Feykir


Feykir - 17.04.2002, Blaðsíða 3

Feykir - 17.04.2002, Blaðsíða 3
13/2002 FEYKIR 3 Seylhreppingar sterkir Útlit er fyrir að gamli Seylu- hreppur verði mjög sterkur í nýrri sveitarstjóm Skagafjarðar sem kosin verður 25. maí nk. í- búar Seyluhrepps og þeir sem slitið hafa þar bamskónum em áberandi í efstu sætum þeirra þriggja lista sem birtir hafa ver- ið. Þannig er með þijá af fjór- um í efstu sætunum hjá ffam- sóknarmönnum, fyrsta og fjórða mann hjá Sjálfstæðis- flokknum og annan mann hjá Skagafj arðarl i stan um. Það em því möguleiki á því að Seyl- hreppingar verði í meirihluta í næstu hreppsnefnd, en íbúa- samtökin þar hafa einmitt látið talsvert til sín taka á þessu kjör- tímabili og eyja því væntanlega betri tíma í að koma sínum málum fram, Helgi Gunnars- son og hans lið. Greinilegt er á uppröðin á listana að tilfinningasemi gagnvart sameiningunni er að fjara út. Fyrir síðustu sveitar- stjómarkosningar í Skagafirði, sem vom þær fyrstu eftir sam- einingu, var vandað til að gæta jafnræðis milli svæða við upp- röðunina, en það er lítt áber- andi nú. Ársæll efstur hjá VG? Framboðslistinn hjá Vinstri hreyfinginnni - grænu fram- boði í Skagafirði er nánast tilbúinn. Lengst af var búist við að Bjarni Jónsson þing- mannssonur á Hólum myndi leiða listann, en nú upp á síðkastið hefur óvænt birst annað nafn sem talið er lík- legt á toppnum hjá VG. Nafn Ársæls Guðmundssonar að- stoðarskólameistara hefur þráfaldlega verið nefnt í fyrsta sætið hjá Vinsri - grænum. Hreinn Sig. enn að Þær fréttir berast nú frá Hvammstanga að þekktur at- hafnamaður úr Skagafirði hafi uppi áform um atvinnuupp- byggingu á staðnum. Það er Hreinn Sigurðsson sem mun vera að leita hófanna með kaup á mjólkurstöðinni og er sagður ætla að setja þar á fót niðursuðuiðnað, sjóða niður bæði hrossakjöt og rækju. Hreinn lætur ekki deigan síga, en ekki er langt siðan hann hafði á pijónum að sjóða niður loðnu á Króknum og fyr- ir um ári var hann næstum bú- inn að kaupa húsnæði skólans á Reykjanesi við ísafjarðar- djúp. Enn sem komið er hefúr sveitarstjóm Húnaþings vestra ekki komið að málum varð- andi atvinnusköpun í mjólkur- stöðinni, en menn þar fylgjast spenntir með því hvemig á- formum Hreins Sigurðssonar reiðir af. Lions gefiir skíða- deildinni tímabúnað Nú er ekkert því til fyrir- stöðu að skíðamenn í skíðadeild Tindastóls geti blásið til móts og náð nákvæmum tímum á keppendum, eftir að lionsmenn í Lionsklúbb Sauðárkróks vom svo vinsamlegir að gefa skíða- deildinni fúllkominn tímatöku- búnað. Búnaðurinn var afhent- ur á fúndi klúbbsins sl. föstu- dagskvöld, en hann er að verð- mæti 420 þúsund krónur. Það var Sveinn Sverrisson formaður LS sem afhenti gjöf- ina, en þess má geta að sjálfúr er Sveinn góður skíðamaður. Sveinn gat þess að þegar það kom til tals að safna peningum fyrir þessum búnaði, þá hefði komið í ljós að margir félagar í klúbbnum hefðu tengsl inn á skíðasvæðið vegna vinnu sinn- ar á gamla skíðasvæðinu, í ár- dögum skíðaíþróttarinnar á Sauðárkróki. Viggó Jónsson veitti tíma- tökutækinu viðtöku og færði lionsmönnum góðar þakkir, auk þess sem hann gat um þau á- form sem uppi eru um ffekari uppbyggingu á skíðasvæðinu. Viggó vék einnig orðum sínum að gestum frá Blönduósi og úr Húnavatnssýslu sem voru á fúndinum og sagði að með til- komu Þverárfjallsvegarins yrðu þeir væntanlega tíðir gestir á skíðasvæðinu og mundu njóta þeirrar lífsfyllingar sem þar er að finna. Viggó sagði einnig smásög- ur úr Saráttunni, m.a. því þegar Viggó Jónsson stai fsmaður skíðasvæðis Tindastóls tekur við tímatökubúnaðinum úr hendi Sveins Sverrissonar for- manns Lionsklúbbs Sauöárkróks. Einar Gíslason og einhver félagi með honum voru búnir að moka stanslaust í eina fjórar tíma til að koma lyftunni upp úr snjónum, þá gekk gamli mótor- inn í sirka 40 mínútur og eftir það fór hann ekki meira í gang þann veturinn. Yfirleitt var það nú samt þannig að það vantaði snjó á gamla svæðið, frekar en það þyrfti að moka lyftuna upp, en þarna var það semt sagt í eyrað en ekki öklann. Vísnakeppni Safnahússins í Sæluviku Eins og undanfarin ár hefúr Safnashús Skagfirðinga ákveðið að standa fyrir vísnakeppni í upphafi Sæluviku. Undanfarin ár hefúr þátttaka í þeim leik ver- ið með ágætum og margar ágæt- ar vísur orðið til. Tilgangur með keppninni hefúr fyrst og fremst verið sá að auka áhuga á þeirri góðu list að setja saman vísu. Vísnakeppnin verður nú, með sama sniði og fyrr. Gefnir eru þrír fyrripartar að botna og auk þess þeðið um eina vísu um til- tekið efni. Fyrripartarnir eru eftirfar- andi: Lifnar jörð um laut og börð linnir þörðum vetri. Heimir blíðan söngva seið syngur þýðum rómi. Blessað vorið brátt á ný boðar komu sína. Að auki skulu hagyrðingar glíma við gerð einnar vísu um Tindastól. Að sjálfsögðu má taka þátt í keppninni þótt ekki séu botnaðir allir fyrripartarnir eða einungis ort vísa um Tindastól, en ætlast er til þess að vísumar séu kveðnar með hefðbundnum hætti og standi rétt í ljóðstöfúm. Nú verða karlar og konur að taka til hendinni, því skilafrestur- inn er stuttur. Vísumar verða að hafa borist í Safnahúsið á Sauð- árkróki, föstudaginn 26. april. Tryggingafélagið Sjóvá/almenn- ar, umboðið á Sauðárkróki, mun veita verðlaun fyrir bestu vísuna og besta botninn sem þar til skip- uð dómnefnd velur. Safnahús Skagfirðinga mun standa fyrir stuttri dagskrá í upphafi Sælu- viku, þar sem m.a. verða kynnt úrslit vísnakeppninnar og opnuð sýning þeirra Önnu Sigríðar Hróðmarsdóttur, Guðrúnar Hall- fríðar Bjamadóttur (Höddu) og Sigurrósar Stefánsdóttur. Keppendur skulu koma vís- um sínum, skriflega til Safna- hússins á Sauðárkróki í síðasta lagi föstudaginn 26. apríl og merkja með dulnefni, en gefa upp nafn, heimilisfang og síma í lokuðu umslagi. Utanáskriffin er Vísnakeppni, Safnahúsinu á Sauðárkróki, 550 Sauðárkrókur. ' rtýíll ■ e fyrsta «>oKHs S*»tudafl_ | 1 t,MÉ 25% afsl gadinuefm bútasaumsefni og fataefni fimmtud. og föstud Af götunni

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.