Feykir - 20.10.1999, Síða 6
6 FEYKIR 35/1999
Hagyrðingaþáttur 282
Heilir og sælir lesendur góðir.
Eins og þið hafið eflaust tekið eftir
eru sumar af vísum síðasta þáttar illa til
reika eftir för sína í gegnum prentverk-
ið. Er þar fyrst að telja vísu Rúnars
Kristjánssonar um Drangeyjaijarlinn
og á fyrri hluti hennar auðvitað að vera
þannig.
Drangeyjarjarlinn er duglegur maður
Drangeyjarjarlinn er baráttu glaður.
Tvær aðrar vísur eru illa laskaðar og
er undirritaður svo fúll yfir þeirri með-
ferð að ekki skal reynt að lagfæra það
hér, heldur treyst á að þið getið ráðið íþað
rétta.
Skal nú vikið örlítið að göngum á Ey-
vindarstaðaheiði sl. haust. Fyrstu nótt
sem gist var við Ströngukvísl áttu und-
anreiðarmenn þar ljómandi skemmti-
legt kvöld. Eftirfarandi vísa er tileinkuð
því kvöldi.
Látum vinir glaðan gjalla
gangna söng á ný.
Öræfanna vœttir valla
villast fyrir því.
Enn og aftur verða fagnaðarfundir
með gangnamönnum og er næsta vísa
tileinkuð góðum félaga úr þeim hópi.
Kveður sæll áfirða fundum
ferskeytlurmar mál.
Gísli Ama gefur stundum
gleðimönnum skál.
Að morgni dags á einn gangnamað-
urinn við veikindi að stríða og verðurað
una því slæma hlutskipú að hafast lítt að
þann dag. Að kvöldi er útlit mikið
skárra og verður bjartara yfir hópnum
þegar þessi ágæti félagi fæst til að
þiggja snafs úl staðfestingar á batnandi
heilsu.
Upp á heiði brattar brekkur
bœndum villa sýn.
Undir kvöld þó Didda drekkur
dagsins glæsta vín.
Eftir að gangnadegi lýkur sunnan
Ströngukvíslar tekur við frárekstur út að
Þúfnavatnslæk. Að þeim áfanga náðum
og halda skal á náttstað við Ströngukvísl
grípur gangnastjórinn ofan í jakkavasa
sinn og tekur upp fleyg. Lyftir honum í
augna hæð og segir síðan með mestu
hægð: „Það er búið úr þessu helvíú”. Fer
síðan í næsta vasa á sinni hlýlegu kápu,
grípur þar upp fullan fleyg og segirmeð
mestu hægð: „Það er til lítils að reiða
þetta með sér í allan dag ef þið viljið
ekki þiggja hressingu.” Engum af frá-
rekstrarmönnum datt í hug að neita
þessum ágætu veitingum og meðan
stóri sopinn er ég tók úr þessum fallega
fleyg yljaði hjartanu varð eftirfarandi
vísa til.
Gaman er við glas að eiga
og gleyma að komi haust.
Meðan Gíslifinnurfleyga
fyrirhafnarlaust.
Á næsta gangnadegi er harðneskju-
legt og erfitt að strekkja á móti hvassri
norðan átt með slidduhríð, austur á
hraunum. Indælt er að komast smá-
stund inn í skála gangnamanna í Bug-
um og má sem best láta hugann reika
til gleðistunda þar.
Brestur ekki í Bugakofa
bændum kunnugt lag.
Flestirfara seint að sofa
og syngja fram á dag.
Fer nú í hönd síðasta kvöldið sem
menn eiga á ijöllum að þessu sinni. Er
það að þessu sinni rólegt og notalegt
kvöld, þar sem flestir gangnamenn
koma saman í matsal Galtarárskála og
drekka brennivínstár út í kaffið sitt áður
en þeir fara að sofa. Aðöðmm ólöstuð-
um ber einn af yngri mönnunum nokk-
uð af með alla ffamgöngu og má skrýt-
ið vera ef meyjamar eru ekki famar að
hugsa hlýlega til hans.
Öngvan tíma meiga missa
mörg þó rætist von,
þessar sem að þrá að kyssa
Þórarinn Eymundsson.
Að morgni síðasta gangnadags er
kaldranalegt um að litast, nær alhvítt.
Eins og fallegu grænu jurtimar séu í
vafa um hvort komandi dagar muni
bjóða þeim upp á líf eða dauða. Nokkr-
ir gangnamanna byija dagsverkið á því
að ríða fram með Galtará og snúa við
þeim kindum sem mnnið höfðu til baka
með birtingunni. Em þær fijálsar í fasi
með fallegu lömbin sírí sem kaldhæðni
örlaga hefur flestum búið það hlutskipti
að nálgast dauðann með hverju skrefi
sem stigið er í átt til byggða. Vegna
þessara hugrenninga fæst efni í næstu
vísu.
Lengi granda lífi má
og lifa í anda hagsins.
Bliknuð standa blómin smá
bíða vanda dagsins.
Eftir baráttu við vont veður er loks
þei m áfanga náð að komast niður brekk-
una hjá Fossum. Langan tíma tekur
fyrir féð að renna inn í hólfið í Lækjar-
hlíðinni og virðist köld norðanáttin færa
kvöldskuggana hratt nær. Einn af
gangnamönnum, Guðmundur Sveins-
son frá Sauðárkróki, fylgir fremstu
kindunum niður með Fossá og er þar í
fyrirstöðu meðan féð rennur inn í hólfíð.
Eftir að undirritaður hefur í tvígang séð
þennan ágæta félaga fara ofan í ána til
að fá sér að drekka, er tilvalið að úleinka
honum næstu vísu.
Nóttin þó að nálgist rekka
og næði á balanum.
Hefur najhi nóg að drekka
í norðan svalanum.
Þar með má segja að göngum sé lok-
ið að þessu sinni. Á morgun er réttar-
dagurinn sem nálgast óðfluga með allri
sinni tilhlökkun ungra sem aldna. Er þá
mál að koma frá sér lokavísunni sem ég
tileinka okkar góða hjálparmanni og
trússbflstjóra Hafsteini Lúðvíkssyni.
Ríkirgleði á réttardaginn
og rósir spretta um veg.
Þá sælir munum syngja braginn
saman þú og ég.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Ritstjóri Feykis biðst velvirðingar á
því að ruglingur hefur komist á núm-
eraröð þáttarins. Árvökull lesandi benti
á að það hafi gerst frá og með 23. tölu-
blaði blaðsins, og eftir að það hafi verö
skoðað mun rétt vera að þetta sé 282.
hagyiðingaþátturinn.
Skrikkjótt gengi Tindastóls-
liðsins í Epson-deildinni
Tindastólsmenn unnu yfir-
burðasigur á Snæfelli á Sauðár-
króki sl. sunnudagskvöld.
Stólamir töpuðu hins vegar íyrir
Hamri í Hveragerði íyrir
helgina, 93-98.Tindastóll er nú
um miðja deild með fjögur súg
eftir jafnmarga leiki.
I byrjun leiksins gegn
Snæfelli virtist hins vegar sem
um jafhan leik yrði að ræða og
gestimir fóm mun betur af stað,
slógu heimamenn út af laginu
með svæðisvöm og það var ekki
fyrr en þrettán mínútur vom
liðnar af leiktímanum sem
Tindastólsmenn komust yfir í
leiknum. Þeir vom þó komnir
með góða fomstu þegar liðin
gengu til leikshlés. I seinni hálf-
leiknum jókst síðan munurinn
jafnt og þétt og heimamenn fóm
á kostum meðan fátt gekk upp
hjá gestunum.
Bandaríkjamaðurinn Shawn
Mayers byijaði vel fyrir Stólana.
Hann skoraði grimmt og hiiti 18
fráköst í leiknum, auk þess að
veija nokkur skot í teignum. Þá
lét Valur Ingimundarson mjög
að sér kveða í leiknum, sem og
hinn ungi og efnilegi Svavar
Birgsson. Annars lék Tinda-
stólsliðið í heild vel, ef undan er
skilinn fyrsú ljórðungur leiksins.
Bandaríkjamaðurinn Kim
Lewis var lengbestur hjá Snæ-
fellingum. Jón Þór Eyþórsson
var einnig drjúgur. Gangur
leiksins: 0:5, 2:9, 8:9, 8:17,
15:19, 23:23, 28:26, (40:27)
50:34, 63:38, 73:43, 77:54,
84:54,91:59, (100:63)
Stig Tindastóls: Shawn
Mayes 24, Valur Ingimundarson
16, Svavar Birgisson 14, Láms
Dagur Pálsson 11, Krisúnn Frö-
riksson 10, Sune Hendriksen 9,
Isak Einarsson 5, Friðrik Hreins-
son 4, Sverrir Þór Sverrisson 4
og Fleming Stie 3. Stigahæstur
hjá Snæfelli var Kim Lewis
með 27 súg.
Okeypis smáar
Til sölu!
Til sölu WV Golf 5 dyra, 5
gíra. Vetrardekk fylgja. Upplýs-
ingar í síma 453 5303 e. kl. 18.
Til sölu Nissan Terrano II 2,7
TDI árgeið ‘98, ekinn 40.000
km, fyrst skráður í maí ‘98.
Bfllinn er hlaðinn aukahlutum
m.a leðurinnrétúngu, CD þjófa-
vöm, fjarstýiðri samlæsingu, er
á 31’ dekkjum, álfelgum.
Nánari upplýsingar á bifreiða-
verkstæðinu Áka í síma 453
5141 (Jóhann).
Til sölu Toyota Tercel árg.
‘83, nýskoðaður, bæði sumar- og
vetrardekk fylgja. Upplýsingar í
síma 461 4651.
Til sölu Toyota Corolla GTI
1600, árg. ‘88, ekinn 183.000
km, svartur, topplúga og ál-
felgur. Líturvelút. Upplýsingar
ísíma891 9186.
Til sölu útvarp og plötu-
spilari, sambyggt í löngum
skáp. Er gamall en í góðu lagi.
Selst ódýrt. Upplýsingar í síma
453 5292.
Nokkrir hænuungar til sölu,
íslenski stofninn. Upplýsingar í
síma 453 8054.
Vill einhver losnað við tví-
breiðan svefnsófa. Hringið þá í
síma 453 5830, helst á kvöldin.
Félagsvist!
Félag eldri boigara á Hofsósi
byijar sína vinsælu félagsvist
fimmtudaginn 28. október. Síðan
11. nóv. og 25. nóv. íHöfðaboig
kl. 21. Veiúngar.Mæúðmeðgóða
skapið.
Nefhdin.
Stelpumar stóðu sig vel
Tindastólsstelpumar stóðu sig vel, þrátt fyrir tap gegn KR í
fyrstu heimaleikjum liðsins um helgina. Sérstalega var
frammistaðan góð í fyrri leiknum, en lokatölur þar urðu 78:58
fyrir KR. Seinni leikinn sigraði síðan KR 70:41, en þar var
baráttan ekki jafngóð hjá Tindastóli og í fyrri leiknum.
Bandaríski leikmaðurinn Jill Wilson var langaúcvæðamest í
Tindastólsliðinu sem er ungt að ámm.
Vöruflutningar
Sauðárkrókur - Skagaíjörður
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2 r
Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.