Feykir


Feykir - 20.10.1999, Side 5

Feykir - 20.10.1999, Side 5
35/1999 FEYKIR 5 Drangeyj arj arlinn fær jarlsorðuna Við vígslu Jarsstofunnar í Tindastóli Hann var stórskemmtilegur endapunkturinn hjá ráðstefnu- gestum ájarðhitaráðstefhunni á Sauðárkróki sl. föstudag. En það var móttaka sem eigendur Hótels Tindastóls stóðu fyrir, Pétur Einarsson og Svanfnður fngvadóttir, en á næstunni veið- ur opnað stórglæsilegt gistihús í Hótel Tindastóli. Tilefnið að þessu sinni var opnun Jarlsstofu, sem Pétur hefur skýrt eftir frænda sínum Jóni Eiríkssyni á Fagranesi, en Jón hefur verið frænda sínum innan handar með ýmsa hluti, núna síðast útvegaði hann hon- um rekavið í endumýjun mátt- arviða Tindastólshússins. Jarlsstofa er glæsilegt mann- virki í kjallara Tindastóls, veggir hlaðnir úr sjávargijóti og þar verður komið fyrir ýmsum munum sem tengjast Drangey og jarlinum, m.a. afhenti Jón Draneyjaijarl Pétri frænda sín- um, útbúnað til eggjatöku í Drangey, sem hann hefur notað í áratugi, en mun brátt prýða einn vegg Jarlsstofunnar. En það voru fyrst og fremst skemmtilegar og hástemmdar ræður sem einkenndu þessa kvöldstund í hálfrökkri kerta- ljóssins í Jarlsstofu. Ekki var það minni maður en Guðni Á- gústsson landbúnaðarráðherra sem sté fyrstur á stokk, flutti Drangeyju drápu, og minntist síðan kynna sinna við Pétur Einarsson frá því þeir voru myndarlegir ungir stuttbuxna- drengir í Framsóknarflokkn- um. „Okkur líkaði hreint ekki þegar þú gerðist verkamaður á víngarði íhaldsins, en ég erekki frá þvf að betra hafi verið að vinna með flokknum síðan”, sagði Guðni og gerðist há- spenntur í máli sínu, fór gjam- an upp á tábergið því til stað- festingar. Að endingu sæmdi síðan Guðni Jóni Eiríkssyni Drangeyjarjarli, jarlsorðunni, og kvað Jón þetta vera hæsta gráða sem honum hafi hlotnast Guðni Ágústsson sæmir Drangeyjarjarlinn jarlsorðunni, orðunni frá fólkinu í landinu, en hvorki ríkisstjórninni né forsetanum, eins og Guðni orðaði það. Pípulagnir Nýlagnir Breytingar Viðgeðir Hreiðar Ásmundsson pípulagningarmeistari Sími 453 7002 og 893 2066 Við vígslu jarlsstofunnar, frá vinstri talið: Pétur Einarsson, Svanfríður Ingvadóttir, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Jón Eiríksson Drangeyjarjarl. í Iífinu, en Jón hélt snjalla ræðu um hlotnast orða. Að endingu mundsson þegar hann var í al- og kom þar víða við og var það Hjálmar Ámason al- gleymingi í þingstörfum, saga skemmtilega. Pétur hélt vita- þingismaður sem sagði sögu, en sem margir Skagfirðingar kann- skuld einnig ræðu og sagði m.a. þar kom m.a. við sögu fyrir- ast við, og Hjálmar fór mjög að nú hefðu þeim frændum báð- greiðslupólitíkusinn Stefán Guð- skemmtilega með. Sigluíj arðarvegurinn vígður Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhjúpa skjöldinn sem táknar formlega vígslu vegarins. Stuðlabergsdrangurinn var sóttur í Staðarbjargavík við Hofsós. Mynd/ÖÞ. Sl. föstudag fór fram tákn- ræn athöfn á áningarstað í Höfðahólum norðan Hofsós í tilefni þess að nýlega var lokið við að setja bundið slitlag á Siglufjarðarveg. Af því tilefni afhjúpaði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skjöld á þessum áningarstað við Siglu- f]íirð:irveg að viðstöddum all- mörgum gestum, og að athöfn- inni lokinni var efnt úl móttöku á Siglufirði þar sem þessum tímamótum var fagnað. Saga Siglufjarðarvegar spannar nokkra áratugi þessar- ar aldar en árið 1946 var lokið vegalagningu um Siglufjarðar- skarð og þar með orðið akfært ú 1 og ffá Siglufirði. Þó mikil sam- göngubót væri af þessum vegi, kom fljóúega í Ijós að vegasam- band þetta var ófullkomið, þar sem vegurinn var oftast ekki opinn nema fjóra til sex mánuði á ári. Því var ráðist í jarð- gangnagerð í gegnum Strákafjall og hófst sú vinna sfðla sumars 1965 og lauk verkinu í nóvember 1967. Um 1980 verðasvo ákveðin tímamót í sögu vegafram- kvæmda á íslandi, en þá hófst slitlagsbyltingin svokallaða og 1983 var fyrsti kaflinn á Siglu- fjarðarvegi lagður bundnu slit- lagi, nánar tiltekið 2,3 km lang- ur kafli frá Strákagöngum að Siglufirði. Allar götur síðan og til þessa árs hefur markvisst verið unnið að endurbyggingu vegarins til nútímahorfs. Kostnaður við endurbyggingu SigluQarðarvegar ffá árinu 1983 til dagsins í dag nemur rétt rúmum einum milljarði króna á verðlagi ársins 1999, en þar með talinn er m.a. kostnað- ur við endumýjun Stráka- gangna á árunum 1991 -’92. Þá var m.a. byggður forskáli Siglufjarðæmegin, 28 metra langur. Eggjabikarinn körfubolti Tindastóll - KFÍ sunnudagskvölci kl. 20 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.