Feykir - 10.09.2003, Side 7
30/2003 FEYKIR 7
Huer er
ma>urinn?
Tvær myndir þekktust í
síðasta myndaþætti. Mynd
nr. 428 er af Sigrúnu Guð-
jónsdóttur hárgreiðslukonu
og húsfreyju í Reykjavík og
mynd nr. 431 er af Guð-
manni Albertssyni, Sölva-
sonar.
Nú eru birtar íjórar
myndir sem bárust safninu
úr dánarbúi Kristínar
Sölvadóttur. Þau sem
þekkja myndimar eru vin-
samlegast beðin að hringja
í Héraðsskjalasafn Skag-
firðinga í síma 453 6640.
Mynd nr. 432.
Mynd nr. 434.
Mynd nr. 433.
Mynd nr. 435.
Ályktanir þings SSNV
Samgöngumál
11. ársþing SSNV haldið á
Skagaströnd dagana 29. og 30.
ágúst 2003 lýsir ánægju sinni
með að veitt befúr verið fé til að
ljúka meirihluta íramkvæmda
við Þverárfjallsveg. Um er að
ræða gífurlega samgöngubót
fyrir íbúa Norðurlands vestra og
styttir m.a. leiðina milli Sauðár-
króks og Reykjavíkur um 30
km. Þá leggur þingið áherslu á
að frágangi Þverárfjallsvegar
svokölluðum Strandveg á Sauð-
árkróki verði flýtt svo hann
verði tilbúinn vorið 2004 og
þjóni m.a. þannig þeim tugum
þúsunda landsmanna sem sækja
munu Landsmót UMFÍ 2004 á
Sauðárkróki. Þingið leggur jafh-
framt áherslu á að til lengri tima
litið verði samgöngubætur aust-
ur yfir Tröllaskaga með þeim
hætti að þær nýtist íbúum
beggja vegna skagans og styrki
byggð í Skagafirði jafht og við
Eyjafjörð. Þingið skorar einnig
á samgönguyfirvöld að kanna
hagkvæmni þess að láta gera
jarðgögn úr Hjaltadal yfír í
Eyjafjörð.
Arsþingið bendir á síaukinn
flutningskostnað og þann sam-
félagslega kostnað sem tilfærsla
sjóflutninga í landflutninga
veldur með stóraukinni við-
haldsþörf á þjóðvegakerfinu
sem er að hrynja undan álaginu.
Þingið leggur áherslu á að leið-
rétt verði misræmi í flutnings-
jöfnun milli sjóflutninga og
landflutninga.
Ársþingið minnir á að við-
hald safn- og tengivega hefur
verið vanrækt á undanfomum
ámm og beinir því til þing-
manna að þeir hlutist til um að
auknu fé verði veitt til þessa
verkefnis á fjárlögum.
Ársþingið mótmælir því ó-
réttlæti að sveitarfélögum sé
gert að greiða helming kostnað-
ar við snjómokstur á tengiveg-
um og krefst þess að Vegagerð
ríkisins beri þann kostnað að
fúllu.
Stuðningur við at\innu-
þróunarstarfsemi
11. ársþing SSNV haldið á
Skagaströnd dagana 29. og 30.
ágúst 2003 skorar á fjárlaga-
nefnd Alþingis og þingmenn
Norðvesturkjördæmis að sjá til
þess að sérmerkt fjárveiting til
Byggðastofnunar vegna at-
vinnuráðgjafar verði ekki lægri
en 200 mkr. í fjárlögum ársins
2004. Fjárveitingar til atvinnu-
þróunarstarfsemi hafa verið ó-
breyttar frá 1997 en á þeim tíma
hefúr neysluvísitala hækkað um
22-24%.
Ársþingið leggur áherslu á
mikilvægi atvinnuþróunarstarf-
seminnar, að framhald verði á
stuðningi ffá Byggðastofhun og
að samningar verði gerðir við
atvinnuþróunarfélögin til lengri
tíma.
Endurgreiðslu virðisauka-
skatts af skólahúsnæði
11. ársþing SSNV haldið á
Skagaströnd dagana 29. og 30.
ágúst 2003 skorar á Alþingi að
gera nauðsynlegar breytingar á
lögum um virðisaukaskatt til að
sveitarfélögin fái endurgreiddan
virðisaukaskatt af byggingu
skólahúsnæðis.
Ályktun um eyðingu refa
og minka
11. ársþing SSNV haldið á
Skagaströnd dagana 29. og 30.
ágúst 2003 skorar á þingmenn
og stjóm Sambands islenskra
sveitarfélaga að beita sér fýrir
stórauknum ffamlögum ffá ríki
til sveitarfélaga til að greiða
kostnað við eyðingu refa og
minka og jafnffamt að sveitarfé-
lögin fái endurgreiddan VSK af
vinnu við eyðingu þessara dýra.
Umdæmisskrifstofur Rarik
11. ársþing SSNV ítrekar
mikilvægi umdæmisskrifstofa
RARIK á landsbyggðinni. Við
innleiðingu nýrra raforkulaga er
afar brýnt að áffam verði með
þeim hætti að allir landsmenn
búi við sömu kjör, óháð búsetu,
hvað varðar flutningskostnað á
raforku og að raforkuverð verði
sem jafhast.
Ályktun um raforkuverð
11. ársþing SSNV haldið á
Skagaströnd dagana 29. og 30.
ágúst 2003 skorar á iðnaðar- og
viðskiptaráðherra að tryggja við
gerð nýrra raforkulaga að gjald-
taka fyrir meginflutning raforku
verði með þeim hætti að allir
landsmenn búi við sömu kjör,
óháð búsetu, hvað varðar flutn-
ingskostnað á raforku og að raf-
orkuverð verði sem jafnast.
Jöfnun orkukostnaðar
11. ársþing SSNV haldið á
Skagaströnd dagana 29. og 30.
ágúst 2003 skorar á stjómvöld
að taka upp jöfnun orkúkostnað-
ar til atvinnufyrirtækja og stofn-
ana sem ekki hafa aðgang að
hitaveitum. Sú staðreynd blasir
við víða um land að raforku-
kostnaður dregur mjög úr sam-
keppnishæfni atvinnulífs. Þing-
ið skorar jafnffamt á stjómvöld
að auka enn ffekar niðurgreiðsl-
ur til húshitunar og ffamlög til
jarðhitaleitar á köldum svæðum.
Skagaíjörður fær mest úr jöfnunarsjóði Sveitarfélagið Skagafjörður fær greiddar 96 miljónir úr Jöfrtunarsjóði sveitarfélaga á þessu ári, mest allra sveitarfélaga á landinu. 27 miljónir greiðast vegna skólaaksturs í dreifbýli. Næsthæsta ffamlag sveitar- félaga á Norðurlandi vestra kom í hlut Húnaþings vestra, 47 milljónir. Svæðisútvarp greindi frá. Margrét valin í U-19 landsliðshópinn Kvennaknattspyman gerir það gott á Króknum. Nú hefur Margrét Guðný Vigfusdóttir verið valin í landiðshóp U-19 landsliðs kvenna sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins í Slóvakíu dagana 22. - 29. september. Þetta verður að teljast magnaður árangur hjá henni þar sem hún er aðeins 16 ára. Margrét er þó ekki ennþá farin til Slóvakíu því hún er ein af 25 stúlkum sem voru valdar í hópinn, en 16-18 stúlkur verða í endanlegum hóp. Skag.com Siv á ferð í Skagafirði Á heimasíðu Framsóknarfélags Skagafjarðar er sagt ffá því að Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra rnuni í dag og fimmtudag vera á ferðinni í Skagafirði. Siv hefur pakkað gönguskóm, lopapeysu og svefnpoka því hún hyggst meðal annars skoða Orravatnsrústir, Austara-Eylendið og Drangey, en þessi svæði eru í drögum að náttúruvemdaráætlun. Þá mun ráðherrann eiga fund með sveitarstjómarmönnum í Skagafirði. Skag.com Sjötta sætíð varð niðurstaðan Lið Tindastóls kláraði 2. deildina með því að tapa þriðja leiknum í röð. ÍR sigraði í leik liðanna á ÍR- velli á laugardag með einu marki gegn engu og skaust með sigrinum upp fyrir lið Tindastóls sem endaði í 6. sæti 2. deildar. Leikmenn Stólanna geta huggað sig við að þeir enduðu þó fyrir ofan vini okkar frá Siglufirði sem töpuðu á sama tíma 3-9 fyrir liði Fjölnis. Fjölnismenn urðu að sigra í leiknum til að gulltryggja sæti í 1. deild. Davíð Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Fjölni og lagði upp ein þrjú með hraða sínum. Brúðkaup í Víðimýrarkirkju Mikið var um dýrðir í Víðimýrarkirkju sinni partinn í gær, en þar var að gifta sig þýskt par sem kynntist í hestaferð hjá Hestasporti. Brúðhjónin fóm ásamt nokkmm vinum í skrautreið í og frá kirkju, og að giftingunni lokinni var teiti í einu orlofshúsanna.
Einbýlshús til sölu! Einbýlishúsið að Ægisstíg 10 Sauðárkróki er til sölu. Húsið er 103 fermetrar, auk bilskúrs sem er að nálgst fokheldisstig.. Eignin er í góðu ástandi, svo sem nýlega standsett eldhús og baðherbergi. Upplýsingar hjá Ágústi Guðmdundssyni í Srimli í síma 453 5900 eða hjá eiganda í símum 453 5757 eða 897 5729.