Feykir - 19.02.2003, Page 2
2 FEYKIR 6/2003
Stelpurnar frá Hofsósi sem báru sigur úr bítum og módel
þeirra Katrín Erlingsdóttir.
Hár stíll og förðun í Friði
Það var líflegt á Kaffi Krók sl. fostudagskvöld
þegar fram fór keppni í fatahönnun, föðrun og
hárgreiðslu. Félagsmiðstöðin Friður gekkst fyrir
kepninni og er þetta nýlunda í starfi Friðar.
Keppnin bar yfirskriftina: „hár, stíll og förðun” og
það voru sjö lið sem tóku þátt, víðsvegar úr hérað-
inu. Þemað var svart/hvítt frá 3ja áratug síðustu
aldar.
Að sögn Maríu Bjarkar Ingvadóttur forstöðu-
manns Friðar krafðist keppnin gífurlegs undirbún-
ings og vinnu og var hvergi slegið slöku við. Mik-
ill áhugi er á hönnun og sköpun ýmisskonar á
meðal unglinga í héraðinu.
Það voru stelpur frá Flofsósi sem bám sigur úr
bítum, en módel þeirra var Katrín Erlingsdóttir. í
öðm sæti vom þau Soffía Snæbjömsdóttir og
Pálmi Þór Valgeirsson frá Arskóla, en þau komu
fram sem bníðhjón. í þriðja sæti var einnig þátt-
takandi frá Arskóla, Sandra Þorsteinsdóttir.
Nýlega var haldin Söngvakeppni á vegum fé-
lagsmiðstöðvarinnar og kepptu níu lið, þijú frá
hveijum stað: Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlið.
Sigurvegaramir vom Taktik frá Hofsósi, sem tóku
þátt i Söngkeppni Samfés sem haldin var í Laug-
ardalshöll í lok janúar og stóðu sig með miklum
ágætum. Framundan er keppni í Freestyle bæði
hjá yngri og eldri stúlkum í lok febrúar og þá
standa Músíktilraunir fyrir dymm.
Flutningskostnaðinn verður að jafna
í nýútkominni skýrslu sam-
göngu'ráðuneytisins um ferðir
og flutninga kemur fram að al-
mennur flutningskostnaður á
einingu innanlands hefúr hækk-
að mjög umfram aðra verðlags-
þróun í landinu á undanfömum
árum. Þetta hefur gerst þrátt
fyrirbættavegi, samþjöppunog
yfirlýstar hagræðingaraðgerðir
flutningsfyrirtækja sem áttu að
leiða til lækkunar á flutnings-
kostnaði.
Ef litið er á þróun flutnings-
kostnaðar sl. 6 ár þá hefúr vísi-
tala neysluverðs hækkað um
20% en almenn gjaldskrá flutn-
ingsaðila fyrir flutninga út á
land hefúr hækkað um 70-
100%. Hlutfallsleg hækkun
hefúr orðið mest á stöðum sem
fjærst liggja höfúðborginni þ.e.
á Vestfjörðum og Austfjörðum.
Þessar tölur eiga við um al-
menna gjaldskrá. Vitað er að
veruleg frávik þekkjast í formi
afsláttar sem flutningsfyrirtækin
bjóða viðskiptavinum sínum, en
þar ræður magn flutninga að öll-
um Iíkindum miklu. Hækkun á
flutningsþjónustu mun þannig
bitna misjafúlega á þeim sem
nota þjónustuna og harðast á
smæstu aðilunum sem flytja
minnst.
Það gefúr því auga leið að
lítil og meðalstór fyrirtæki, ein-
staklingar í verslun, þjónustu og
smáiðnaði verða harðast úti í
þessari þróun. Flutningakerfið
er því enn einn þátturinn sem
verður til þess að mismuna
smærri fyrirtækjum og hindra
þannig vöxt og aukna fjöl-
breytni atvinnulífs á lands-
byggðinni.
„Sjóflutningar á landi”
Flutningsjöfnunarsjóður hef-
ur tryggt jöfnun dreifingar-
kostnaðar á olíu, bensíni og
sementi. Þessi flutningsjöfnun
hefúr verið miðuð við sjóflutn-
inga. Hvað varðar olíur er mið-
að við dreifingu frá Reykjavík á
hinar ýmsu hafnir landsins.
Þessir flutningar eru nú komnir
á land eða beint erlendis frá á ör-
fáar hafnir. Afram er þó dreif-
ingaraðilum greitt eins og um
sjóflutninga frá Reykjavík væri
að ræða. Svipaða sögu er að
segja af flutningsjöfnun á sem-
enti. Sjóflutningar á sementi
hafa nú alveg lagst af og flutn-
ingamir alfarið komnir á land.
Því er nú verið að styrkja allt
aðra tegund flutninga en reglur
segja til um. Þessar breytingar
hafa átt sér stað án þess að regl-
um sjóðsins hafi verið breytt.
Með þessu skeytingarleysi hef-
ur samkeppnisstaða sjóflutninga
verið skert stórlega. Af þessum
sökum er augljóst að mjög brýnt
er að endurskoða reglur Flutn-
ingsjöfhunarsjóðs, annað hvort
þannig að þær taki mið af raun-
veruleikanum eða að sjóðnum
verði í raun beitt til eflingar sjó-
flutninga.
Fákeppni og einokun
Fram um 1990 voru allt að 5
skip í áætlunarsiglingum á veg-
um tveggja stærstu skipafélaga
landsins við strendur landsins
sem komu við á 30 stöðum. Nú
er aðeins Eimskip eftir með eitt
skip í strandflutningum og 11
viðkomustaði. Það er ekki að-
eins að skipakomum hefúr
fækkað heldur er þjónustustig
sjóflutninga við ströndina mun
lægra en áður var. Þetta er þó
ekki hið eina er hefúr gerst í
tengslum við sjóflutninga. Áður
vom nokkuð skýr skil á milli
flutningategunda. Skipafélögin
sáu um sjóflutninga en ýmis fyr-
irtæki og einstaklingar sáu um
landflutninga en höfðu með sér
samstarf uin vörumóttöku og
afgreiðslu. Á þessu hefúr orðið
gjörbylting. Skipafélögin em
orðin ráðandi í vöruflutningum
úti á landi. Eimskip á stóran
eignarhluta í Flytjanda og Sam-
skip eiga ein Landflutninga.
Fjöldi minni staðbundinna
flutningafyrirtækja og einyrkja
hefúr hætt, verið keypt upp, ver-
ið mtt út af markaðinum eða
horfið af sjónarsviðinu með öðr-
um hætti. I skýrslunni kemur
fram að tíðni ferða milli staða
hafi aukist vemlega og þjónust-
an í landflutningum sé almennt
góð. í æ fleiri tilvikum em sömu
aðilar að sýsla með framleiðslu,
flutninga og sölu aðfanga. En
sama fyrirtækið hefúr oft og tíð-
um eignarhald á skipafélögum,
útgerðum og fiskvinnslum og
olíufélögum ásamt stærstu fyrir-
tækjunum á landsbyggðinni.
I niðurstöðum skýrslunnar
segir svo: „Þegar flutningar um
landið og kostnaður við þá em
skoðaðir kemur í ljós að vem-
legar sviptingar hafa átt sér stað
að undanfömu. Framboð
strandflutninga hefur dregist
saman og siglir nú aðeins eitt
áætlunarskip á ströndina en á
sama tíma hefúr framboð land-
flutninga vaxið verulega. Sam-
þjöppun aðila í landflutningum
og þáttaka skipafélaga gerir það
að verkum að tveir flutningsað-
ilar em með nær alla landflutn-
inga á íslandi. Fákeppni er því
ráðandi í þessum flutningum.
Samfara þessu hafa gjaldskrár
flutningsaðila hækkað vemlega
umfram þróun neysluvömvísi-
tölu.”
Getur hver og einn lesandi
svipast um í sinni heimabyggð
og séð hver hefúr orðið þróun
flutningsmála þar.
Grípa þarf til úrræða
Flestir Ijúka upp einum
munni um að lækka þurfi flutn-
ingskostnaðinn og jafna að-
stöðumun fyrirtækja og fólks
eftir búsetu. Stór hluti útflutn-
ingsvara landsmanna kemur af
landsbyggðinni Það leggst á
framleiðandann að skila vör-
unni á útflutningshöfh sem í
flestum tilvikum er á suðvestur-
hominu. Ríkið fær því auknar
skatttekjur frá framleiðandanum
því fjær sem hann er frá aðal
inn- og útflutningshöfhum bæði
í formi þungaskatts, eldsneytis-
gjalds og virðisaukaskatts sem
ætíð leggst á síðasta stig vör-
unnar. Hér er um miljarða króna
að ræða sem ríkið skattleggur
dreifbýlið umfram höfúðborgar-
svæðið. Þessu getur ríkið af
sanngimi skilað að hluta til
baka.
Þessar leiðir má fara:
a) bregðast við fákeppni í
flutningum og krefjast gagn-
særrar gjaldskrár þannig að heil-
brigð samkeppni fái þrifist.
b) Koma þarf á ströngum
siðareglum í flutningum hér á
landi hliðstæðum þeim sem
Samkeppnisstofnun hefúr sett
nýlega um samskipti smásala
og birgja í verslun.
c) Beita flutningsstyrkjum til
atvinnugreina á jaðarsvæðum til
að jafna samkeppnisstöðu
þeirra. Það er gert bæði í Sví-
þjóð og Noregi. Þar höfúm við
fordæmi sem ganga má beint í
og útfæra. Má líta á það eins og
endurgreiðslur á ofteknum
sköttum hjá viðkomandi fyrir-
tæki. En skilyrði fyrir því að
hægt sé að beita slíkum jöfnun-
arstyrkjum er að öll gjaldtaka
flutningsaðilanna sé gagnsæ.
d) Veita skattaafslátt til ein-
staklinga vegna aksturs til og frá
vinnu þegar aksturinn fer yfir
vissa hámarksvegalengd.
c) Veita sérstakan flutnings-
styrk til verslana á stöðum sem
ekki njóta þjónustu lágvöru-
verslana með samræmdu verði.
d) finna leiðir til að bæta
samkeppnisstöðu sjóflutninga.
Lokaorð
Þeir sem búa á landsbyggð-
inni þurfa að yfirvinna fjarlægð-
ir með einu eða öðru móti, en æ
fleiri hluti sem tengjast ffarn-
leiðslu og þjónustu þarf að
sækja til höfúðborgarsvæðisins.
Þessar fjarlægðir virðast þó vera
hafðar að féþúfú hjá ýmsum að-
ilum. Ríkisvaldið innheimtir
dijúgan hluta tekjum sínum af
með skatti á eldsneyti og flutn-
inga. En einnig virðist svo vera
sem að flutningsaðilamir sjálfir
séu að innheimta fákeppnis-
rentu af landsbyggðinni. Við
þessu þarf að bregðast með
festu og aðgerðum þegar í stað .
Jón Bjarnason, alþingis-
maður Vinstri grænna. Skipar
fyrsta sæti flokksins í Norðvest-
urkjördæmi.
fc. ól táð fréttablað á Norðurla ndi \ fiá 1 Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriftarverð 210 krónur hvert tölublað með Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.