Feykir - 20.03.2002, Page 5
10/2002 FEYKIR 5
Að hleypa fiðrinu úr koddanum
í síðasta tölublaði Feykis
hélt Gísli Gunnarsson því fram
að rekstur sveitarfélagsins heíði
hækkað upp í 96% á síðari
hluta ársins 2001. Vegna þess-
ara orða er nauðsynlegt að
koma eftirfarandi á framfæri.
Sú tala sem Gísli Gunnars-
son vísar til skýrist að mestu
leyti af tvennu. Annars vegar af
því að í ársreikningum 2001 eru
reiknaðar lífeyrisskuldbinding-
ar hækkaðar og hins vegar var
ákveðið að greiða út orlof á
fasta yfirvinnu til starfsmanna
sveitarfélagsins. Um þessa
greiðslu hafði lengi nokkur á-
greiningur verið, ekki bara í
þessu sveitarfélagi, heldur
mörgum fleiri og höfðu nokkrir
dómar fallið á þann veg að aug-
ljóst var að orlof þetta yrði að
greiða. Þetta er mál sem á sér
all langan aðdraganda hér hjá
okkur og má segja að þetta orlof
hefði átt að greiðast strax og
fyrsti dómurinn féll, eða í upp-
hafi þessa kjörtímabils. Hér er
þess vegna á ferðinni annars
vegar reiknuð útgjöld (ekki
greidd) og hins vegar útgjöld
sem í nokkur ár hefúr legið fyr-
ir að þyrfti að greiða. Það er
þess vegna með öllu óskiljan-
legt og ákaflega ósanngjarnt að
halda því ffarn að hinn hefð-
bundni rekstrarkostnaður hafi
hækkað.
En það er svo, að þegar fiðr-
inu hefúr einu sinni verið hleypt
úr koddanum og út í vindinn, þá
er ákaflega erfitt að ná því sam-
an aftur. I þessari myndlíkingu
felst kannski tilgangur Gísla
Gunnarssonar; að hleypa
nokkrum dylgjum af stað, gefa
eitthvað í skyn án nokkurra rök-
semda, eða útskýringa. Og til-
ganginum náð og hann helgar
meðalið!!
Hvað vilja sjálfstæðismenn?
Grein Gísla ber fyrst og
fremst merki um átakanlega
málefnafátæka og hugmynda-
snauða sjálfstæðismenn í sveit-
arstjórn Skagafjarðar. Pólitík
þeirra á undangengnum mán-
uðum hefúr einkennst af niður-
rifi og neikvæðni. Engar tillög-
ur um eitt né neitt, engin sýn
engin málefnaleg rök. Síðasta
og kannski átakanlegasta dæm-
ið er þegar þeir greiddu atkvæði
gegn sölu hlutabréfa sveitarfé-
lagsins í Steinullarverksmiðj-
unni og báru við að verðið væri
of lágt. Nokkrum vikum áður
hafði Gísli verið ásáttur með að
fá 185 milljónir fyrir okkar hlut
og þegar samningurinn var í
burðarliðnum, fyrir um þremur
vikum síðan, hafði sveitarstjóri
samband við hann og bar niður-
stöðuna undir hann. Þau svör
sem hann gaf þá, voru allt önn-
ur en hann gaf á sveitarstjómar-
fúndinum s.l. þriðjudag.
Vert er að vekja athygli íbúa
á því að með samningi um sölu
hlutabréfa i Steinullarverk-
smiðjunni vinnst þrennt:
1. Söluhagnaður sveitarfé-
lagsins verður notaður til að
greiða niður skuldir og þannig
sparast talsvert fjármagn vegna
vaxtagreiðslna.
2. Kaupendumir, Byko,
Húsasmiðjan og Kaupfélag
Skagfirðinga, munu stofna fé-
lag um verksmiðjuna, þar sem
starfsmönnum verður gefinn
kostur á að kaupa 15% hlut i
verksmiðjunni. Þannig eykst
hlutur heimamanna úr tæplega
25% í u.þ.b. 40%. Þá er í samn-
ingnum yfirlýsing um að verk-
sntiðjan verði áfram rekin á
Sauðárkróki.
3. Ríkisstjórn íslands hefúr
ákveðið að helmingur af and-
virði ríkishlutans í verksmiðj-
unni, eða u.þ.b. 116 milljónir,
verði notaðar til atvinnuupp-
byggingar hér heima.
Þessu hafúa sjálfstæðismenn.
Það má vel vera að dylgjur,
niðurrif og neikvæðni skili
sjálfstæðismönnum einhverju
um stund, en málflutningur
þeirra og vinnubrögð á síðustu
mánuðum getur hvorki orðið
þeim sem einstaklingum, né í-
búum sveitarfélagsins ávinn-
ingur þegar til lengdar lætur.
Ég vil að síðustu hvetja íbúa
sveitarfélagsins til að kynna sér
ársreikninga fyrir árið 2001
sem og fjárhagsáætlun þessa
árs, af eigin raun og hlusta frek-
ar eftir þeim sérffæðingum sem
um okkar mál fjalla, t.d. endur-
skoðanda sveitarfélagsins, held-
ur en leggja eyrun við hræðslu-
áróðri sjálfstæðismanna.
Herdís Sæmundardóttir.
Tónlistarveisla á
Akureyri á skírdag
Fimmtudaginn 28. mars,
skírdag, verður haldin vegleg
tónaveisla í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri. Þar stíga á svið um 140
listamenn; Sinfoniuhljómsveit
Norðurlands, Karlakórinn Heim-
ir, Diddú - Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Oskar Pétursson, Álfta-
gerðisbræður og Bama- og ung-
lingakór Akureyrarkirkju.
Á efnisskrá tónleikanna
verða íslensk og erlend verk. í
fyrri hlutanum er Finnlandia fyr-
irferðarmest, stórbrotið listaverk
eftir Jean Sibelius, þar sem
hljómsveitin og Karlakórinn
Heimir þurfa að taka á honum
stóra sínum. Einnig syngur kór-
inn þijú ljóða Davíðs Stefáns-
sonar við lög eftir Pál ísólfsson,
Sigvalda Kaldalóns og Atla
Heimi Sveinsson, Oskar syngur
Ökuljóðin, sem Skagfirðingur-
inn Stefán íslandi gerði fræg á
sínum tíma. Diddú syngur Iæ
Bacio, einskonarkossavísur, eft-
ir Arditi og Mein Herr Markie úr
Kátu ekkjunni, en fyrri hlutan-
um lýkur með Coryngrato, sem
er sígilt tenóralag vítt um heim,
líkt og Hamraborgin á íslandi.
Að þessu sinni verða það fjórir
tenórar, sem klífa Hamraborg-
ina, sem sé Álftagerðisbræður í
öllu sínu veldi.
Síðari hluti tónleikanna er að
mestu helgaður Giuseppe Verdi.
Fluttir verða forleikir, aríur,
dúettar og kórverk úr þekktustu
óperum hans, en einnig verða
flutt verk eftir Donizetti og Man-
söngurinn eftir Sigmund
Romberg, sem Óskar hefúr oft
sungið við mikinn fögnuð.
Aðsgöngumiðar í forsölu em
seldir m.a. í Bókabúð Brynjars á
Sauðárkróki.
Frinsessan á Landsmót
Anna Bretaprinsessa hefur
sýnt mikinn áhuga að heim-
sækja Landsmót hestamanna
2002 sem haldið verður á Vind-
heimamelum í Skagafirði dag-
ana 2.-7. júlí í sumar. DV
greindi ffá þessu í gær og sam-
kvæmd heimildum blaðsins
mun Forsetaembættið hafa
milligöngu um heimsóknina ef
af henni verður. Er beðið stað-
festingar heimsóknarinnar frá
Buckinghamhöll, en búist er
við að málið skýrist endanlega
nú í vikunni. Ef prinsessan
kemur á landsmótið er fyrir-
hugað að hún verði þar a.m.k.
tvo daga. Hún mun þá m.a.
taka þátt í hópreið hestamanna-
félaga sem fram fer við setn-
ingu mótsins. Væntanlega
verður tekið á leigu húsnæði í
Skagafirði sem hún getur dval-
ið í meðan á heimsókninni
stendur. Ljóst er að mikill skari
fjölmiðlafólks mun fylgja
henni hingað til lands, ef hún
kemur, og að mikla undirbún-
ingsvinnu þarf að inna af hendi,
segir DV í gær.
Þú tryggir skilvísi og
sparar tíma, fé og fyrirhöfn
íbúum Sveitarfélagsins Skagafjarðar stendur til boða að greiða
eftirtalin gjöld til sveitarfélagsins með boðgreiðslum VISA:
■ Dagvist aldraðra ■ íþróttahús
■ Fasteignagjöld ■ Leikskólagjöld
■ Heimilishjálp ■ Mötuneyti skóla
■ Hundaleyfi ■ Skólavistun
■ Húsaleigu ■ Tónlistarskólagjöld
Boðgreiðslur eru einfaldur greiðslumáti þar sem föst útgjöld skuldfærast mánaðar-
lega með sjálfvirkum hætti á VISA-greiðslukort.
Til að setja föst útgjöld f boðgreiðslur eða fá nánari upplýsingar þarf að hafa
samband við skrifstofu Sveitarfélagsins Skagafjarðar í síma 455 3000.
Ferðapunktar:
Korthafar sem eru með Vildarkort VISA og Flugleiða fá
Ferðapunkta af boðgreiðsluviðskiptum eins og af allri
innlendri notkun kortsins. Punktana er hægt að nota til
kaupa á flugfarseðlum út í heim.
~ ^ Skiptikjör:
22» Einungis Vildarkortin gefa Ferðapunkta. Sérstök skiptikjör
eru í boði fyrir þá sem vilja skipta yfir f Vildarkort. Til þess
skal hafa samband við banka eða sparisjóð.