Feykir - 14.01.2003, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Tíðarfarið hefur leikið við kylfinga í vetur og núna um helgina voru golfarar á fullu við
iðkun á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Núna spáir hinsvegar snjókomu þegar líður á
vikuna þannig að skíðamenn geta takið gleði sína. Mynd Skagafjordur.com
Særún leigir Skaftann
Fiskiðjan Skagfirðingur og
rækjuvinnslan Særún á
Blönduósi hafa tekið upp
samvinnu sín á milli, er bygg-
ir á leigu á togaranum Skafta.
Særún hefúr selt bæði sín skip,
Gissur hvíta til Vestmanna-
eyja fyrir rúmu hálfú ári og
Nökkva til Færeyja í lok síð-
asta árs. Það er Hrólfúr Ólafs-
son fyrrum skipstjóri á
Nökkva sem verður skipstjóri
á Skafta.
Skafti, sem af og til hefúr
verið nýttur til rækjuveiða hjá
FISK síðustu árin, hefúr verið
bundin við byggju ftá því í
marsmánuði á liðnu ári.
Særún hefúr yfir að ráða 2,8%
af útgefnum rækjukvóta, sem
fluttur verður yfir á Skaftann.
Skipið siglir væntanlega
frá Sauðárkróki á morgun,
miðvikudag, og stefnt er að
því að það fari í sína fyrstu
veiðiferð fyrir Særúnu um
næstu helgi.
Kári Kárason framleiðslu-
stjóri í Særúnu sagði í samtali
við Feyki að þetta samkomu-
lag væri áreiðanlega hagstætt
fyrir báða aðila. „Við höfúm
alltaf sagt að við ætluðum að
vera áffarn í útgerð meðan það
væri hægt. Þótt hráefhisöflun
hafi gegnið ágætlega er hag-
stæðast að veiða eigin kvóta
og þannig tryggja enn frekar
hráefnisöflunina. Ástæðan
fyrir því að við seldum
Nökkvann var sá að það var
fúll dýrt fyrir okkur, og hent-
aði ekki miðað við aðstæður.
Við fengum gott tilboð í skip-
ið sem við ákváðum að taka”,
segir Kári Kárason.
Héraðsdómur Norðurlands vestra
Mikil íjölgun gjald-
þrotamála í fyrra
Gjaldþotabciðnum fjölgaði
um 50% hjá Héraðsdóm-
stóli Norðurlands vestra á
síðasta ári, voru þá 30 tals-
ins í stað nítján á árinu 2001.
I heild var lítil fjölgun mála
frá árinu áður, eða aðeins
um 1,6%.
Það var hinvegar á milli ár-
anna 2000 og 2001 sem mikil
fjölgun mála var hjá dómstóln-
um, sem sést á því að á síðasta
ári var málafjöldinn 860 í stað
406 á árinu 2000.
Að sögn Halldórs Halldórs-
sonar héraðsdómara skiptast
málin á árinu 2002 þannig að
240 eru einkamál, 557 opinber
mál þar af 135 ákærur, 409 eru
svokölluð sektarbrotsmál,
gjaldþrotamálin eru 30 og
svipaður fjöldi eru ýmiss
ágreiningsmál sem dómstóll-
inn fékk til úrskurðar.
Hreinn Sig kaupir
Mjólkurstöðina
Nú fyrir helgina var gengið
ffá kaupum Lindarvatns félags
Hreins Sigurðssonar athafna-
manns á Sauðárkróki á mjólkur-
stöðvarhúsinu á Hvammstanga,
sem var í eigu Mjólkursam-
sölunnar í Reykjavík. Hreinn, í
samvinnu við kanadískan aðila,
áformar að nýta hús og tæki
ásamt ffekari tækjabúnaði til
vatnsútflutnings, en einnig hefúr
kanadíski aðilinn á prjónunum
að taka þátt í útflutningi á ávaxta-
safa, sem átappað yrði eins og
vatninu á Hvammstanga.
Hreinn hefúr varist ffétta af
málinu, en samkvæmt heimild-
um Feykis mun Lindarvatn
greiða um 27 milljónir króna
fyrir Mjólkurstöðina, en mats-
verð eignanna er yfir 50
milljónir króna. Ef áætlanir
ganga eftir er áætlað að um 15
manns hafi atvinnu af starf-
seminni á Hvammstanga, sem
þó er talið ólíklegt að muni fara
af stað alveg á næstu vikum.
Samkvæmt heimildum Feykis
liggur fyrir viljayfirlýsing ffá
kanadíska aðilanum. Markaðs-
verð á vatni mun vera mjög hátt
vestanhafs um þessar mundir og
það sem þessi áform um
vatnsútflutning er ffambrugðin
þeim fyrri, sem ekki hafa
gengið vel, er það að kanadíski
aðilinn myndi kaupa vatnið við
skipshlið og annast
markaðsmálin ytra.
Hreinn Sigurðsson hefúr
lengi skoðað útflutning á vatni.
M.a. hugðist hann reisa vatns-
pöklomarverksmiðju á Sauðár-
króki í lok níunda áratugsins.
Aðeins grunnur reis að þeirri
varksmiðju áður en málið sigldi
í strand. Vonandi er að þessi
tilraun Hreins takist og komi til
með að skila góðum árangri í
ffamtíðinni.
—chíDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
/!KJ
bílaverkstæði
^ m m m m sími: 95-35141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36J40
^Bílaviðgerðir ÍJ Hjóibarðaviðgerðir
íí Réttingar # Sprautun