Feykir - 07.04.1999, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 12/1999
Starfsemi Hólaskóla verður kynnt 17. apríl nk. jafnframt
því sem endurbótum á skólahúsinu verður fagnað.
Heim að Hólum í
endurgert skólahús
Heim að Hólum, er yfirskrift
opins dags í Hólaskóla laug-
ardaginn 17. apríl nk. Til-
gangurinn með deginum er
að kynna þá fjölbreyttu starf-
semi sem fram fer á Hólum
og einnig að fagna þeim
gagngeru endurbótum sem
staðið hafa ytir á skólahúsinu
frá árinu 1995 og er nú að
ljúka. Við endurbæturnar
öðlast skólahúsið sína fyrri
reisn, en elsti hluti hússins frá
árinu 1910 og var hannaður
af Rögnvaldi Ólafssyni.
Yngri hlutinn er hins vegar
frá árinu 1927 og var hugar-
smíð Guðjóns Samúelssonar.
Dagskráin þann 17. apríl
hefst með reiðsýningu og
keppni við reiðhöll skólans þar
sem nemendur sýna listir sínar
og klukkan 15 verður helgi-
stund í Hóladómkirkju. í skóla-
húsinu verður kynning á því
námi sem í boði er við Hóla-
skóla. Nemendur af ferðamála-
braut, fískeldisbraut og hrossa-
ræktarbraut ásamt nemendum á
framhaldsbraut hrossabrautar
Hólaskóla munu kynna þau
verkefni sem þau hafa fengist
við í vetur. Verður sú kynning í
íþróttahúsi skólans.
Námið eins og það er í dag
tekur eitt ár og lýkur með verk-
námi. Markmið náms við skól-
ann er að veita nemendum hag-
nýta fræðslu um ákveðnar
greinar atvinnulífsins, sem
byggja á náttúruauðlindum
landsins og umgjörð þeirra.
Fræðslan er miðuð við að nem-
endur verði hæfir til að annast
íjölþættan atvinnurekstur að
námi loknu, veita forustu í fé-
lagsmálum atvinnugreinanna
og axla eðlilega ábyrgð í þjóðfé-
laginu. I tengslum við námið er
unnið að ýmsum rannsóknum
m.a. í fiskeldi og hrossarækt. A-
ætlað er að dagskránni ljúki kl.
17. Kaffiveitingar verða í boði
skólans og eru allir velunnarar
Hólaskóla hjartanlega velkomn-
ir heim að Hólum þennan dag,
segir í tilkynningu frá Hóla-
skóla.
„Árangur fyrir alla” er yfir-
skrift greinar sem oddviti sjáf-
stæðismanna á Norðurlandi
vestra skrifar í Norðanfara, en
flokkurinn hefur verið leiðandi
í ríkisstjóm s.l. 8 ár. Allir sem
búið hafa í kjördæminu, eða þá
hafa eitthvað fylgst með
byggðamálum, vita að árang-
urinn er í raun harla lítill á
Norðurlandi vestra, svo ekki sé
kveðið sterkar að orði. í tölum
frá Byggðastofnun má lesa að
fólki hefur fækkað um 771 í
kjördæminu sl. 8 árum og að
laun em töluvert lægri en að
meðaltali í landinu. I raun er
svo komið að leggja á kjör-
dæmið niður og sameina það
ýmist til austurs eða vesturs.
Ríkisstjómin er nú loks að
ranka við sér skömmu fyrir
kosningar og þykist ætla að
gera eitthvað með nýrri
Þann 27. febrúar sl. fór úr-
slitakeppni stærðfræðikeppni
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki fram í
annað sinn. Keppnin er fyrir
nemendur í 9. bekk grunnskól-
anna á Norðurlandi vestra og er
styrkt af sveitarfélögum, stofn-
unum og fyrirtækjum. Alls
tóku 113 þátt í forkeppninni en
15 þeirra sem best stóðu sig var
boðið til úrslitakeppni sem
fram fór í Bóknámshúsi FNV á
Sauðárkróki.
Þeir 15 nemendur sem tóku
þátt í úrslitakeppninni fengu 2
klst til að leysa stærðfræði-
þrautimar, en á meðan var opið
hús með vörukynningum og
skemmtiatriðum ásamt kaffi og
meðlæti. Sigurvegari keppn-
innar í ár varð Kolbeinn Helgi
Gíslason, nemandi í Gmnn-
skólanum á Sauðárkróki. I
öðm sæti varð Bára Dröfn
Kristinsdóttir, Laugarbakka-
skóla og í þriðja sæti varð
Bjarki Þ. Sigurbjartsson,
Grunnskólanum á Blönduósi.
Öll hlutu þau í verðlaun hluta-
bréf frá Landsbanka Islands og
Landsbréfum, orðabók frá Máli
og menningu, reiknivél frá
Heimilistækjum auk peninga-
verðlauna frá öðmm styrktarað-
ilum. Auk jress hlaut Kolbeinn
Helgi Gíslason flugmiða frá Is-
landsllugi og eignar- og farand-
byggðaáætlun. Er það trúverð-
ugt í Ijósi þess sem undan er
gengið? Varla, og í raun em
ýmsai' tillögumar brjóstum-
kennanlegar s.s. eins og umtöl-
uð menningarhús, en að öllum
líkindum gæti rekstur þeirra
orðið þungur baggi á sveitarfé-
lögum.
Hvað er til ráða? Jú, að
kjósa aðra flokka en þá sem
hafa látið verkin tala í síðustu
ríkisstjóm. Frjálslyndi flokkur-
inn mun beita sér fyrir margvís-
legum aðgerðum s.s að fella
niður þungaskatt sem er beinn
skattur á landsbyggðina. Skatt-
inum var í breytt í ríkisstjómar-
tíð Sjálfstæðisflokksins þannig
að hann leggst harðast á lítil
flutningsfyrirtæki og bændur.
Þungaskatturinn er einn þáttur-
inn sem viðheldur háu vöm-
„Árangur fyrir alla”
Skemmtileg keppni í stærð-
fræðikeppni Fjölbrautaskólans
verði og verri samkeppnis-
stöðu íyrirtækja á landsbyggð-
inni. Frjálslyndiflokkurinn
mun eins og alþjóð veit breyta
kvótakerfinu, en núverandi
kerfi stuðlar að óöryggi íbúa
dreifbýlisins og framtíð bæja
og þorpa, þar sem að fólk get-
ur vaknað einn góðan veðurdag
við að búið sé að selja kvótann
í burtu úr byggðalaginu.
Frjálslyndiflokkurinn mun
beita sér fyrir því að efla og
styrkja þær stofnanir sem fyrir
em í kjördæminu og má þar
nefha iðnbraut Fjölbrautarskóla
Norðurlands vestra og heil-
brigðisstofnanir.
Það er fáránlegt að þing-
menn séu að skipta vegafé og
rétta út jarðgöng og menningar-
hús, eins og friðþægingarpill-
um skömmu íyrir kosningar.
Þessi vinnubrögð núverandi
stjómarflokka koma óorði á
fólk á landsbyggðinni, þar sem
látið er líta út fyrir að það sé
verið að færa byggðalögunum
sérstakar ölmusur og jafnvel
sérstakar gjafir umfram aðra.
Að sjálfsögðu á að gera jarð-
göng og leggja góða vegi, en
þetta em framkvæmdir sem
skipuleggja á til margra .ára
með mun vandaðri hætú en nú
er gert.
Sigurjón Þórðarson.
Sigurvegarar í Stærðfræðikeppni FNV 1999: Bára Dröfn
Kristinsdóttir, Laugarbakkaskóla sem varð í 2. sæti, Kolbeinn
Helgi Gíslason, Grunnskólanum á Sauðárkróki sem sigraði og
Bjarki Þ. Sigurbjartsson, Grunnskólanum á Blönduósi er
hafnaði í 3. sæti.
bikar frá KLM-verðlaunagrip-
um á Siglufirði.
Aðrir keppendur í úrslita-
keppninni fengu einnig verð-
laun: Bækur og reiknivélar auk
kr. 5.000-.
Ársæll Guðmundsson, að-
stoðarskólameistari, vill koma á
framfæri innilegu þakklæti til
hinna fjölmörgu styrktaraöila
keppninnar en keppnin er í raun
samstarfsverkefni Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki, gmnnskólanna á
Norðurlandi vestra og atvinnu-
lífsins á svæðinu. Styrktaraðil-
um var boðið að koma og
kynna vöm sína og þjónunustu
í hátíðasal Bóknámshúsi FNV
meðan á úrslitakeppninni stóð
þar sem stúdentsefni FNV sáu
um kaffiveitingar.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10. Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsúni 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson. Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.