fisk-
gengd og veiði eru margvísleg.
Svæði ofan virkjunarinnar lok-
ast af og þar með töpuðust
svæði fyrir uppeldi á sjógengn-
um fiski, bæði bleikju og laxi og
hefur það verið metið sérstak-
lega.
I annan stað hafa skilyrði til
fiskuppeldis breyst í Blöndu
neðan virkjunar. Jökulleirinn
sest til í Blöndulóni og er þar
með minni í Blöndu. Þetta þýð-
ir að meiri lífræn framleiðsla
Leiðrétting
I frétt í síðasta blaði um
gjafir til Sjúrkahúss Skag-
firðinga var þess m.a. getið
að Kristbjörg Guðmunds-
dóttir frá Asi hefði ánafnað
stofnuninni vænni peninga-
upphæð, til minningar um
foreldra sína. Því miður féll
niður fyrra nafn móður
Kristbjargar, en hún hét
fullu nafni Jóhanna Guðný
Einarsdóttir. Leiðréttist
þetta hér með.
verður í Blöndu þar sem sólar-
ljósið nær lengra niður í vatnið
og þömngar vaxa á stærri hluta
botnflatar en áður. Meira magn
næringarefna berst niður
Blöndu í árvatninu fyrstu árin
eftir að jarðvegur og gróður fer
í kaf í Blöndulóni og brotnar þar
niður og skolast út í vatnið.
Þetta olli miklum vexti í bleikju-
stofni Blöndulóns um tíma.
Vegna stækkunar lónsins eru
líkur til að áffam verði aukið
magn næringarefna í Blöndu, en
dvíni svo eftir nokkur ár.
Blanda hefur komið injög
sterk út meðal veiðiáa nú síð-
ustu sumur, og síðasta sumar
var mesta ganga í ána frá upp-
hafi mælinga 1982. Teljarinn í
Ennisflúðum, sem metur einnig
stærð fisksins, taldi 3.302 laxa
og 1.646 bleikjur. Af umrædd-
um laxafjölda voru 2.452 smá-
laxar og 850 stórlaxar. Auk þess
er talið að jafnan fari einhver
ófykkt tala fiska upp Ennisflúð-
imar sjálfar, en við viss skilyrði
em þær fiskgengar.
Grænt fram-
boð í Nv
Þessa dagana vinna liðs-
menn vinstri hreyfingarinnar
að stofnun félaga um Grænt
ffamboð í öllum kjördæmum
landsins. A Noiðurlandi vestra
verður stofnfundur í Mið-
garði nk. þriðjudagskvöld,
26. janúar, kl. 20,30. Stein-
grímur J. Sigfússon alþingis-
maður mætir á fundinn.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Síinar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krönur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvíit & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.