Feykir - 17.09.2003, Blaðsíða 7
31/2003 FEYKIR 7
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa
Óskars Inga Magnússonar
Brekku, Skagafirði
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar II á
Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki.
Herfríður Valdimarsdóttir
Guðrún Valdís Óskarsdóttir
Magnús Ingi Óskarsson Signý Jóhannesdóttir,
Rósa Margrét Hjálmarsdóttir,
Erla Hlín Hjálmarsdóttir,
afaböm og langafaböm.
(jBte
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Sérfræðikomur í september og október.Tímapantanir í síma 455 4000.
22.09. 26.09. Edward Kiernan
29.09.03.10. Haraldur Hauksson
06.10. 10.10. Hafsteinn Guðjónsson
13.10.17.10. Sigurður Albertsson
20.10. 24.10.
27.10. 3110. Bjarki Karlsson
kvensj úkdómalæknir
æðaskurðlæknir
þvagfæraskurðlæknir
skurðlæknir
kvensjúkdómalæknir
bæklunarskurðlæknir
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu Toyota Touring
árg. ’91, ekinn 217.000 km.
Upplýsingar í síma 893 5601
eða 895 6618.
Lítill ísskápur í góðu ásig-
komulagi óskast. Hringið í
síma 453 5386 eða 663 1017.
Feykir sími 453 5757
Á leið til Drangeyjar. Kerlingin fyrir miðri mynd.
Gunni bakari sló
í gegn á Króksmóti
issögu og um Guðmund góða Hóla-
biskup.
Þar sem eyjan er mjög brött þurftum
við að lesa okkur upp hana á böndum.
Áttum dágóða stund í eynni og nutum
skemmtilegrar frásagnargáfú Jóns
Drangeyjarjarls, en hann veit allt það
mikilvægasta um sögu og náttúru eyj-
arinnar.
í eynni fékk ég gefíns Drangeyjar-
bol sem á stendur, „Eg hef klifið
Drangey og snert rætur íslands.” Á
bolnum er einnig teiknuð mynd af Jóni
Drangeyjaijarli. Af þessu tilefni orti
Jón glaðbeittur:
Til eyjar förin farin er,
flestir vel þá skemmtu sér.
Siv mig fyrir bijósti ber,
býsna gott slíkt þykir mér.
Eftir skemmtilega stund í eynni
fikruðum við okkur niður snarbrött
björgin og sigldum í land. Er í land
kom kvöddum við samferðamenn okk-
ar. Töfðumst um stund því sprungið
var á öðmm bílnum. Ókum því næst
yfir Þverárfjall, um Blönduós og að
Þingeymm. Þar sýndi Sigríður Hjalta-
dóttir, líffræðingur og húslfeyja á Sól-
bakka í Víðidal, okkur Hópið-Húna-
vatn-Flóðið, en lagt er til í drögum að
náttúmvemdaráætlun að svæðið verði
vemdað sem búsvæði.
Sérstaða svæðisins em flæðimýrar,
óshólmar og vötn með mikið lífauðgi
og sérstöðu fiskistofna. Þama fyrirfinn-
ast allar tegundir ferskvatnsfiska á ís-
landi að sögn Sigríðar. Hópið er með-
al stærstu stöðuvatna landsins. Húna-
vatn er með opinn ós til sjávar.
Eftir að hafa kvatt Sigríði sem haföi
ferðast með okkur í sólarhring héldum
við í suður að Staðarflöt við Staðar-
skála. Þar hittum við sveitastjómar-
menn úr Húnaþingi vestra sem ætluðu
með okkur að skoða Sléttafellshveri
við Síká, en lagt er til að þeir verði
vemdaðir sem náttúmvætti. Funduð-
um með þeim um drögin að náttúm-
vemdaráætlun, en ffestuðum skoðunar-
ferðinni þvi skyggni var lítið í rigning-
unni sem var brostin á.
Því næst ókum við heim með við-
komu í kvöldmat í Hymunni í Borgar-
nesi. Vomm komin heim um kl. 21:00
eftir þriggja daga góða skoðunarferð
um nokkur svæði sem em í drögum að
náttúruvemdaráætlun.
Burtfluttir Króksarar og aðrir Skag-
firðingar á höfuðborgarsvæðinu hafa
Ifá árinu 1999 haldið uppi þeim sið að
etja kappi með golfkylíum að hausti
til. Nú var komið saman á golfvelli
Oddfellowa í Urriðavatnsdölum við
Heiðmörk um síðustu helgi. Alls
kepptu 38 kylfingar af öllum stærðum
og gerðum, þar af nokkrir sem létu sig
ekki muna um að aka suður yfir heið-
ar til að hitta gamla sveitunga og for-
vitnast í leiðinni um forgjöf þeirra og
fjölskylduhagi.
Úrslitin urðu þau að skipuleggjandi
og aðalhvatamaður Króksmótsins,
Gunnar Þ. Guðjónsson, Gunni bakari,
gerði sér lítið fyrir og sigraði ömgg-
lega með 40 punkta. Næstur kom Sig-
urgeir Þórarinsson lfá Rip með 36
punkta, þá Hafþór Þorbergsson Jósefs-
sonar og loks fengu Sigurbjörg Ólsen
og Halldór Halldórsson, „litli” bróðir
Amar Sölva, verðlaun fyrir fjórða og
fimmta sætið. Að auki voru veitt
„nándarverðlaun”, dregið úr skorkort-
um til aukaverðlauna og allir keppend-
ur fengu svokallaða teiggjöf. Heppn-
aðist mótið i alla staði vel, enda veðr-
ið langt umfram meðaltal síðustu
vikna á höfuðborgarsvæðinu. Að
verðlaunaafhendingu lokinni fóm
keppendur út á veröndina og brostu
mót kvöldsólu og ljósmyndara.
Einbýlishús til sölu!
Einbýlishúsið að Ægisstíg 10 Sauðárkróki er til sölu. Húsið er 103
fermetrar, auk bílskúrs sem er að nálgst fokheldisstig. Eignin er í
góðu ástandi, svo sem nýlega standsett eldhús og baðherbergi.
Upplýsingar hjá Ágústi Guðmundssyni i Srimli í síma 453 5900
eða hjá eiganda í símum 453 5757 eða 897 5729.